
Mynd: Lára Garðarsdóttir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Magnúsi Fr. Sigurðssyni, 86 ára, en síðast er vitað um Magnúsar þegar hann fór frá Landakoti á Túngötu í Reykjavík um tvöleytið í dag. Magnús, sem er með alzheimer og er vistmaður á Landakoti, er klæddur í ljósbrúnar gallabuxur, gráa flíspeysu og brúna innskó eða mokkasíur, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.
Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Magnúsar, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.
Uppfært: Magnús er kominn í leitirnar.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment