
Andri Már EggertssonEr venjulega kallaður Nablinn
Mynd: Facebook/Andri Már Eggertsson
Íþróttafréttamaðurinn Andri „Nablinn“ Eggertsson hefur stofnað fyrirtækið AME90 ehf. en greint er frá þessu í Lögbirtingablaðinu.
Tilgangur félagsins er dagskrágerð, skemmtanastjórn, veislustjórn, auglýsingagerð, sköpun, handritsgerð, fjölmiðlun, þáttastjórnun, íþróttafréttamennska, leiklist, íþróttaumfjöllun og fjárfestingar.
Andri er einn í stjórn en Una Hafdís Hauksdóttir er varamaður hans. Andri er einnig framkvæmdastjóri og fer með prókúruumboð.
Heiður Hjaltadóttir er skoðunarmaður félagsins.
Andri hefur á undanförnum árum slegið í gegn fyrir óhefðbundna íþróttaumfjöllun þar sem hann er í lykilhlutverki. Þá birtist hann einnig í sjónvarpsþættinum Bannað að hlæja
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment