
Talsverður erill var hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn sólarhring, samkvæmt Facebook-færslu sem Slökkviliðið birti í morgun.
Aðallega var um að ræða sjúkraflutninga en alls voru 115 sjúkraflutningar framkvæmdar, þar af 45 í nótt.
Þá var nóg að gera hjá dælubílum Slökkviliðsins en síðastliðinn sólarhring fóru þeir í sex útköll en hæst ber útkallið í Korngarða þar sem sprengingin varð í gærmorgun. Einnig voru þrjú útköll vegna vatnsleka og eitt vegna roksins í nótt, en lögreglan bað Slökkviliðið um að aðstoða við að festa þakplötur á húsi í miðbænum í nótt.
Meðfylgjandi er ljósmynd sem Slökkviliðið birti með færslu sinni en ekki fylgdi myndinni frá hvaða útkalli hún var tekin.

Komment