1
Heimur

Móðir stökk fram af kletti með börnin sín

2
Minning

Einar Sindrason er fallinn frá

3
Innlent

Hópurinn „Áfram Ísland“ fjarlægði fullyrðingar eftir gagnrýni Pawels

4
Heimur

Hryllingurinn á bak við brottnám úkraínskra barna

5
Heimur

Ofsatrúaðir gyðingar réðust að ísraelskum hermönnum í Jerúsalem

6
Heimur

Liam Payne sagður hafa misst stjórn á sér skömmu fyrir andlátið

7
Heimur

Veitingastaður á Tenerife bannar betlandi áhrifavöldum að koma inn

8
Innlent

Fimm handteknir eftir að skotvopn fundust í tveimur bílum á Akureyri

9
Heimur

Tímamót í Bretlandi

10
Heimur

Ítalía herðir landamæraeftirlit gagnvart Spáni vegna flóttamannakrísu

Til baka

„Ég var lengi vel bara mjög reiður“

Þorgils Einarsson opnar sig um krefjandi æsku

Þorgils Eiður
Þorgils EinarssonMætti í hlaðvarp Sölva Tryggvasonar.
Mynd: YouTube/Skjáskot

Þorgils Einarsson, atvinnumaður í bardagaíþróttum, segist vera að lifa æskudraum sinn og pabba síns heitins með því að hafa tekið stökkið og ákveðið að flytja til Tælands. Þar vinnur hann við að keppa í bardagaíþróttum en Þorgils er nýjasti gesturinn í hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar.

Hann segir við Sölva að íþróttir hafi á ákveðinn hátt bjargað sér, þar sem hann passaði ekki inn í skólakerfið og segist eflaust hefði getað lent á rangri braut ef hann hefði ekki haft farveg til að setja orkuna í.

„Ég er 100% einn af þessum strákum sem hefði getað endað á mjög slæmum stað ef ég hefði ekki haft íþróttir. Ég var rosalega reiður krakki, þunglyndur um tíma og fleira í þeim dúr. Það var um tíma drykkja á heimilinu þegar ég var barn og svo skildu mamma og pabbi og það fór illa í mig. Það var rígur á milli þeirra og það fór heldur ekki vel með mig. Ég var lengi vel bara mjög reiður og lítill í mér og það væri bæði erfitt að vera heima og í skólanum. Ef það væri ekki fyrir bardagaíþróttir væri ég alveg örugglega ekki á góðum stað í dag. Það hefur ekkert kennt mér meira á sjálfan mig en bardagaíþróttir. Þegar ég komst í kynni við þær fór ég bæði að fá sjálfstraust, öryggi, útrás og fór að skilja sjálfan mig betur og finna mig,“ segir Þorgils og segir einnig að honum finnist hann líka vera að heiðra minningu pabba síns með því að láta draum sinn um að flytja út og keppa rætast.

Var náinn pabba sínum

„Pabbi dó stuttu áður en ég fór út. Ég var búinn að kaupa miðann út og vissi ekki hvort ég yrði þarna lengi. En við höfðum oft rætt þetta saman ég og pabbi. Hann var í tækvondo og við horfðum saman á Bruce Lee þegar ég var krakki og áttum sameiginlegan áhuga á bardagaíþróttum. Við vorum mjög nánir þegar ég var krakki og við ræddum oft saman um það hvað það væri frábært að fá að fara til Kína að æfa með munkum eða til Tælands að æfa Muay Thai. Hvað það yrði klikkað að fá að upplifa það. Þannig að þegar ég ákvað að láta á þetta reyna fannst mér eins og ég væri að láta reyna að draum okkar pabba. Ef mér hefði verið sagt sem krakka að ég ætti eftir að berjast á stærsta sviðinu í Tælandi hefði ég ekki trúað því. Það hjálpaði mér bæði að ákveða að fara út og ákveða vera áfram úti að vita að pabbi hefði viljað það. Hann hefði snúið sér við í gröfinni ef ég hefði hætt við,“ sagði Þorgils í viðtalinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Móðir stökk fram af kletti með börnin sín
Heimur

Móðir stökk fram af kletti með börnin sín

Var neitað um hjálp á lögreglustöð
Hryllingurinn á bak við brottnám úkraínskra barna
Heimur

Hryllingurinn á bak við brottnám úkraínskra barna

Ítalía herðir landamæraeftirlit gagnvart Spáni vegna flóttamannakrísu
Heimur

Ítalía herðir landamæraeftirlit gagnvart Spáni vegna flóttamannakrísu

Hópurinn „Áfram Ísland“ fjarlægði fullyrðingar eftir gagnrýni Pawels
Innlent

Hópurinn „Áfram Ísland“ fjarlægði fullyrðingar eftir gagnrýni Pawels

Veitingastaður á Tenerife bannar betlandi áhrifavöldum að koma inn
Heimur

Veitingastaður á Tenerife bannar betlandi áhrifavöldum að koma inn

Ofsatrúaðir gyðingar réðust að ísraelskum hermönnum í Jerúsalem
Myndband
Heimur

Ofsatrúaðir gyðingar réðust að ísraelskum hermönnum í Jerúsalem

Liam Payne sagður hafa misst stjórn á sér skömmu fyrir andlátið
Heimur

Liam Payne sagður hafa misst stjórn á sér skömmu fyrir andlátið

Fimm handteknir eftir að skotvopn fundust í tveimur bílum á Akureyri
Innlent

Fimm handteknir eftir að skotvopn fundust í tveimur bílum á Akureyri

Einar Sindrason er fallinn frá
Minning

Einar Sindrason er fallinn frá

Sopranos leikarinn Vincent Pastore látinn
Heimur

Sopranos leikarinn Vincent Pastore látinn

Þrjú systkini náðu afburðaárangri í prófum í skugga þjóðarmorðsins á Gaza
Heimur

Þrjú systkini náðu afburðaárangri í prófum í skugga þjóðarmorðsins á Gaza

Fólk

Edda Björgvins heldur uppi stuðinu í miðbænum
Myndband
Fólk

Edda Björgvins heldur uppi stuðinu í miðbænum

Stuð í sólinni
Pálmi Gestsson gagnrýnir „flissara“ á Facebook
Fólk

Pálmi Gestsson gagnrýnir „flissara“ á Facebook

Fimm duldar ástæður fyrir því að þú laðast alltaf að röngu fólki
Fólk

Fimm duldar ástæður fyrir því að þú laðast alltaf að röngu fólki

María ræðir ferilinn, barnsmissinn og uppgjörið við fortíðina
Fólk

María ræðir ferilinn, barnsmissinn og uppgjörið við fortíðina

Tíu hagnýt ráð gegn vanvirðingu
Fólk

Tíu hagnýt ráð gegn vanvirðingu

Loka auglýsingu