Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Innlent

Sextán ára stúlka í Reykja­vík tók eigin nauðgun upp á síma

Heimur

Sveit­ar­stjóri rek­inn eftir að upp komst um klám­mynda­gerð

Peningar

Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

Innlent

Íris „elti­hrellir“ og fjöl­skylda sögð hafa elt brota­þola heim úr rétt­ar­salnum

Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Innlent

„Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá mynd af mér not­aða með þessum hætti“

Innlent

For­eldrar Hönnuh Jane neita að kalla harm­leik­inn á Krýsu­vík­ur­vegi slys

Innlent

Kona fékk reikn­ing fyrir bíl sem var ekki einu sinni á land­inu

Fólk

Glæsileg fjöl­skyldupara­dís í Graf­ar­vogi leitar nýrra eig­enda

Innlent

Trygg­inga­stofnun svarar fyrir sig eftir harða gagn­rýni á Alþingi

Móðir stökk fram af kletti með börnin sín

Var neitað um hjálp á lög­reglu­stöð

Móðir stökk fram af kletti með börnin sín
Helen Wright ásamt eig­in­manni sínum og tveimur börnum Rannsaka við­brögð lög­reglu eftir að móðir fékk ekki aðstoð fyrir harm­leik­inn Mynd: Gofundme

Helena Wright ung móðir frá Suður-Ástralíu svipti sig og sín tvö börn lífi. Helena stökk fram af kletti við Cape Nort­hum­ber­land ásamt tveimur börnum sínum, hinni 23 mán­aða gömlu Hazel og þriggja mán­aða gömlu Lewis.

Lík Helenu og Hazel fund­ust í sjónum og voru dregin upp af sjó­mönnum á staðnum. Leit að ung­barn­inu Lewis var hætt eftir mikla leit á landi og sjó þar sem lög­regla telur engar líkur á að hann hafi lifað af. Leitað er áfram með­fram strönd­inni.

Fram kemur að Helena hafi mætt á lög­reglu­stöð­ina í Mt Gambier dag­inn áður en hún lést og beðið um aðstoð en hafi verið vísað frá. Lög­reglan í Suður-Ástralíu sætir mik­illi gagn­rýni og þrýst­ingi um að útskýra hvað gerð­ist á lög­reglu­stöð­inni.

Vinur fjöl­skyld­unnar hóf söfnun á GoFundMe til að styðja við bakið á eft­ir­lif­andi eig­in­manni og föður, Brad Wright og til að fjár­magna útför­ina ásamt flugi fyrir fjöl­skyldu Helenu sem býr í Eist­landi.

Lög­reglan rann­sakar málið sem morð- og sjálfs­víg (murder-suicide) og úti­lokar að aðrir teng­ist mál­inu. Málið er nú í höndum dán­ar­dóm­stjóra (coroner).

Dagarnir fyrir harmleikinn

Nágrannar sögðu hana virð­ast vera „frá­bæra móður“. Skömmu áður sást hún reglu­lega úti í garði að ýta dóttur sinni á rólum tímunum saman eða sinna garð­inum sínum, sem hún var mjög stolt af. Hún og eig­in­maður hennar voru mjög trúuð og mættu sam­visku­sam­lega í kirkju á hverjum sunnu­degi og eyddi hún oft miklum tíma í að sauma föt á börnin sín.

Þrátt fyrir að virð­ast róleg út á við, sögðu þeir sem stóðu henni næst að hún hefði aug­ljós­lega verið þung­lynd og átt erfitt upp­dráttar. Litli sonur hennar, Lewis, var aðeins þriggja mán­aða gam­all og benda vís­bend­ingar til þess að hún hafi mögu­lega glímt við alvar­legt fæð­ing­ar­þung­lyndi.

Ástand hennar versn­aði til muna á sunnu­deg­inum 26. júlí, þegar hún mætti á lög­reglu­stöð­ina í Mount Gambier aug­ljós­lega í mik­illi geðs­hrær­ingu til að biðja um hjálp, en var snúið frá. Morg­un­inn eftir mánu­dag­inn 27. júlí hafði vinur hennar svo miklar áhyggjur að hann hringdi í lög­reglu og bað um aðstoða vel­ferð­ar­eft­ir­lits­ins. Þegar lög­reglan mætti á heim­ilið um klukkan 9:30 var engin heima og hún þegar lögð af stað í átt að klett­unum.

Ef þú eða ein­hver sem þú þekkir glímir við alvar­legt þung­lyndi, van­líðan eða sjálfs­vígs­hugs­anir er mik­il­vægt að leita hjálpar taf­ar­laust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Níu ára stúlka lést eftir að hafa orðið fyrir bíl á Kanarí­eyjum

Ekki hefur verið greint frá nafni stúlkunnar eða þjóðerni hennar.
Heimur

Dæmd í fang­elsi fyrir að van­rækja börn og fela þau fyrir for­eldrum

Pólitík

Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra

Heimur

Heimur

Einmana kart­öflu­flaga olli upp­námi á net­inu

Í óopnuðum poka af Wavy Lay’s kartöfluflögum var ein heil flaga
Heimur

Lög­reglan þver­tekur fyrir að hafa teiknað typpi vilj­andi

Heimur

Lög­reglu­stjóri í Lundúnum úti­lokar ekki að fleiri konur stígi fram vegna Russell Brand

Heimur

Langþráð heim­koma páfa til Perú í skugga veik­inda

Heimur

Cohen-bræður snúa aftur eftir átta ára aðskilnað

Heimur

Ítalskur kokkur rek­inn eftir að hann neit­aði að setja ananas á pítsu