
Það er heldur betur mikið að gera hjá tökuliði og leikurum á stórmynd leikstjórans Christopher Nolan en aukaleikarar og aðrir sem koma að myndinni gista í grunnskólanum á Hvolsvelli á meðan tökur á nærliggjandi svæðum fara fram.
Alls koma 400 manns að framleiðslunni hérlendis að sögn TrueNorth en Anne Hathaway, Matt Damon, Robert Pattinson, Tom Holland og Zendaya fara með helstu hlutverk í myndinni sem ber nafnið The Odyssey og er væntanleg í kvikmyndahús á næsta ári.
Tökurnar fara að mestu fram að nóttu til og hafa íbúar bæjarfélagsins verið beðnir að hafa ekki læti á daginn þar sem leikararnir sofa á daginn. Upphaflega stóð til að setja upp tjaldbúðir fyrir leikara í Vík en þær fuku og eyðilögðust í roki.
Christopher Nolan er þekkastur fyrir að leikstýrt The Dark Knight, Interstellar, Tenet og Oppenheimer.


Komment