
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, segir afsögn Joe Kent úr starfi forstöðumanns Hryðjuverkastofnunar Bandaríkjanna (NCTC) vera stórtíðindi og merki um vaxandi klofning innan repúblikana og svonefndrar MAGA-hreyfingar. Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem hann birti í morgun.
Í færslunni segir Kristinn að Kent hafi sagt starfi sínu lausu til að mótmæla árásum Bandaríkjanna á Íran.
„Afsögn Joe Kent úr stöðu forstöðumanns Hryðjuverkastofnunar Bandaríkjanna (NCTC) er stór frétt en hann gerir þetta til að mótmæla árásinni á Íran. Kent tekur sérstaklega fram að engin bráðaógn hafi stafað af Íran og árásin hafi verið að undirlagi Ísraels og valdamikilla stuðningsmanna þeirra í Bandaríkjunum,“ skrifar Kristinn.
Hann rifjar upp að stofnunin hafi verið sett á laggirnar eftir árásirnar 11. september og gegni lykilhlutverki í öflun upplýsinga um hryðjuverkahættu.
Segir klofning innan MAGA-hreyfingarinnar
Kristinn bendir á að Kent sé ekki hefðbundinn gagnrýnandi heldur tilheyri harðri hægri væng repúblikana.
„Merkilegast er að Joe Kent er gallharður hægrimaður og tilheyrir MAGA en þó þeim armi sem trúði loforðum Trumps um að hann myndi ekki þvæla þjóðinni í kostnaðarsöm stríð sem snertu ekki beina hagsmuni Bandaríkjanna og þess utan að hlýða ekki Ísraelistunum í blindni. Þeir telja sig illa svikna núna,“ skrifar hann.
Að hans sögn hefur óánægja kraumað innan flokksins um nokkurt skeið.
„Það hefur kraumað undir megn óánægja innan Repúblíkanaflokksins vegna þessa og í raun er MAGA hreyfingin klofin. Þessa dagana er þetta að seitla betur og betur uppá yfirborðið og verða sýnilegra.“
Hann nefnir einnig að fjölmiðlamaðurinn Tucker Carlson hafi verið áberandi í gagnrýni á stefnu Trumps.
Varar við þróun lýðræðis
Í færslunni lýsir Kristinn áhyggjum af stöðu lýðræðis í Bandaríkjunum og segir vísbendingar um aukinn þrýsting á fjölmiðla.
„Nú þegar hefur birst vilji til að þagga hraustlega niður í fjölmiðlum sem fengu á dögunum beina hótun um að vera úthýst af ljósvakanum ef þeir birtu fréttir af gangi Íransárásarinnar sem Trumpistum er ekki hugnanlegar,“ skrifar hann.
Hann segir jafnframt að alþjóðlegar mælingar sýni að staða lýðræðis í landinu hafi veikst.
„Lýðræðið er veikara í Bandaríkjunum en verið hefur í áratugi meðal annars að mati stofnana sem reyna að setja mælistikur á slíkt (Freedom House, V-Dem, IDEA) sem þýðir einfaldlega skrið í átt til alræðis.“
Tengir umræðuna við Ísland
Kristinn víkur einnig að íslenskum stjórnmálum og gagnrýnir afstöðu Miðflokksins í tengslum við bæði alþjóðamál og Evrópusambandið.
„Það er ómögulegt að segja hvert þetta stefnir en að minnsta kosti ljóst að formaður Miðflokksins hefur veðjað á arminn sem styðjur Trump og gasprar af stórkostlegu smekkleysi og vanþekkingu um hálfmislukkað þjóðarmorð á Gasa,“ skrifar hann.
Hann bendir jafnframt á að spenna hafi aukist vegna Hormuz-sundsins og að Bandaríkjaforseti hafi hótað aðgerðum gegn bandalagsríkjum.
Að lokum gagnrýnir hann andstöðu við þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðildarviðræður.
„Þeir eru að vísu uppteknir við að hafna því alfarið að lýðræðisleg leið sé farin til að leyfa sjónarmiðum þjóðarinnar að ráða því hvort aðildarumsókn að ESB sé endurlífguð. Það er umsóknin – ekki aðildin sjálf. Þeir eru sem sagt bæði á móti lýðræði og ESB.“
Hann bætir við að lokum:
„Hvort tveggja hljómar vel í eyrum Trumps.“

Komment