
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, gagnrýnir ný lög sem tóku gildi 1. janúar 2025 og segir þau grafa undan réttindum launafólks og öryggi á vinnustöðum.
Í Facebook-færslu furðar hann sig á því að lögin hafi verið samþykkt og bendir á að samkvæmt þeim megi ekki leggja fram skýrslur Vinnueftirlitsins fyrir dómstólum í kjölfar vinnuslysa.
„En svo kemur í ljós að þessar skýrslur – sem byggja á faglegri rannsókn – má ekki leggja fram fyrir dómstólum! Hvað er verið að hugsa?“ skrifar hann.
Vilhjálmur segir þetta ganga gegn markmiðum um aukið öryggi og vernd launafólks. Hann bendir á að Vinnueftirlitið rannsaki aðstæður, búnað og verklag þegar alvarleg slys verða, og að niðurstöður þess ættu að vera hluti af sönnunargögnum í dómsmálum.
Hann spyr hvers vegna slíkt gildi ekki um vinnuslys þegar skýrslur rannsóknarnefnda flug- og umferðarslysa séu notaðar sem grundvöllur í öðrum málum.
„Er líf og heilsa vinnandi fólks minna virði?“ spyr hann.
Að mati Vilhjálms felur lagasetningin í sér að mikilvæg sönnunargögn séu tekin úr umferð og að hún vinni gegn hagsmunum launafólks. „Þetta eru ekki bara mistök – þetta er alvarleg aðför að réttindum vinnandi fólks,“ skrifar hann.
Í lok færslunnar kallar hann eftir svörum um hverjum lögin þjóni og hvers vegna þau hafi verið samþykkt.

Komment