1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

5
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

6
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

7
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

8
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

9
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

10
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Til baka

Leyniáætlun Mossad um uppreisn í Íran rann út í sandinn

Trump og Netanyahu studdust við umdeilda áætlun Mossad um stjórnarskipti

Félagarnir á góðri stund.
Trump og NetanyahuStríðsfélagarnir á góðri stundu

Ísraelska leyniþjónustan Mossad hafði áform um að kynda undir mótmælum í Íran sem gætu leitt til falls stjórnvalda þar í landi, að því er fram kemur í umfjöllun New York Times.

Yfirmaður Mossad, David Barnea, átti fund með Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, nokkrum dögum áður en Bandaríkin og Ísrael hófu hernað gegn Íran. Þar sagði hann að stofnunin gæti virkjað stjórnarandstöðu í Íran og þannig stuðlað að stjórnarskiptum.

Samkvæmt fréttinni, sem byggir á viðtölum við bandaríska og ísraelska embættismenn, kynnti Barnea einnig hugmyndina fyrir háttsettum bandarískum ráðamönnum í heimsókn til Washington um miðjan janúar.

Netanyahu og Donald Trump tóku hugmyndina upp þrátt fyrir efasemdir sumra háttsettra bandarískra embættismanna og hernaðargreiningaraðila í Ísrael. Fullyrðingar Mossad voru sagðar hafa verið notaðar til að sannfæra Trump um að mögulegt væri að fella írönsk stjórnvöld.

Samkvæmt áætluninni átti stríðið að hefjast með því að drepa leiðtoga Írans, og síðan fylgja „röð leyniþjónustuaðgerða sem ættu að hvetja til stjórnarskipta“. Mossad taldi að þetta gæti leitt til fjöldauppreisnar og sigurs fyrir Ísrael og Bandaríkin.

Í upphafi stríðsins endurspeglaði opinber orðræða Trump þessa nálgun. Í myndbandi sagði hann meðal annars: „Að lokum segi ég við hina stoltu þjóð Írans að stund frelsis ykkar sé runnin upp … þegar við erum búin, takið yfir stjórnina. Hún verður ykkar.“

Slík umræða fjaraði þó fljótt út. Innan tveggja vikna sögðu bandarískir öldungadeildarþingmenn eftir kynningu á stöðunni að það væri ekki markmið stríðsins að fella írönsku stjórnina, og að í raun væri „engin áætlun“ til staðar.

Efasemdir innan leyniþjónusta

Mat bandarísku leyniþjónustunnar CIA er að írönsk stjórnvöld muni ekki falla. Þar hefur einnig verið varað við því að ef leiðtogarnir yrðu drepnir gæti enn róttækari stjórn tekið við.

Ísraelsk leyniþjónusta telur stjórnvöld í Íran veikluð en þó enn við völd.

Í frétt New York Times segir að sú trú að Ísrael og Bandaríkin gætu startað fjöldauppreisn hafi verið grundvallarmistök í undirbúningi stríðsins.

Netanyahu er sagður hafa orðið ósáttur eftir að loforð Mossad um uppreisn hafi ekki gengið eftir. Samkvæmt heimildum blaðsins sagði hann á öryggisfundi að Trump gæti stöðvað stríðið hvenær sem er ef aðgerðir Mossad skiluðu ekki árangri.

Margir háttsettir embættismenn í Bandaríkjunum og sérfræðingar innan ísraelsku herleyniþjónustunnar Aman höfðu dregið í efa þessar forsendur.

Bandarískir herforingjar sögðu Trump að ólíklegt væri að Íranar færu út á götur á meðan sprengjur féllu, og leyniþjónustumat benti til þess að líkur á fjöldauppreisn væru litlar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

„Frábært félag, það þarf bara að hrista aðeins upp í hlutunum.“
Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Myndband náðist af ódæðinu
Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Loka auglýsingu