
Smittíðni mislinga á Spáni hefur aukist verulega, og Kanaríeyjar eru meðal þeirra svæða sem hafa greint frá flestum tilfellum árið 2025 en greint er frá þessu í spænskum fjölmiðlum.
Af þeim sökum hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin á ný flokkað sjúkdóminn sem landlægan í landinu.
Samkvæmt yfirvöldum Spánar og Kanaríeyja er meginástæðan hnignun í bólusetningarþátttöku, einkum varðandi seinni skammtinn, sem hefur leitt til þess að hjarðónæmi næst ekki að myndast.
Á Kanaríeyjum er bólusetningarþátttaka á fyrsta skammti við 12 mánaða aldur áfram góð, eða um 95–97%. Þátttaka í seinni skammtinum hefur hins vegar dregist saman og er mögulega undir 90% og skilur hluta íbúanna eftir án fullrar verndar.
Faraldurinn á Kanaríeyjum hefur haft áhrif á óbólusett ungbörn yngri en 12 mánaða, sem og börn sem hafa aðeins fengið hluta bólusetninga. Einn heilbrigðisstarfsmaður, sem var fullbólusettur, greindist einnig smitaður en upplifði einungis væg einkenni.

Komment