1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

3
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

4
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

5
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

6
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

7
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

8
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

9
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

10
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Til baka

Nálægð við innsta hring Epsteins

„Ég get ekki útilokað það 100 prósent“

dorrit-epstein-mnl

Gögn sem komu fram í Epstein-skjölunum gefa til kynna að Dorrit Moussaieff hafi verið félagslega staðsett nær innsta kjarna umhverfis Jeffrey Epstein en áður hafði verið gert ráð fyrir. Dorrit hefur um árabil verið virkur þátttakandi í félagslífi breskrar yfirstéttar og liggur fyrir að hún var meðal gesta í 51 árs afmæli Ghislaine Maxwell, samverkakonu Epsteins, sem nú afplánar fangelsisdóm. Meðal annarra gesta þar var einnig Andrés prins, sem síðar var ýtt út úr bresku konungsfjölskyldunni.

Í umfjöllun Mannlífs er leitast við að varpa ljósi á raunveruleg tengsl Dorritar við Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell, meðal annars í gegnum tvo tölvupósta sem vísa til Dorritar. Í öðrum þeirra greinir rithöfundurinn og nýaldarspekingurinn Deepak Chopra Epstein frá því að Dorrit og „íslenski eiginmaður hennar“ séu stödd á The St. Regis Aspen Resort, lúxushóteli í Aspen í Colorado, þar sem Chopra stýrði hugleiðslu. Þetta átti sér stað árið 2016, skömmu eftir að Ólafur Ragnar Grímsson lét af embætti forseta Íslands.

Hinn tölvupósturinn var sendur á milli einstaklinga sem taldir eru til innsta hrings Epsteins og varðar Dorrit á tíma hennar sem forsetafrú árið 2011. Sendandi póstsins var Ghislaine Maxwell og viðtakandinn Leon, sem talið er að sé auðkýfingurinn Leon Black. Hann greiddi Epstein samtals 158 milljónir Bandaríkjadala á árunum 2012 til 2017 og var helsta tekjulind hans á þeim tíma.

Í póstinum skrifar Maxwell:

„Hæ Leon. Ghislaine hér. Ég sat með Dorrit sem sagði mér að ég ætti að senda þér tölvupóst strax!“

Síðar framsendi hún skilaboðin til Epsteins honum til upplýsinga. Tilefni póstsins var að bjóða þjónustu Maxwell við að velja fólk í stjórnir fyrirtækja. Árið eftir hóf Epstein að fá mjög háar greiðslur frá Black, allt að 40 milljónir dala á ári, fyrir ráðgjafarþjónustu. Í kjölfarið jókst spenna í samskiptum þeirra. Samkvæmt greiningu The New York Times lagði Black síðar hundruð þúsunda dala, jafnvel tugmilljónir króna, inn á bankareikninga að minnsta kosti þriggja kvenna sem tengdust Epstein. Black sjálfur hafði verið sakaður um nauðgun af minnst tveimur konum í húsi Epsteins á Manhattan í New York.

Í viðtali við Mannlíf er Dorrit spurð beint hvort hún þekki Leon Black og hafi hitt hann:

„Já, ég þekki Black-fjölskylduna. Ég hef þekkt þau í marga áratugi. Þau eru vinir mínir.“

Þegar hún er spurð hvort hún útiloki að hafa setið með Ghislaine Maxwell og rætt um Leon Black, líkt og tölvupósturinn gefur til kynna, svarar hún:

„Ég get ekki útilokað það 100%, en ég sé nákvæmlega enga ástæðu fyrir því að ég hefði átt að nefna hann, sérstaklega í þessu samhengi. Herra Black er mikill listasafnari. Ég gæti hafa minnst á list hans, en örugglega ekki viðskipti hans. Og ég skil satt best að segja ekki hvers vegna ég hefði nefnt þetta við Ghislaine. Fyrirtæki hans er skráð á markað. Síðasta manneskjan sem þyrfti að gefa þeim ráð er Ghislaine eða ég.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu