1
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

2
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

3
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

4
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

5
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

6
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

7
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

8
Heimur

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni

9
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

10
Heimur

Kona ákærð fyrir morð á breskri fjögurra barna móður í Frakklandi

Til baka

Þungur rekstur Kleina bakvið glansmyndina

Kleini kynnti verslunarrekstur en var strax kominn í rekstrarvandræði árið áður. Hann hefur ekki staðið skil á ársreikningi.

Kleini
KleiniEr nú til heimilis á Húsavík, en sýndi íburðarmikinn lífsstíl á samfélagsmiðlum.
Mynd: Mynd: Instagram-skjáskot

Áhrifavaldurinn Kristján Einar Sigurbjörnsson, sem gengur undir nafninu Kleini, hefur ekki staðið skil á ársreikningi á einkahlutafélagi sínu sem hann stofnaði utan um kaup og sölu á húsgögnum.

Greint var frá því í Smartlandinu á mbl.is haustið 2024 að Kleini hyggðist hefja verslunarrekstur. „Húsgögnin sem verða í boði munu vera frábrugðin því sem nú þegar er til á markaðnum á Íslandi. Við ætlum að leggja áherslu á fjölbreytileika og nýjungar,“ sagði hann í viðtali við Smartland. „Opnun verslunarinnar mun fara fram þegar markaðurinn hefur verið rýndur og greindur til að tryggja að vöruframboðið mæti þörfum og óskum viðskiptavinanna,“ sagði hann.

Í framhaldsfrétt Smartlandsins í desember sama ár kom fram að verslunin héti Heimilisheild og að Kleini ætlaði ekki að leggja út fé við stofnun fyrirtækisins.

„Það hefur tekið tíma að koma þessu af stað, því ég ákvað í byrjun að byggja þetta frá grunni án þess að leggja út krónu úr eigin vasa. Ég byrjaði með eina vöru, gerði hana upp, seldi hana og keypti tvær vörur í staðinn. Þannig hef ég smám saman byggt þetta upp – algjörlega með vinnunni minni og án fjár úr mínum vasa eða annars. Því ég trúi því að ef maður leggur á sig vinnuna sjálfur þá skilar það sér,“ sagði hann.

Síðar í sama mánuði kynnti verslunin lagerhreinsun og virtist eingöngu hafa til sölu notaðar dýnur og stundaði samkeppni við Góða hirðinn. Fleira hefur ekki birst frá versluninni á samfélagsmiðlum.

Kleini, sem sýndi oft töluverðan íburð á samfélagsmiðlum, meðal annars með myndbandi þar sem hann gaf unnustu sinni Porsche, sem fór strax á sölu í kjölfarið, virtist þegar vera kominn í rekstrarvanda árið áður en hann hóf rekstur verslunarinnar.

Félagið að baki rekstrinum, KLHB ehf, tapaði 2,6 milljónum króna á fyrsta rekstrarárinu, sem var árið áður en verslunin opnaði. Þá taldi það fram 2,8 milljónir króna í tekjur, en rekstrargjöld voru næstum tvöfalt meiri en tekjurnar. Viðskiptaskuldir námu 5,4 milljónum króna.

Frekari upplýsingar fást ekki um rekstur félags Kleina. Hann hefur ekki skilað ársreikningi fyrir árið 2024, en lög og reglur kveðja á um að það skuli gert fyrir lok ágúst ár hvert, hvort sem rekstur er í félagi eða ekki. Er það á ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra, en Kleini er framkvæmdastjóri og situr í stjórn.

Upphaflega hét einkahlutafélag hans Kristján Einar ehf. og hafði þann tilgang að stunda útleigu innréttaðra sendla (Campera), kaup og sölu á skyldum vörum, rekstur fasteigna og lánastarfsemi. Nafni þess var breytt í ágúst 2023 þegar fram kom að Kleini ætlaði í rekstur með þáverandi unnustu sinni, Hafdísi Björgu Kristjánsdóttur einkaþjálfara.

Hafdís steig fram í gær og greindi frá alvarlegu ofbeldi hans í hennar garð. Fleiri fyrrverandi kærustur stigu fram í kjölfarið. Þá var Kleini handtekinn vegna rannsóknar á kynferðisbroti á Akureyri um helgina, ásamt tveimur öðrum mönnum.

Þá hefur áður komið fram að Kleini var dæmdur fyrir ofbeldisfullt rán á Spáni, sem hann sagði sjálfur að hefðu verið „smá fyllerísslagsmál“, en þar fór hann um ásamt öðrum manni og rændi 40 evrum af vegfaranda, ógnaði honum með eggvopni, barði síðan mann og konu sem reyndi að hjálpa honum.

Ekki hefur náðst í Kleina vegna málsins og lögmaður hans í fyrra líkamsárásarmáli á Íslandi vill hvorki játa né neita að hann fari með mál hans í dag.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýtt upphaf eftir skilnað
Fólk

Nýtt upphaf eftir skilnað

Einvera sögð lykill að sjálfsuppgötvun og auknum lífsgæðum
Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Fjórir Palestínumenn og ólöglegur landnemi létust í blóðugum átökum á Vesturbakkanum
Heimur

Fjórir Palestínumenn og ólöglegur landnemi létust í blóðugum átökum á Vesturbakkanum

Íslandsmótið í sjósundi 2026
Myndband
Sport

Íslandsmótið í sjósundi 2026

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum
Myndband
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Peningar

Nýtt fyrirtæki Guðmundar í Brimi greiðir yfir milljarð í arð
Peningar

Nýtt fyrirtæki Guðmundar í Brimi greiðir yfir milljarð í arð

Metár og eigendaskipti hjá Þórsnesi í Stykkishólmi
Lilja Dögg og Gylfi Þór á eftirsóttum lista
Peningar

Lilja Dögg og Gylfi Þór á eftirsóttum lista

Engar eignir fundust í þrotabúi Pizza 67
Peningar

Engar eignir fundust í þrotabúi Pizza 67

Brauð & Co komið í hendur stórfyrirtækis
Peningar

Brauð & Co komið í hendur stórfyrirtækis

Móðurfélag Ölgerðarinnar hagnaðist gríðarlega
Peningar

Móðurfélag Ölgerðarinnar hagnaðist gríðarlega

Bullandi hagnaður hjá Nóa Siríus
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Nóa Siríus

Loka auglýsingu