1
Minning

Hallgrímur Jónasson er fallinn frá

2
Fólk

Gamaldags en notalegt hús í Mosfellsbæ til sölu

3
Innlent

Kona Hugleiks Dagssonar var rænd

4
Heimur

Gengu í takt á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna með hvítar grímur

5
Innlent

Fékk vinagreiða hjá almannatengli

6
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

7
Menning

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“

8
Innlent

Eftirlýstur maður handtekinn

9
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

10
Heimur

Vélmenni missti stjórn á sér í miðri sýningu

Til baka

Segir Dani eiga krók á móti bragði gagnvart Bandaríkjunum

„Ef þeir hunsa samkomulagið er þá að minnsta kosti staðfest að núverandi stjórnvöld þar í landi virða ekki samninga og á það við um varnarsamninginn við Ísland sem og aðra samninga“

Kristinn Hrafnsson
Kristinn HrafnssonKristinn bendir á afar áhugaverðan punkt

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, segir Dani eiga mögulegt mótvægi gegn Bandaríkjastjórn í deilum um Grænland sem byggi á aldagömlum alþjóðasamningi. Í Facebook-færslu bendir hann á að þegar Danmörk seldi Bandaríkjunum dönsku Vestur-Indíur árið 1917, nú hinar bandarísku Jómfrúareyjar, hafi fylgt samningnum formleg yfirlýsing þar sem Bandaríkin viðurkenndu yfirráð Dana yfir Grænlandi.

Kristinn segir yfirlýsinguna hafa verið undirritaða af þáverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Robert Lansing, fyrir hönd ríkisstjórnar Woodrow Wilsons forseta. Að hans mati megi færa sterk rök fyrir því að brot á þessum hluta samningsins geti haft víðtækar lagalegar afleiðingar.

„Þegar Danir seldu Bandaríkjamönnum dönsku Vestur-Indíur árið 1917 fylgdi samningnum viðauki eða yfirlýsing þess efnis að Bandaríkjamenn viðurkenndu pólitísk og efnahagsleg yfirráð Dana yfir Grænlandi,“ skrifar Kristinn og bætir við að yfirlýsingin sé skýr og formleg skuldbinding af hálfu Bandaríkjanna.

Hann segir jafnframt að ef Bandaríkin virði ekki þessa skuldbindingu, megi halda því fram að sjálf eyjasalan frá 1917 standist ekki lengur. „Færa má fyrir því rök að ef þessi hluti samningsins er ekki virtur, ógildist samningurinn um kaupin á eyjunum í Karíbahafi og Danska konungsríkið tekur þær yfir aftur,“ segir Kristinn.

Slík þróun hefði samkvæmt honum athyglisverðar afleiðingar á alþjóðavettvangi. „Þar með væri Evrópusambandið komið með útstöð í Karíbahafi,“ skrifar hann og bendir á að málið sé ekki aðeins sögulegt heldur einnig pólitískt sprengiefni í nútímanum.

Kristinn veltir því einnig fyrir sér hvort núverandi leiðtogar Bandaríkjanna telji sig bundna af samningum sem undirritaðir voru fyrir rúmri öld. „Það er svo önnur saga hvort Trump og Marco Rubio líti svo á að þeir séu bundnir af undirrituðum samningum forvera sinna fyrir rúmum 100 árum,“ skrifar hann og bætir við að ef slíkir samningar séu hundsaðir sé það alvarlegt fordæmi.

„Ef þeir hunsa samkomulagið er þá að minnsta kosti staðfest að núverandi stjórnvöld þar í landi virða ekki samninga og á það við um varnarsamninginn við Ísland sem og aðra samninga,“ segir Kristinn og tengir þannig Grænlandsmálið beint við stöðu Íslands og annarra bandalagsríkja.

Í færslunni veltir hann jafnframt upp mögulegum samfélagslegum afleiðingum ef Danmörk tæki aftur yfirráð yfir Jómfrúareyjunum. Hann bendir á að íbúar eyjanna hafi ekki verið ánægðir með dönsku nýlendustjórnina á sínum tíma, en aðstæður gætu verið aðrar í dag.

„Íbúar á Bandarísku jómfrúareyjunum voru ekki sérlega hrifnir af reynslunni af danskri nýlendukúgun en geta ef til vill fyrirgefið forsöguna ef þeir fá aðgang að dönsku velferðarkerfi, opinberri heilbrigðisþjónustu og nánast ókeypist menntun,“ skrifar Kristinn og bætir við að slíkt myndi fylgja Schengen-aðgangur með dönsku vegabréfi.

Að lokum setur hann fram hálfkæringslega hugmynd um áhrifin fyrir Íslendinga. „Íslendingar geta þá líka flykkst til vetrardvalar í Dönsku Vestur Indíum og verið þar eins og heima hjá sér,“ skrifar Kristinn.

Færslan hefur vakið athygli fyrir að draga fram lítt ræddan kafla í alþjóðasamningum sem gæti, að mati Kristins, haft óvænt áhrif á núverandi átök um stöðu Grænlands.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Flugvél nauðlenti í New York
Myndband
Heimur

Flugvél nauðlenti í New York

Atvikið kemur í kjölfar annars flugsslyss á sama svæði fyrir innan við mánuði
Heyannir á Árbæjarsafni
Myndir
Menning

Heyannir á Árbæjarsafni

Arnar Már hrækti á lögreglumann
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón
Innlent

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn
Heimur

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni
Myndir
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Sex slasaðir eftir að rúta valt í Suðursveit
Landið

Sex slasaðir eftir að rúta valt í Suðursveit

Mugison sló í gegn í Básum
Myndband
Menning

Mugison sló í gegn í Básum

Fundu lík ungs manns í vinsælu síki
Heimur

Fundu lík ungs manns í vinsælu síki

Ljósmyndir af fólki í neyð bannaðar
Heimur

Ljósmyndir af fólki í neyð bannaðar

23 létust í fangelsisóeirðum
Heimur

23 létust í fangelsisóeirðum

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

Morðinginn Matthías kominn á Vernd
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

Hafði ekki brotið af sér áður
„Tálmaði“ lögreglu í Árbænum og hótaði henni
Innlent

„Tálmaði“ lögreglu í Árbænum og hótaði henni

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón
Innlent

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

Morðinginn Matthías kominn á Vernd
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

Upprunaábyrgðir í felum hjá VAXA
Innlent

Upprunaábyrgðir í felum hjá VAXA

Loka auglýsingu