
Í gær spurði Mannlíf lesendur sína hvort Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri ætti að víkja úr embætti og voru svörin mjög einhliða en greint var frá því fyrir stuttu að embætti ríkislögreglustjóra hafi greitt ráðgjafafyrirtækinu Intra ráðgjöf 160 milljónir króna. Um er að ræða 120 reikninga sem gefnir hafa verið út á átta ára tímabili.
Sigríður hefur sagt að hún hafi gert mistök að bjóða ekki út þau verkefni sem Intra sinnti en talið er að Sigríður eigi í hættu að vera vikið úr embætti vegna málsins.
Fyrir utan þá sem tóku þátt í könnun Mannlífs voru tæplega þúsund athugasemdir skrifaðar á Facebook-hlekk Mannlífs þar sem nær allir voru á því að Sigríður ætti ekki að halda áfram.
„Það á að víkja öllum sem fara ósparlega með fé skattborgara úr starfi. Það hefur tíðkast allt of lengi á litla Íslandi að Yfirmenn hafi notað fé ósparlega og sagt að það þurfi að klára úthlutað fé og meira til svo fjárúthlutun verði ekki skorin niður árið eftir. Þannig hafa skussarnir verið verðlaunaðir ár eftir ár en þeir sem hafa spara hefur verið refsað fyrir það. Þetta hefur mér alltaf fundist mjög undarlegir stjórnunar hættir hjá bæði ríki og sveitafélögum,“ skrifaði Rósar Aðalsteinsson um málið á í athugasemd við könnun Mannlífs.
„Burtu með hana og engan starfslokasamning,“ skrifar Ingibjörg Ottesen um Sigríði.
„Er það einhver spurning?“ spyr Margrét Óskarsdóttir.

Komment