1
Innlent

Bjössi í World Class segist eiga bílastæðin

2
Fólk

„Ég var ekkert eðlilega leiðinleg við hann fyrst”

3
Pólitík

Amma Snorra Mássonar ósátt við stjórnarandstöðuna

4
Fólk

Edda Björgvins hæðist að stjórnarandstöðunni

5
Innlent

Lýsir „óviðunandi“ aðstæðum á vistheimili, þaðan sem starfskona hvarf

6
Innlent

Fimmtugur karlmaður lést á Miklubrautinni í morgun

7
Innlent

Segir að framundan séu „spennandi tímar fyrir fatlað fólk og öryrkja“

8
Pólitík

Telur þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins hafa framið stjórnarskrárbrot

9
Menning

Heilaskurðlæknir syngur inn á plötu sjúklings síns

10
Innlent

Alvarlegt umferðarslys á Miklubraut

Til baka

Massive Attack sýnir Kneecap stuðning vegna gagnrýni á Ísrael

„Þögnin er hinn raunverulegi skandall“

AFP__20140730__Nic6355538__v2__HighRes__LebanonPalestinianMassiveAttack
Massive Attack í LebanonHljómsveitin stendur með Kneecap.
Mynd: Maya HAUTEFEUILLE / AFP

Breska trip-hop hljómsveitin Massive Attack hefur lýst yfir stuðningi við norður-írska hiphop-tríóið Kneecap, eftir að umtalsverð gagnrýni hefur fallið á þá vegna yfirlýsinga þeirra í þágu Palestínu.

Í gær birti Massive Attack yfirlýsingu á Instagram þar sem hljómsveitin gagnrýndi hversu mikla fordæming Kneecap hefur sætt, sérstaklega í ljósi þess hve lítið er gert úr alvarlegum mannréttindabrotum á Gaza-ströndinni.

„Ef háttsettir stjórnmálamenn hafa hvorki tíma né orð til að fordæma, segjum sem svo, morð á fimmtán sjálfboðaliðum á Gaza, eða ólöglega hungurherferð gegn almennum borgurum sem stríðsaðferð, eða fjöldamorð á þúsundum barna á sama svæði, af hálfu ríkis sem býr yfir nákvæmustu vopnum heims, hversu miklu máli skiptir siðferðisleg ráð þeirra þegar kemur að því hvaða tónlistarmenn eiga að fá að koma fram á tónlistarhátíðum?“ skrifaði hljómsveitin.

„Við höfum í yfir þrjátíu ár talað opinberlega gegn ólöglegur hernámi, aðskilnaðarstefnu og refsileysi gagnvart fjöldamorðum á Palestínumönnum. Við vitum því fullvel bæði hvað þögn kostar persónulega og hvaða afleiðingar það getur haft í atvinnulífinu að sýna samstöðu með kúguðu fólki.“

Kneecap vakti mikla athygli þegar hljómsveitin kom fram á Coachella-tónlistarhátíðinni í apríl, þar sem þau birtu kröftug skilaboð gegn Ísrael á sviðinu. Þau héldu því fram að þau hefðu verið ritskoðuð helgina áður. Skilaboðin sem birtust á skjá við flutning þeirra voru meðal annars:

„Ísrael fremur þjóðarmorð á palestínsku þjóðinni. Bandaríkjastjórn styður þetta með vopnum og fjármagni, þrátt fyrir stríðsglæpi Ísraels. Fokk Ísrael, frjáls Palestína.“

Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Sharon Osbourne kallaði eftir því að vegabréfsáritanir hljómsveitarinnar yrðu afturkallaðar áður en hópurinn færi í aðra tónleikaferð um Norður-Ameríku síðar á árinu. Fljótlega eftir það slitnaði samstarf þeirra við bókunarskrifstofuna Independent Artist Group.

Nýverið báðust Kneecap afsökunar á gömlu myndbandi þar sem þeir virðast kalla eftir dauða breskra þingmanna. Myndbandið var tekið upp á tónleikum í Lundúnum í nóvember 2023 og sýnir einn meðlim hópsins segja: „Eini góði Íhaldsmaðurinn er dauður Íhaldsmaður. Dreptu þingmanninn þinn.“

Massive Attack brugðust við: „Málfar skiptir vissulega máli. Við höfum séð skelfileg morð á kjörnum fulltrúum eins og Jo Cox og David Amess. Það gefur ekki rými fyrir kæruleysi. En hafa stjórnmálamenn og hægrisinnaðir fjölmiðlamenn, sem skipulega skapa siðferðislegt hneyksli út frá orðum ungrar pönkhljómsveitar, en hunsa eða hylma yfir með þjóðarmorði sem fer fram í beinni, þar með talið fjöldamorð á blaðamönnum, raunverulega siðferðislegan rétt til að hafa áhrif á það hverjir megi koma fram á hátíðum?“

Hljómsveitin hélt áfram: „Kneecap eru ekki fréttin. Gaza er fréttin. Þjóðarmorðið er fréttin. Og þögn, samþykki og stuðningur við þessi glæpaverk af hálfu breskra stjórnvalda er hinn raunverulegi skandall. Við stöndum með öllum listamönnum sem hafa siðferðislegt hugrekki til að tala gegn stríðsglæpum Ísraels og áframhaldandi ofsóknum og fjöldamorðum á palestínsku þjóðinni.“

Í kjölfar yfirlýsingar Massive Attack gaf útgáfufyrirtækið Heavenly Recordings í Lundúnum einnig út sameiginlega yfirlýsingu sem var undirrituð af fjölda tónlistarmanna og hljómsveita, þar á meðal Fontaines D.C., Pulp, The Pogues, Thin Lizzy, Sleaford Mods, Paul Weller og öðrum.

„Síðasta vika hefur sýnt skýra, samræmda tilraun til að ritskoða og í raun þagga niður í hljómsveitinni Kneecap,“ segir í yfirlýsingunni. „Í Westminster og breskum fjölmiðlum hafa stjórnmálamenn opinberlega reynt að færa þá úr sviðsljósinu með duldum hótunum, meðal annars varðandi frammistöður þeirra á tónleikum og hátíðum eins og Glastonbury.“

„Í lýðræðisríki ættu hvorki stjórnmálamenn né stjórnmálaflokkar að ákveða hverjir mega koma fram á tónlistarhátíðum. Hvort fólk sé sammála pólitískum skoðunum Kneecap skiptir ekki máli, það er grundvallaratriði fyrir alla listamenn að tjáningarfrelsi sé virt í samfélagi sem metur menningu. Þessi árás verður að vera fordæmd og hæðst að henni.“

Að lokum segir: „Þá er það líka skylda leiðtoga innan tónlistarbransans að verja tjáningarfrelsið, ekki að reyna að þagga niður í röddum sem eru þeim ekki að skapi.“

Rolling Stones sagði frá málinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment


Kristrún Frostadóttir Guðrún Hafsteinsdóttir
Pólitík

Fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokks: „Skammist ykkar og biðjist afsökunar!“

Stór orð og harðar deilur á Alþingi.
Norræna
Innlent

Þrír eldri karlmenn ákærðir fyrir innflutning á kókaíni með Norrænu

palmsugar
Innlent

Tvær innköllunarviðvaranir: Ofnæmisvaldar ekki tilgreindir í asískum matvörum

Skólabraut 10 Bjarg vistheimili
Innlent

Lýsir „óviðunandi“ aðstæðum á vistheimili, þaðan sem starfskona hvarf

Drengurinn
Heimur

Barn lést í heitum bíl á meðan móðir hans lét stækka varirnar

Hildur Sverrisdóttir
Pólitík

Telur þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins hafa framið stjórnarskrárbrot

Gaza
Heimur

Amma missti þrjú barnabörn sín í sprengjuárás Ísraela

Ríkisstjórn Íslands Inga Sæland
Innlent

Segir að framundan séu „spennandi tímar fyrir fatlað fólk og öryrkja“

Atli Þór Sigurðsson
Menning

Heilaskurðlæknir syngur inn á plötu sjúklings síns

Björn Leifsson
Innlent

Bjössi í World Class segist eiga bílastæðin

kerti
Innlent

Fimmtugur karlmaður lést á Miklubrautinni í morgun

Lögreglumótorhjól
Innlent

Lögregla óskar eftir vitnum vegna alvarlegs umferðarslyss

Snorri Másson
Pólitík

Amma Snorra Mássonar ósátt við stjórnarandstöðuna

Heimur

Drengurinn
Heimur

Barn lést í heitum bíl á meðan móðir hans lét stækka varirnar

Móðirin skyldi tvo syni sína eftir í brennandi heitum bíl á meðan hún fór í snyrtiaðgerð
Israel Katz varnarmálaráðherra Ísraels og Benjamin Netanyahu
Heimur

Ísraelar kynna lokalausn fyrir Gaza-búa

Gaza
Heimur

Amma missti þrjú barnabörn sín í sprengjuárás Ísraela

Putin
Heimur

Rússneskir embættismenn og háttsettir stjórnendur falla eins og flugur

Hraðbrautin á Tenerife
Heimur

Maður lést þegar hann varð fyrir fjölda bíla á Tenerife

Stella Thompson
Myndband
Heimur

Þrettán ára stúlka lýsir skelfilegri reynslu í flóðunum í Texas

Loka auglýsingu