1
Heimur

Aukning MS-sjúkdómsins rakin til lífsstíls

2
Innlent

Lögreglan fellir niður mál gegn Heiðu Ósk

3
Fólk

Hér getur stórfjölskyldan teygt almennilega úr sér

4
Innlent

Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun

5
Fólk

Eitt óvenjulegasta hús Íslands sett á sölu

6
Innlent

Segir borgarstjóra flokka íbúa eftir arðsemi

7
Fólk

Of mikill svefn getur verið hættumerki

8
Fólk

Íslensk söngstjarna selur Konu

9
Innlent

Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg

10
Innlent

VR hótar uppsögn samninga

Til baka

Ælan gæti kostað hálfa milljón króna

Singapúr er þekkt fyrir strangar reglur um hegðun og umgengni

Almenningssamgöngur Singapúr
Strætóstöð í Singapúr
Mynd: ROSLAN RAHMAN / AFP

Farþegar almenningsvagna í Singapúr geta átt yfir höfði sér háar sektir fyrir ýmiss konar óæskilega hegðun, þar á meðal að borða um borð eða leggja fæturna á sæti. Nýjar reglur þess efnis voru kynntar af samgönguyfirvöldum landsins á mánudag.

Samkvæmt reglunum getur sekt fyrir að leggja fæturna á sæti numið allt að 400 Bandaríkjadölum en það er tæplega 50 þúsund íslenskar krónmur. Mun þyngri viðurlög geta fylgt því að óhreinka strætisvagn eða skapa hættu fyrir aðra farþega, en fyrir slík brot getur sektin farið allt upp í 3.900 Bandaríkjadali, sem jafngildir 475 þúsund í íslenskum krónum.

Í leiðbeiningum yfirvalda kemur fram að alvarleg óhreinkun geti meðal annars falist í því að æla, kasta af sér vatni eða hrækja í vagninum. Einnig getur það fallið undir reglurnar að óhreinka sæti, gólf eða handrið með líkamsvökvum, mat, leðju eða fitu.

Singapúr er þekkt fyrir strangar reglur um hegðun og umgengni á almannafæri og hefur fyrir vikið fengið viðurnefnið „Fine City“. Það vísar bæði til þess hversu snyrtileg borgin þykir og þess mikla fjölda sekta sem hægt er að fá fyrir ýmis brot.

Nýju reglurnar færa reglur í strætisvögnum nær þeim sem þegar gilda í neðanjarðarlestakerfi Singapúr. Að sögn samgönguyfirvalda er markmiðið að skapa öruggara, tillitssamara og þægilegra umhverfi í almenningssamgöngum.

Yfirvöld taka þó fram að gæta eigi sanngirni við framkvæmd reglnanna. Sérstakt tillit verði tekið til aðstæðna farþega sem glíma við líkamleg eða andleg veikindi.

Singapúr hefur lengi beitt ströngum reglum til að halda almenningsrýmum hreinum. Þekkt dæmi er bann við sölu tyggigúmmís sem tók gildi árið 1992.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Eygló og Eymundur verðlaunuð fyrir gott starf
Fólk

Eygló og Eymundur verðlaunuð fyrir gott starf

Móðir jörð heiðruð
Mikill verðmunur á fjarskiptapökkum
Peningar

Mikill verðmunur á fjarskiptapökkum

Óhugnanlegar tilkynningar úr Árbæ teknar mjög alvarlega
Innlent

Óhugnanlegar tilkynningar úr Árbæ teknar mjög alvarlega

Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun
Innlent

Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun

Guðjón Þórðarson í „bölvuðu basli“
Fólk

Guðjón Þórðarson í „bölvuðu basli“

Sex algeng þrifamistök sem geta haft slæmar afleiðingar
Fólk

Sex algeng þrifamistök sem geta haft slæmar afleiðingar

Ingibjörg ætlar að dáleiða heilan hóp í Sólheimum
Menning

Ingibjörg ætlar að dáleiða heilan hóp í Sólheimum

Íslensk söngstjarna selur Konu
Fólk

Íslensk söngstjarna selur Konu

Eitt óvenjulegasta hús Íslands sett á sölu
Myndir
Fólk

Eitt óvenjulegasta hús Íslands sett á sölu

Aðfinnsluvert háttalag einstaklings á sólbaðsstofu
Innlent

Aðfinnsluvert háttalag einstaklings á sólbaðsstofu

Aukning MS-sjúkdómsins rakin til lífsstíls
Heimur

Aukning MS-sjúkdómsins rakin til lífsstíls

Heimur

Ælan gæti kostað hálfa milljón króna
Heimur

Ælan gæti kostað hálfa milljón króna

Singapúr er þekkt fyrir strangar reglur um hegðun og umgengni
Reyndi að flýja eftir dóminn og réðst á lögreglumenn
Myndband
Heimur

Reyndi að flýja eftir dóminn og réðst á lögreglumenn

Aukning MS-sjúkdómsins rakin til lífsstíls
Heimur

Aukning MS-sjúkdómsins rakin til lífsstíls

Harry og Meghan flýja Bretland á ný
Heimur

Harry og Meghan flýja Bretland á ný

Kennaravinkonur játuðu kynferðisbrot gegn börnum
Heimur

Kennaravinkonur játuðu kynferðisbrot gegn börnum

Grunaður um að skipuleggja hryðjuverk gegn eigin samstarfsmönnum
Heimur

Grunaður um að skipuleggja hryðjuverk gegn eigin samstarfsmönnum

Loka auglýsingu