Ólafur Stefánsson, einn besti handboltaleikmaður 21. aldarinnar, hefur stofnað fyrirtækið Afreksmanneskjan slf. Greint er frá þessu í Lögbirtingablaðinu.
Hann er þó ekki einn á ferð en Stefanía Þóra Ólafsdóttir stofnaði fyrirtækið með handboltamanninum knáa. Ólafur fer með prókúruumboð fyrirtækisins en tilgangur félagsins er fræðsla í að ná afreksárangri í námi og íþróttum.
Það ætti að vera viðeigandi í ljósi þess hversu vel Ólafur hefur sjálfur staðið sig í íþróttaheiminum en hann leiddi íslenska landsliðið á Ólympíuleikunum þegar það lenti í 2. sæti í Kína árið 2008. Þá náði liðið 3. sæti á EM í handbolta tveimur árum síðar.
Þá hefur hann orðið deildar- og Evrópumeistari með félagsliðum sínum oftar en flestir auk þess að hafa verið kosinn Íþróttamaður ársins á Íslandi fjórum sinnum.


Komment