1
Peningar

„Það er nákvæmlega ekkert eðlilegt við þetta“

2
Pólitík

Hreinsanir hjá ESB-andstæðingum

3
Minning

Steinar Jóhann Lúðvíksson er látinn

4
Heimur

Fjórtán ára drengur skotinn til bana í Lundúnum

5
Innlent

Maður í Breiðholti fluttur á bráðamóttöku eftir fall niður stiga

6
Fólk

„Algjör stemning“ hjá Írisi í Vatnaskógi

7
Heimur

Drónaárásir og neyðarástand í Rússlandi vegna flóða

8
Heimur

Ólöglegir landnemar ganga berserksgang á Vesturbakkanum

9
Heimur

Eldri maður slasaðist eftir fall í gil á Tenerife

10
Heimur

Barn í lífshættu við bjargbrún á Lanzarote

Til baka

Ragnheiður Steindórsdóttir fékk heilablóðfall á Spáni

„Mamma er alveg skýr í kollinum og enn hún sjálf eins og við þekkjum hana“

Ragnheiður Steindórsdóttir
Ragnheiður SteindórsdóttirLeikkonan góðkunna er á batavegi
Mynd: Facebook

Ragnheiður Steindórsdóttir, leikkona og baráttukona, fékk heilablóðfall á Spáni milli jóla og nýárs eftir að hafa misst máttinn í gönguferð í sveitinni þar sem hún dvaldi. Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem börn hennar, Steindór Grétar Jónsson og Margrét Dórothea Jónsdóttir, hafa birt fyrir hennar hönd.

Ragnheiður Steindórsdóttir
Ragnheiður SteindórsdóttirRagnheiður hefur verið fastráðin hjá Þjóðleikhúsinu frá 1983
Mynd: Þjóðleikhúsið

Í færslunni lýsa þau því hvernig móðir þeirra lenti í alvarlegu áfalli fjarri heimahögum en tókst engu að síður að bjarga sér við erfiðar aðstæður. „Hún varð því miður fyrir því óláni að missa máttinn þegar hún var ein í gönguferð í sveitinni á Spáni á milli jóla og nýárs. Á ótrúlegan hátt náði hún að bjarga sér, vekja athygli íbúa á svæðinu og fá hjálp,“ skrifa þau.

Ragnheiður var í kjölfarið flutt á sjúkrahús í Málaga, þar sem Steindór var henni innan handar. „Hún var flutt á spítala í Malaga í fylgd með Steindóri og þar kom í ljós að hún hafði fengið heilablóðfall,“ segir í færslunni.

Samkvæmt börnum hennar er ástand Ragnheiðar stöðugt og hugur hennar skýr. „Mamma er alveg skýr í kollinum og enn hún sjálf eins og við þekkjum hana en þarf tíma og þjálfun til að endurheimta kraft í líkamanum,“ skrifa þau og bæta við að hún verði flutt heim til Íslands til frekari meðferðar. „Hún verður flutt til Íslands á morgun í fylgd með lækni og Steindóri og hlakkar til að takast á við endurhæfinguna framundan.“

Þau nefna einnig að dvölin á spænska sjúkrahúsinu hafi verið krefjandi en ekki án bjartari hliða. „Það verður líka gott að geta talað við heilbrigðisstarfsfólk á íslensku þó að mömmu hafi nánast tekist að læra spænsku frá grunni á þessum tveimur vikum á sjúkrahúsinu,“ segir í færslunni.

Í lokin minna systkinin á baráttu móður sinnar fyrir mannúðarmálum, einkum í þágu Palestínu í gegnum félagið Vonarbrú. „Öll sem þekkja hana vita hvað hún hefur verið virk, öflug og lífsglöð og að hún hafi látið sig málefni Palestínu varða með félaginu Vonarbrú,“ skrifa þau og benda á að starf hennar hafi skipt sköpum fyrir fjölskyldur á Gaza.

Þau hvetja almenning til að styðja félagið meðan Ragnheiður er frá störfum: „Við vitum að það mundi gleðja hana ef Vonarbrú fengi góð fjárframlög næstu vikurnar til að bæta upp fyrir fjarveru hennar. Við hvetjum því öll til að styrkja stríðshrjáðar barnafjölskyldur á Gaza með því að leggja inn á reikning almannaheillafélagsins Vonarbrúar (kennitala: 420625-1700, reikningsnúmer: 0565-26-006379).“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Eldri maður slasaðist eftir fall í gil á Tenerife
Heimur

Eldri maður slasaðist eftir fall í gil á Tenerife

Maðurinn datt niður stiga og ofan í gil
Bandaríska flughermanninum bjargað frá Íran
Heimur

Bandaríska flughermanninum bjargað frá Íran

Drónaárásir og neyðarástand í Rússlandi vegna flóða
Myndband
Heimur

Drónaárásir og neyðarástand í Rússlandi vegna flóða

Maður í annarlegu ástandi fjarlægður úr Kringlunni
Innlent

Maður í annarlegu ástandi fjarlægður úr Kringlunni

Ólöglegir landnemar ganga berserksgang á Vesturbakkanum
Heimur

Ólöglegir landnemar ganga berserksgang á Vesturbakkanum

„Það er nákvæmlega ekkert eðlilegt við þetta“
Peningar

„Það er nákvæmlega ekkert eðlilegt við þetta“

„Algjör stemning“ hjá Írisi í Vatnaskógi
Viðtal
Fólk

„Algjör stemning“ hjá Írisi í Vatnaskógi

Steinar Jóhann Lúðvíksson er látinn
Minning

Steinar Jóhann Lúðvíksson er látinn

Hreinsanir hjá ESB-andstæðingum
Pólitík

Hreinsanir hjá ESB-andstæðingum

Barn í lífshættu við bjargbrún á Lanzarote
Heimur

Barn í lífshættu við bjargbrún á Lanzarote

FSB segir hafa komið í veg fyrir sprengjuárás í Moskvu
Heimur

FSB segir hafa komið í veg fyrir sprengjuárás í Moskvu

Fjórtán ára drengur skotinn til bana í Lundúnum
Heimur

Fjórtán ára drengur skotinn til bana í Lundúnum

Maður í Breiðholti fluttur á bráðamóttöku eftir fall niður stiga
Innlent

Maður í Breiðholti fluttur á bráðamóttöku eftir fall niður stiga

Innlent

Maður í annarlegu ástandi fjarlægður úr Kringlunni
Innlent

Maður í annarlegu ástandi fjarlægður úr Kringlunni

Lögreglan í Hafnarfirði handtók mann sem gekk um miðbæinn og stal munum úr görðum og ólæstum bílum
Glæpsamlegir ökumenn í aðalhlutverki í dagbók lögreglu
Innlent

Glæpsamlegir ökumenn í aðalhlutverki í dagbók lögreglu

Maður í Breiðholti fluttur á bráðamóttöku eftir fall niður stiga
Innlent

Maður í Breiðholti fluttur á bráðamóttöku eftir fall niður stiga

Öll einkanot af þyrlum Landhelgisgæslunnar óheimil
Innlent

Öll einkanot af þyrlum Landhelgisgæslunnar óheimil

Blaðamaður Morgunblaðsins farinn í hlýjan faðm RÚV
Innlent

Blaðamaður Morgunblaðsins farinn í hlýjan faðm RÚV

Lögreglan send í verslunarmiðstöð af óvenjulegri ástæðu
Innlent

Lögreglan send í verslunarmiðstöð af óvenjulegri ástæðu

Loka auglýsingu