1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

3
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

4
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

5
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

6
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

7
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

8
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

9
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

10
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Til baka

Eygló og Eymundur verðlaunuð fyrir gott starf

Móðir jörð heiðruð

Móðir Jörð
Eygló og Eymundur í Vallanesi fengu lífrænu viðurkenninguna
Mynd: Móðir Jörð

Hjónin Eygló Björk Ólafsdóttir og Eymundur Magnússon, eigendur fyrirtækisins Móðir jörð í Vallanesi, hafa hlotið viðurkenningu atvinnuvegaráðherra fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni framleiðslu. Viðurkenningin var afhent á degi lífrænna afurða þann 19. september síðastliðinn.

Móðir jörð á Fljótsdalshéraði hefur um árabil verið brautryðjandi í lífrænni ræktun og matvælaframleiðslu hér á landi. Býlið fékk formlega lífræna vottun árið 1995 en ræktun með þeim aðferðum á sér mun lengri sögu í Vallanesi.

Í dag er stunduð fjölbreytt ræktun á korni og grænmeti á bænum, auk þess sem þar fer fram fullvinnsla matvæla úr hráefni sem að stórum hluta er ræktað á staðnum. Þá hefur verið lögð mikil áhersla á skógrækt, skjólbelti og að auka notkun á íslensku byggi til manneldis með þróun næringarríkra vara og rétta.

Áhrif langt út fyrir eigin starfsemi

Í rökstuðningi kemur fram að árangur þeirra Eyglóar og Eymundar verði ekki aðeins mældur í uppbyggingunni í Vallanesi. Þau hafi rutt brautina í nýtingu staðbundinna auðlinda og miðlað dýrmætri þekkingu sem stuðlað hefur að auknum skilningi á möguleikum lífrænnar ræktunar á Íslandi.

Atvinnuvegaráðuneytið óskaði eftir tilnefningum til verðlaunanna, en til greina komu aðilar sem þykja hafa skarað fram úr á sviði framleiðslu, nýsköpunar, vöruþróunar, markaðssetningar, sölu eða kynningar á lífrænum vörum. Afhending viðurkenningarinnar er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda til að efla lífræna framleiðslu.

Eymundur tók við viðurkenningunni fyrir hönd þeirra hjóna úr hendi Bjarka Pjeturssonar, sérfræðings á skrifstofu landgæða og velferð dýra í atvinnuvegaráðuneytinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Strætó hefur aldrei verið verri
Skoðun

Brynjar Birgisson

Strætó hefur aldrei verið verri

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann
Heimur

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Myndir
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti
Innlent

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Loka auglýsingu