
Sarah Ferguson óskaði Jeffrey Epstein til hamingju með fæðingu „drengs“ eftir að hann losnaði úr fangelsi vegna kynferðisbrota gegn börnum, samkvæmt nýjum skilaboðum sem nú hafa komið í ljós.
Fyrrverandi hertogaynjan af Jórvík, sem hefur lengi verið umdeild, sendi Epstein „ást, vináttu og hamingjuóskir“ í september 2011, nokkrum árum eftir að hann var sakfelldur árið 2008 fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Í skilaboðunum segist Ferguson hafa heyrt tíðindin frá fyrrverandi eiginmanni sínum, Andrew Mountbatten-Windsor.
Hún virðist hafa notað upplýsingarnar sem tilefni til að hafa samband við Epstein á ný, þrátt fyrir fyrri sakfellingu hans. Ef efni tölvupóstsins reynist rétt gæti barnið nú verið 14 ára gamalt.
„Ég veit ekki hvort þú ert enn á þessu bbm [BlackBerry Messenger] en ég hef heyrt frá hertoganum að þú hafir eignast lítinn dreng,“ skrifaði hún. Skilaboðin virðast einnig innihalda duldar ávirðingar í garð Epstein fyrir að hafa slitið samskiptum við hana, þrátt fyrir að Ferguson hafi áður haldið því fram að hún sjálf hefði slitið sambandinu.
Hún skrifaði jafnframt: „Þrátt fyrir að þú hafir aldrei haldið sambandi er ég enn hér með ást, vináttu og hamingjuóskir vegna litla drengsins þíns.“ Hún lauk skilaboðunum með kossi.
Í öðrum pósti sem Ferguson sendi Epstein segist hún afar sár vegna vinslitanna: „Þú hefur horfið. Ég vissi ekki einu sinni að þú ættir von á barni. Það var svooooo kristaltært fyrir mér að þú varst aðeins vinur minn til að komast að Andrew. Og það særði mig virkilega djúpt. Meira en þig grunar.“
Epstein átti í samböndum við margar konur, en ekki hefur verið vitað til þess að hann hafi eignast börn. Síðasti þekkti maki hans var Karyna Shuliak, sem erfði einnig stóran hluta af gífurlegum auði hans eftir dauða hans árið 2019.
Nýju upplýsingarnar koma fram í kjölfar birtingar milljóna skjala, ljósmynda og myndbanda sem eru hluti af nýjustu birtingu Epstein-skjalanna. Þau benda til þess að Ferguson hafi haldið áfram samskiptum við Epstein eftir sakfellingu hans, en jafnframt notið fjárhagslegs ávinnings af honum árum áður en hann var dæmdur.
Árið 2001 lagði Epstein til dæmis 150.000 dollara (rúmlega 18 milljónir króna) inn á reikning Ferguson í tengslum við hlutabréfasölu, samkvæmt bankagögnum. Epstein millifærði fjárhæðina beint til fyrrverandi hertogaynjunnar af Jórvík.
Skjölin sýna einnig að Epstein seldi hlutabréf fyrir 550.000 dollara (ríflega 67 milljónir króna) í svokölluðum „sweep“-reikningum. Sú greiðsla var ein af nokkrum peningainnspýtingum sem Epstein lagði Ferguson til.

Komment