
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast vegna fjölbreyttra útkalla í nótt og í gærkvöldi, þar sem meðal annars var tilkynnt um ólæti, innbrot, ofbeldi og umferðarslys.
Tilkynnt var um par sem að öskurrífast og var til ama í verslunarmiðstöð í Reykjavík. Þegar lögregla kom á vettvang var karlmaðurinn farinn, en konan var enn til staðar og var henni ekið heim til sín.
Þá barst tilkynning um innbrot í íbúð í Reykjavík þar sem greinilegt var að rótað hafði verið um og að óviðkomandi aðili hefði dvalið þar um tíma. Málið er nú til rannsóknar. Einnig var tilkynnt um innbrot í bifreið við verslunarmiðstöð, en lögregla telur sig þekkja geranda og er það mál einnig til rannsóknar.
Í öðru tilviki óskaði kona eftir aðstoð lögreglu við að finna farsíma sinn sem sendi frá sér staðsetningar. Lögregla hafði uppi á aðilanum sem var með símann, en hann reyndist vopnaður kylfu og undir áhrifum fíkniefna. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa.
Hópslagsmál brutust út í miðborg Reykjavíkur þegar skemmtistaðir voru að loka. Þeir sem sýndu mestan ofbeldisvilja voru handteknir og vistaðir í klefa, en allir voru þeir undir áhrifum áfengis.
Einnig var tilkynnt um ölvaðan mann sem gekk um með hníf og ógnaði fólki. Við komu lögreglu reyndist hann rólegur en mjög ölvaður. Hann var handtekinn og vistaður í klefa.
Í Hafnarfirði kviknaði eldur í ökutæki við fyrirtæki. Slökkvistarf gekk greiðlega og er enginn grunur um íkveikju, en málið er til rannsóknar.
Að lokum var tilkynnt um umferðarslys þar sem bifreið var ekið yfir ljósastaur og hafnaði utan vegar. Sem betur fer urðu engin eða aðeins minniháttar meiðsl á fólki. Málið er til rannsóknar.

Komment