1
Fólk

Selja eitt dýrasta einbýli Íslands

2
Landið

Eigendur náttúruperlu sakaðir um peningaplokk og metnaðarleysi

3
Fólk

Gunnar Smári frá vegna alvarlegra veikinda

4
Innlent

Meintur barnaníðingur áfram í gæsluvarðhaldi

5
Innlent

Barn flutt á bráðamóttökuna eftir slys

6
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys

7
Heimur

Feðginum bjargað úr lífshættu á Tenerife

8
Innlent

Stefán Máni kallar Samfylkingarfólk föðurlandssvikara

9
Innlent

Telur launaskrið og verðbólgu vera yfirstéttinni að kenna

10
Landið

Kristján Ágúst verður bráðlega vígður

Til baka

Repúblikanar í Tennessee ýta undir dauðarefsingu vegna þungunarrofs

„Morð er morð, hvort sem um er að ræða manneskju sem er fædd eða manneskju í móðurkviði“

Jody Barrett
Jody BarrettHugmyndir Barretts falla ekki í kramið hjá Demókrötum
Mynd: Facebook

Þingmaður Repúplíkana í Tennessee hefur lagt fram frumvarp sem myndi skilgreina þungunarrof sem refsivert manndráp. Yrði frumvarpið að lögum gæti það haft í för með sér að konur sem fara í þungunarrof sæti ákæru fyrir alvarleg afbrot og í ýtrustu tilfellum jafnvel dauðarefsingu.

Í Tennessee er þegar í gildi eitt strangasta bann við þungunarrofi í Bandaríkjunum, en samkvæmt núgildandi lögum beinast refsingar eingöngu að læknum sem framkvæma aðgerðina. Jody Barrett, þingmaður Repúblikanaflokksins og fulltrúi kjördæmisins Dickson, vill ganga mun lengra. Hann hefur lagt fram frumvarp sem myndi gera mæður sjálfar refsiábyrgar, annaðhvort fyrir líkamsárás eða manndráp, ef þær gangast undir þungunarrof.

Barrett segir að markmið frumvarpsins sé „jöfn vernd fyrir lögum“.

„Morð er morð, hvort sem um er að ræða manneskju sem er fædd eða manneskju í móðurkviði,“ sagði hann.

Þegar hann var spurður um gagnrýni þess efnis að frumvarpið beinist sérstaklega gegn konum hafnaði hann því.

„Ég tel að það sé aðeins orðræðupunktur að þetta snúist um að ráðast á mæður. Við erum ekki að miða á mæður. Við erum að miða á ófædd börn og reyna að vernda þau og veita þeim sömu lagavernd og þú og ég njótum,“ sagði Barrett.

Frumvarpið hefur vakið mikla andstöðu meðal Demókrata, sem vara við því að orðalag þess geti opnað á að dauðarefsing verði beitt. Charlane Oliver, öldungadeildarþingmaður Demókrata frá Nashville, sagði: „Við erum með Repúblikana í þessari byggingu sem eru að ýta undir að konur verði teknar af lífi fyrir það eitt að fara í þungunarrof.“

Orðin „dauðarefsing“ koma ekki beinlínis fyrir í texta frumvarpsins. Þar er þó kveðið á um að þungunarrof skuli lúta „sömu forsendum, vörnum, réttlætingum, refsiákvæðum og náðun“ og ef um væri að ræða líkamsárás eða manndráp á einstaklingi sem fæddur er á lífi.

Barrett viðurkennir að dauðarefsing sé fræðilega möguleg samkvæmt frumvarpinu, en segir hana afar ólíklega. Hann bendir á að frá því dauðarefsing var tekin upp að nýju í Tennessee árið 1977 hafi færri en 200 manns verið dæmdir til dauða og aðeins 16 teknir af lífi, engin þeirra konur.

Frumvarpið gerir þó undantekningar, meðal annars þegar líf móður er í hættu og í tilvikum sjálfkrafa fósturláts.

Enn sem komið er hefur breytingartillagan ekki verið formlega lögð fram á þingi Tennessee og er því ekki að finna í opinberum gagnagrunnum þingsins. Barrett hefur hins vegar afhent fjölmiðlinum WTVF drög að tillögunni og mögulegt er að hún verði tekin fyrir í neðri deild þingsins strax í næstu viku. Í öldungadeild ríkisins er Mark Pody skráður stuðningsmaður breytingarinnar.

Demókratar segja málið of alvarlegt til að gera lítið úr því. Aftyn Behn sagði: „Við ættum að vera mjög hrædd. Þetta er afar ógnvekjandi skref sem ríkið er að stíga.“ Þá sagði Gloria Johnson: „Þetta er það sem þessi þingheimur er að gera konum og fjölskyldum.“

Barrett heldur því hins vegar fram að frumvarpið endurspegli grundvallargildi:

„Hvert líf hefur gildi,“ sagði hann.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Ferðamenn björguðu mæðgum úr ískaldri á
Myndband
Heimur

Ferðamenn björguðu mæðgum úr ískaldri á

Myndband náðist af hetjulegri björguninni
„Ég hef oft verið hrópandi í eyðimörkinni“
Myndband
Fólk

„Ég hef oft verið hrópandi í eyðimörkinni“

Gunnar Smári frá vegna alvarlegra veikinda
Fólk

Gunnar Smári frá vegna alvarlegra veikinda

Stefán Máni kallar Samfylkingarfólk föðurlandssvikara
Innlent

Stefán Máni kallar Samfylkingarfólk föðurlandssvikara

Barn flutt á bráðamóttökuna eftir slys
Innlent

Barn flutt á bráðamóttökuna eftir slys

Eigendur náttúruperlu sakaðir um peningaplokk og metnaðarleysi
Landið

Eigendur náttúruperlu sakaðir um peningaplokk og metnaðarleysi

Meintur barnaníðingur áfram í gæsluvarðhaldi
Innlent

Meintur barnaníðingur áfram í gæsluvarðhaldi

Konur handteknar fyrir að kyssast
Heimur

Konur handteknar fyrir að kyssast

Aukinn þrýstingur á Hildi
Slúður

Aukinn þrýstingur á Hildi

Feðginum bjargað úr lífshættu á Tenerife
Myndband
Heimur

Feðginum bjargað úr lífshættu á Tenerife

Selja eitt dýrasta einbýli Íslands
Myndir
Fólk

Selja eitt dýrasta einbýli Íslands

Kristján Ágúst verður bráðlega vígður
Landið

Kristján Ágúst verður bráðlega vígður

Vestfirðingur ákærður fyrir að hrækja í andlit lögreglumanns
Innlent

Vestfirðingur ákærður fyrir að hrækja í andlit lögreglumanns

Heimur

Repúblikanar í Tennessee ýta undir dauðarefsingu vegna þungunarrofs
Heimur

Repúblikanar í Tennessee ýta undir dauðarefsingu vegna þungunarrofs

„Morð er morð, hvort sem um er að ræða manneskju sem er fædd eða manneskju í móðurkviði“
Reiði vegna hrópa Tourette-aðgerðarsinna á Bafta
Myndband
Heimur

Reiði vegna hrópa Tourette-aðgerðarsinna á Bafta

Ferðamenn björguðu mæðgum úr ískaldri á
Myndband
Heimur

Ferðamenn björguðu mæðgum úr ískaldri á

Konur handteknar fyrir að kyssast
Heimur

Konur handteknar fyrir að kyssast

Feðginum bjargað úr lífshættu á Tenerife
Myndband
Heimur

Feðginum bjargað úr lífshættu á Tenerife

Rússneskur lögreglumaður sem barðist gegn barnaníði ákærður fyrir landráð
Heimur

Rússneskur lögreglumaður sem barðist gegn barnaníði ákærður fyrir landráð

Loka auglýsingu