Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Besta leiðin til að panta kaffið þitt ef þú vilt huga að heilsunni

Næringar­fræðingur segir þetta reyna verulega á lifrina

Viltu hámarka orkuna?
Viltu hámarka ork­una? Hér er kaffi­leið­ar­vísir nær­ing­ar­fræð­ings­ins Mynd: Unsplash/Emre

Kaffi spilar stórt hlutverk í daglegu lífi margra, en skoðanir á heilsu­bótum þess eru skiptar. Sumir óttast að kaffi hækki streitu­hormón og raski svefni, á meðan aðrir fagna ríkulegu magni andoxunar­efna. Samkvæmt Laure Hyvernat, næringar­fræðingi og hómópata snýst málið sjaldnast um kaffið sjálft, heldur hvernig og hvenær við drekkum það.

„Kaffi getur verið öflugt fyrir brennsluna ef það er valið af skynsemi, drukkið í réttu magni og á réttum tíma dags,“ segir Hyvernat í samtali við tímaritið Vogue. Hún dregur hér upp hagnýta leið­beiningu um hvernig megi hámarka heilsu­bætur kaffisins.

Svart espresso er best fyrir magann

Fyrir þá sem vilja drekka kaffið sitt á sem hollastan hátt eru fréttirnar einfaldar: Svart kaffi án sykurs og mjólkur, eins og espresso eða ristretto, er besti kosturinn. Slíkt kaffi er afar ríkt af fjöl­fenólum (andoxunar­efnum). Þar sem vökva­magnið er lítið veldur það síður ertingu hjá þeim sem eru með viðkvæman maga eða ristil.

Skyndikaffi og koffínlaust kaffi neðst á listanum


Hyvernat varar sérstak­lega við skyndi­kaffi (instant kaffi). Það er mikið brennt, sem eykur myndun efnisins akrýl­amíðs, en eyði­leggur jafnframt hollu andoxunar­efnin. „Við missum alla kostina en sitjum eftir með örvandi og ávana­bindandi ókosti kaffisins,“ segir hún.

Þá getur koffín­laust kaffi einnig reynst óhollt, þar sem fram­leiðendur nota oft kemísk efni við eyðinguna sem skilja eftir sig leifar. Hún mælir fremur með koffín­lausu kaffi sem unnið er með svokallaðri Swiss Water aðferð.

Mestu „sykur­slysin“ eru þó bragð­bættir kaffi­drykkir, eins og dæmi­gerðir haust­drykkir með sírópi. Þeir ýta upp blóð­sykrinum og skilja fólk eftir algjör­lega orkulaust þegar líður á daginn.

Varar við kaffi með mjólk


Margir eiga erfitt með að sleppa mjólkinni, en Hyvernat bendir á að sambland koffíns og laktósa (mjólkur­sykurs) geti verið mjög þungt fyrir lifrina og rænt líkamann orku.

Hún leggur ríka áherslu á að fólk sem glímir við insúlín­viðnám, hormóna­tengdar bólur eða aðra hormóna­sjúkdóma (eins og PCOS og endómetríósu) ætti alfarið að sleppa mjólkur­kaffi. Fyrir heilbrigða einstaklinga sem ómögulega geta sleppt mjólkinni mælir hún með hágæða, lífrænni nýmjólk frekar en léttmjólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“