1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

3
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

4
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

5
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

6
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

7
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

8
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

9
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

10
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Til baka

Steinar Jóhann Lúðvíksson er látinn

Kerti
Mynd: Shutterstock

Steinar Jóhann Lúðvíksson, rithöfundur og blaðamaður, er látinn, 84 ára að aldri. Hann lést á lungnadeild Landspítalans 2. apríl síðastliðinn. Frá andlátinu greindi Mbl.is.

Steinar fæddist 30. september árið 1941 í Vestur-Húnavatnssýslu en átti mestan hluta ævi sinnar heima í Garðabæ. Foreldrar hans voru Lúðvík Jóhannesson og Ingibjörg Benediktsdóttir.

Hann útskrifaðist frá Kennaraskóla Íslands árið 1965 og hóf þá störf á Morgunblaðinu, þar sem hann starfaði sem blaðamaður til ársins 1977. Að því loknu tók hann við ritstjórastarfi hjá Frjálsu framtaki hf. og síðar gegndi hann stöðu útgáfustjóra hjá Erni og Örlygi. Frá árinu 1983 og fram til 2006 var hann aðalritstjóri Frjáls framtaks.

Steinar var virkur í starfi íþróttahreyfingarinnar og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Hann var meðal annars formaður Samtaka íþróttafréttamanna um tíma og telst til frumkvöðla í íþróttafréttamennsku á Íslandi. Þá var hann ötull stuðningsmaður Stjörnunnar í Garðabæ, sat í stjórn félagsins og skrifaði sögu þess. Einnig var hann varaformaður Handknattleikssambands Íslands og átti sæti í stjórn Afreksmannasjóðs ÍSÍ.

Rithöfundarferill hans var afar umfangsmikill og spannaði nær sex áratugi. Hann gaf út tæplega 60 bækur á árunum 1965 til 2024. Þar ber hæst umfangsmikið ritverk um björgunar- og sjóslysasögu Íslands, Þrautgóðir á raunastund, sem kom út í 20 bindum, auk Sögu Garðabæjar í fjórum bindum. Þá skrifaði hann fjölda bóka um íþróttir og sögu þeirra á Íslandi.

Fyrir störf sín á sviði blaðamennsku og sagnaritunar hlaut Steinar riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 2018.

Steinar kvæntist Gullveigu T. Sæmundsdóttur árið 1966. Þau eignuðust tvö börn, Lúðvík Örn og Ingibjörgu Hrund, sem lést ung að aldri. Barnabörn þeirra eru þrjú.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki
Heimur

Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki

Lík lágu á víð og dreif um götuna eftir árásina
Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999
Innlent

Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir
Innlent

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings
Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag
Pólitík

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Dagný Ósk Vestmann er látin
Minning

Dagný Ósk Vestmann er látin

Flosi Kristinsson er fallinn frá
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

Sigurður Hafstein er fallinn frá
Minning

Sigurður Hafstein er fallinn frá

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá
Minning

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu