
Alls voru 91 mál skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 17:00 í gær til 05:00 í morgun, samkvæmt dagbók hennar. Hvorki meira né minna en sjö manns gista fangaklefa þegar þetta er ritað. Hér má sjá nokkur dæmi um verkefni lögreglunnar á tímabilinu.
Lögreglan var kölluð til vegna manns í annarlegu ástandi í Kringlunni, þar sem hann var til vandræða. Var hann fjarlægður úr verslunarmiðstöðinni.
Aðili var handtekinn í miðborg Reykjavíkur vegna vopnalagabrots en hann var með hníf á sér.
Annar var handtekinn í miðborginni þar sem hann var til vandræða og stóð í slagsmálum. Í ljós kom að kauði var með fíkniefni í fórum sínum og var hann vistaður í fangaklefa.
Þá var enn einn handtekinn í miðborg Reykjavíkur vegna hótana og var hann látinn gista fangageymslu.
Í miðbæ Hafnarfjarðar voru tveir ökumenn stöðvaðir en þeir reyndust bæði vera undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda í þokkabót.
Annar aðili í miðbæ Hafnarfjarðar var handtekinn þar sem hann gekk um og stal munum úr görðum og ólæstum bifreiðum. Var hann vistaður í fangaklefa.
Í Breiðholtinu var óskað eftir aðstoð lögreglu í heimahús þar sem húsráðandi var í bölvuðum vandræðum með gest og var honum vísað út að beiðni húsráðandans.
Í Grafarvoginum var aðili handtekinn vegna hótana og vörslu fíkniefna og fékk hann að kynnast fangaklefa lögreglunnar.
Þá var ökumaður stöðvaður í Grafarvoginum vegna þess að hann var undir áhrifum fíkniefna og þegar lögreglan athugaði málið betur kom í ljós að bifreiðin sem hann ók var á röngum skráningarmerkjum.

Komment