Leó hinn 14. hvatti í dag til þess að sprengjuárásum í Mið-Austurlöndum yrði hætt, þar sem stríð sem hófst með loftárásum Bandaríkjanna og Ísraels á íran er nú komið á níunda dag.
Í lok bænar sagði páfinn að fréttir frá svæðinu vektu áfram mikla depurð. Hann sagði að auk ofbeldis og eyðileggingar ríkti nú víðtækt andrúmsloft haturs og ótta.
Páfinn lýsti einnig áhyggjum af því að átökin gætu breiðst út til fleiri ríkja á svæðinu. Hann nefndi sérstaklega Líbanon og sagði óttast að landið gæti á ný sokkið í óstöðugleika ef átökin magnast.
Á sama tíma var Íran að undirbúa tilkynningu um nýjan æðsta leiðtoga landsins eftir að loftárásir Bandaríkjanna og Ísraels ollu miklum skemmdum á eldsneytisbirgðum og kveiktu elda sem huldu stóran hluta höfuðborgarinnar Tehran í þykkum reyk.
Írönsk gagnárás með eldflaugum og drónum hefur beinst að mörgum ríkjum við Persaflóa og víðar í Mið-Austurlöndum.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ekki útilokað að senda bandaríska hermenn til Írans, en segir jafnframt að hernaðaraðgerðir gangi hratt og samkvæmt áætlun.
Páfinn sagði einnig að hann biðji þess að vopnin þagni svo að raddir almennings fái að heyrast.

Komment