1
Minning

Hallgrímur Jónasson er fallinn frá

2
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

3
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

4
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

5
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

6
Innlent

Kona Hugleiks Dagssonar var rænd

7
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

8
Innlent

Fékk vinagreiða hjá almannatengli

9
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

10
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

Til baka

Íslenskur leigubílsjóri furðar sig á að vera í Epstein-skjölunum

„Mér finnst þetta bara svo fáránlegt“

Leifsstöð/Leigubílar
Leigubílar við LeifsstöðMyndin tengist ekki fréttinni beint.
Mynd: Víkingur

Kristján Jón Karlsson fyrrverandi leigubílsstjóri man ekki eftir að hafa keyrt barnaníðinginn Ghislaine Maxwell frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur enda um tólf ár síðan.

Nafn leigubílsstjórans er meðal fjölmargra nafna sem fram koma í nýjustu birtingu Epstein-skjalanna en í þetta skiptið birti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjana um þrjár milljónir skjala og enn bíða álíka mörg skjöl eftir birtingu.

101 hótel reykjavík
101 Hótel ReykjavíkMaxwell gisti fjórar nætur á hótelinu
Mynd: Skjáskot/Ja.is

Þó að fjöldi persóna sem fram koma í skjölunum hafi átt í afar vafasömum samskiptum við þau Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell, er Kristján Jón ekki einn þeirra. Maxwell var hér á landi árið 2013 til þess að koma fram á ráðstefnu Ólafs Ragnars Grímssonar, Hringborð Norðurslóða (e. Artic Circle) til að ræða um hættur sem steðja að hafinu. Samkvæmt skjölunum gisti Maxwell fjórar nætur á 101 Hotel Reykjavík.

skjöl
Mynd: Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjana

Mannlíf heyrði í Kristjáni hljóðið og spurði hann hvort hann muni eitthvað eftir skutlinu en í skjölunum kemur fram að Maxwell hafi greitt 16.000 krónur fyrir ferðina. Óhætt er að segja að hann hafi komið af fjöllum.

„Á ég að hafa keyrt hana? Ég man ekkert eftir því,“ svaraði Kristinn. „Ég get ekki ímyndað mér hvernig mitt nafn hefur komist þarna inn,“ bætti hann við hlæjandi.

En hvað finnst Kristni um það að vera í skjölunum alræmdu?

Kristján Jón skellihlær og segir: „Ég er bara ekki alveg að kaupa þetta. Ég meina mér finnst þetta bara svo fáránlegt en þetta náttúrulega skýrir það af hverju er talað um að þetta séu einhverjar margar milljónir skjala, því má nú aldeilis fyrr vera.“

Kristinn Jón er ekki eini Íslendingurinn sem birtist í skjölunum en listamaðurinn Ólafur Elísson er þar líka en aðeins í tengslum við lista yfir listamenn sem komu til greina til þess að skreyta hina alræmdu eyju Epsteins en barnaníðingnum leist ekki á list Ólafs. Þá eru forsetahjónin fyrrverandi, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Mousaieff í skjölunum en Dorrit og Jeffrey voru nágrannar á árum áður. Ekkert bendir til þess að Epstein hafi þekkt Ólaf Ragnar sérstaklega.

Loks hefur mbl.is greint frá því að Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, komi fyrir í skjölunum, en það er eins með hann og Kristján leigubílstjóra, að nöfn þeirra koma einfaldlega fram í gögnum sem send hafa verið Epstein.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Hvarf sporlaust í desember árið 2020
Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll
Heimur

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

Flugvél nauðlenti í New York
Myndband
Heimur

Flugvél nauðlenti í New York

Heyannir á Árbæjarsafni
Myndir
Menning

Heyannir á Árbæjarsafni

Arnar Már hrækti á lögreglumann
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón
Innlent

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn
Heimur

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni
Myndir
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Ræktanirnar voru nokkuð stórar og ætluð til sölu og dreifingar
Arnar Már hrækti á lögreglumann
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

Loka auglýsingu