1
Innlent

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars

2
Peningar

„Nablinn“ hefur fyrirtækjarekstur

3
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue ákærð

4
Innlent

Segist „ekkert hafa að fyrirgefa“ eiginmanni sem hlaut dóm fyrir nauðgun á 14 ára stúlku

5
Fólk

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús

6
Menning

Jón Adólf með eina óvenjulegustu listasýningu Kaupmannahafnar

7
Pólitík

Sólveig Anna gagnrýnir Ingu Sæland harðlega

8
Heimur

TikTok-stjarna látin eftir lýtaaðgerð

9
Pólitík

Feminísk fötlunarhreyfing styrkt um milljónir

10
Innlent

Verslun í Laugardalnum rænd

Til baka

Segist „ekkert hafa að fyrirgefa“ eiginmanni sem hlaut dóm fyrir nauðgun á 14 ára stúlku

Eiginkona póstberans, sem var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni, kemur honum til varnar á samfélagsmiðlum.

Misnotkun ofbeldi kona stúlka
Stúlkan glímir við erfið eftirköstMyndin tengist ekki fréttinni beint.
Mynd: Shutterstock

Eiginkona Andrésar Páls Ragnarssonar, sem dæmdur var í fangelsi í fyrra fyrir að nauðga 14 ára nágrannastúlku á Blönduósi, stendur með honum og hefur haft samband við fólk sem gagnrýnir hann á samfélagsmiðlum. Hún segir þar að þolandinn geti sjálfur flutt úr bænum, eftir að hann var sendur í leyfi frá störfum hjá Póstinum í kjölfar þess að íbúar í bænum gerðu athugasemdir og aðstandendur brotaþolans báðust undan því að sami bréfberi þjónustaði þau og hafði brotið gegn stúlkunni.

Kona nokkur birti færslu á Facebook í vikunni þar sem hún greindi frá því að hún hefði tjáð sig um málið, eftir fréttir af því á Vísi.is að Andrés „keyri út póst með nauðgunardóm á bakinu“, og fengið í kjölfarið send einkaskilaboð frá eiginkonu hans.

„Í gær skrifa ég comment á færslu hjá minnir mig. Visir Þetta er frétt um að maður sem hafði fengið á sig dóm fyrir að nauðga 14 ára barni væri að keyra út sendingar fyrir póstinn. Ég skrifa eitthvað á þann hátt að meðan svona viðbjóði er ekki hent úr landi þá því miður væri lítið sem foreldrar barnsins gæti gert annað en að koma barninu úr aðstæðum,“ sagði konan og nefndi að stuttu síðar hefði hún fengið skilaboð frá konu mannsins.

Færslan vakti mikla athygli og skapaðist mikil umræða í athugasemdum en meðal þess sem eiginkona Andrésar sagði var að hún vonaði að konan upplifði aldrei það sem hún hefði upplifað, að fá hringingu frá lögreglunni með fréttir af handtökunni.

Þá spurði eiginkonan hvort að ef konan og maður hennar væru „að standa í“ sams konar, hvort hún myndi vilja að maðurinn hennar yrði rekinn úr landi og fengi aldrei að sjá börn sín aftur. Þegar konan sem birti færsluna spurði eiginkonuna hvers vegna hún væri að styðja við eiginmann sinn, þrátt fyrir að hann hefði fengið slíkan dóm, svaraði hún: „Af hverju? Einfaldlega því ég er með upplýsingarnar sem þú finnur ekki í fréttum.“

Bætti konan síðan við: „Annars er brotaþoli orðin 18 ára og getur bara flutt sjálf.“

skilaboð5
Mynd: Facebook-skjáskot
skilaboð6
Mynd: Facebook-skjáskot
skilaboð7
Mynd: Facebook-skjáskot
skilaboð8
Mynd: Facebook-skjáskot

Stúlkan var metin trúverðug

Andrés Páll var þann 11. desember í fyrra, sakfelldur í Héraðsdómi Norðurlands vestra, fyrir nauðgun gegn stúlku sem var tæplega 15 ára þegar brotið átti sér stað, um áramótin 2022 og 2023. Þá hafði Andrés búið í sama fjölbýli og stúlkan, sem bjó með móður sinni og kærasta hennar. Sat fólkið við drykkju þegar Andrés kom þangað en móðir stúlkunnar og kærasti hennar fóru síðar inn í herbergi saman og var Andrés þá einn í stofunni með stúlkunni, sem var orðið afar drukkin, samkvæmt dómnum. Þar kyssti hann hana í leyfisleysi á munninn. Í kjölfarið bauð hann henni niður í sína íbúð sem hún þáði. Í íbúð sinni hafði hann samfarir við hana án hennar samþykkis en hún mótmælti því ítrekað, samkvæmt því sem kemur fram í dómnum.

Bæði fyrir dómi og í skýrslutöku hjá lögreglu sagðist stúlkan hafa verið mjög drukkin er nauðgunin átti sér stað og að hún hafi kastað upp inni í íbúð Andrésar. Síðan nauðgunin átti sér stað hefur stúlkan glímt við áfallasteituröskun sem og mikinn kvíða og verið þjökuð af martröðum, samkvæmt sálfræðingi sem bar vitni fyrir dómstólum.

Í dómnum segir orðrétt um sakarefni málsins:

„Ákærða er gefin að sök nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa fyrst kysst brotaþola á munninn og í framhaldi af því haft við hana samræði án hennar samþykkis í íbúð ákærða. Ákæruvaldið byggir á því að ákærði hafi nýtt sér yfirburðastöðu sína vegna aldurs- og þroskamunar og þannig beitt brotaþola ólögmætri nauðung, en brotaþoli hafi ítrekað reynt að fá ákærða til að láta af háttseminni. Ákærði neitar sök.“

Þá kemur einnig fram í dómnum að Andrés Páll neitaði að hafa haft samræði við stúlkuna en að kossinn hafi átt sér stað, með hennar samþykki en að hann hafi talið hana vera á bilinu 18 til 20 ára. Framburður stúlkunnar þótti stöðugur og frásögn hennar einlæg og sannfærandi. Í dómnum segir:

„Brotaþoli hefur að mati dómsins verið í öllum aðalatriðum stöðug í framburðum sínum um atvik málsins að þessu leyti og frásögn hennar hefur verið einlæg og sannfærandi. Framburðum hennar ber í aðalatriðum saman við framburði annarra um hvað hún hafi sagt þeim um umrædd atvik, þ.e. félagsráðgjafa hjá Barnavernd Eyjafjarðar og sálfræðings hjá Heilsugæslu Akureyrar, auk fósturmóður brotaþola og móður. Þá er framburður umrædds sálfræðings um greiningu á áfallastreitu sem sérstaklega tengist þessum atburði, sbr. sérstaklega efnisgrein nr. 80 hér að framan til þess fallinn að styðja við framburð brotaþola. Hið sama er að segja um þær upplýsingar sem fram koma um áfallastreitu á samskiptaseðli frá sama félagsráðgjafa,“ segir í dómnum.

Þar kemur fram að stúlkan hefði reynst þekkja heimili mannsins.

„Enn fremur styður það við framburð brotaþola, á kostnað framburðar ákærða, að hún gat fyrir lögreglu og fyrir dómnum teiknað herbergjaskipan í íbúð ákærða, þannig að teikningunni bæri saman við teikningar ákærða, þótt ekkert sem fram hefur komið í málin bendi til þess að hún hafi komið í íbúð ákærða í annan tíma en umrætt kvöld. Að öllu framangreindu virtu er það mat dómsins að ákæruvaldið hafi sýnt nægilega fram á það ... að ákærði hafi haft samræði við brotaþola í umrætt sinn.“

Blönduós
BlönduósSamfélagið var slegið og þótti sumum óöryggi í því að póstberi bæjarins væri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn unglingsstúlku, en sjálfur sagðist hann ekki hættulegur.
Mynd: Wikimedia Commons / Steinninn

„Ég hef ekkert að fyrirgefa honum“

Í samtali við Mannlíf kveðst eiginkonan sjá eftir að hafa skrifað skilaboð til fólks sem hafði tjáð sig við deilingu á frétt Vísis um störf mannsins. Aðspurð hvort hún sé búin að fyrirgefa eiginmanni sínum segist hún ekkert hafa til að fyrirgefa honum fyrir.

„Ég hef ekkert að fyrirgefa honum,“ sagði hún. „Ég stend við hlið hans og mun gera það áfram. Mynd sem hefur verið dregin upp í umræðunni/fréttum endurspeglar ekki eiginmanninn minn. Fyrir mig er hann besta manneskjan sem ég hef nokkuð tímann þekkt. Sú hugsun að ég myndi deila lífi með einhvern sem gæti valdið öðrum skaða er fáránlegt.“

Mannlíf spurði hana einnig hvort fjölskyldan ætli sér að flytja úr bænum neitar hún því. „Ég hef búið hér í 14 ár og þetta er mitt heimili. Við erum ekki að fara flytja.“

Sem fyrr segir hafði hún sent skilaboð á fólk sem tjáði sig um málið.

Þá segir hún að bæjarbúar hafi að mestu sýnt henni virðingu eftir að málið kom upp og að einur erfiðleikarnir sem þau hefðu mætt varðandi málið væri uppsögn Andrésar Páls frá Póstinum, eins og komið hefur fram í fréttum undanfarna daga, en hann var sendur í leyfi eftir fréttaflutning Vísis um störf hans við póstburð.

„Við viljum einfaldlega fá að lifa lífinu okkar í friði og vonum það besta. Ég trúi því að fólk sé frjálst að mynda sér sína eigin skoðun,“ segir einkonan að lokum og bætir við að hún vilji ekki tjá sig frekar, enda sé málið í áfrýjunarferli.

Í yfirlýsingu Póstsins til Vísis var beðist afsökunar á því að íbúar hefðu upplifað óöryggi. „Pósturinn tekur þá umfjöllun sem birtist á Vísi mánudaginn 16. mars um starfsmann fyrirtækisins mjög alvarlega. Almennt tjáir Pósturinn sig ekki um málefni einstaka starfsmanna en að gefnu tilefni viljum við árétta að við höfum brugðist við málinu. Viðkomandi starfsmaður var sendur í leyfi í síðustu viku og samhliða því verða ferlar og viðbragð innan fyrirtækisins skoðað nánar. ið skiljum vel þær áhyggjur sem fram hafa komið og munum halda áfram að fara yfir verklag okkar til að tryggja að starfsemi Póstsins standist þær kröfur sem samfélagið gerir til okkar," sagði þar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Bændur mótmæla fjöldaaflífun búfjár í Rússlandi
Heimur

Bændur mótmæla fjöldaaflífun búfjár í Rússlandi

Yfirvöld þegja um orsök
Móðir Elínar yfirgaf heimilið eftir slagsmál við föðurinn
Innlent

Móðir Elínar yfirgaf heimilið eftir slagsmál við föðurinn

Svikapóstar sendir í nafni þekktra fyrirtækja
Innlent

Svikapóstar sendir í nafni þekktra fyrirtækja

Oddviti Miðflokksins vill loka MAST
Pólitík

Oddviti Miðflokksins vill loka MAST

Sagnfræðingur segir Trump hafa breyst í „stríðsforseta“
Pólitík

Sagnfræðingur segir Trump hafa breyst í „stríðsforseta“

Handtekinn eftir hættulega eftirför á Tenerife
Heimur

Handtekinn eftir hættulega eftirför á Tenerife

Íran hótar harðari árásum eftir skemmdir á orkuinnviðum
Heimur

Íran hótar harðari árásum eftir skemmdir á orkuinnviðum

Ellefu ára drengur ákærður fyrir að myrða litla bróður sinn
Heimur

Ellefu ára drengur ákærður fyrir að myrða litla bróður sinn

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars
Innlent

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars

Val Kilmer „leikur“ í nýrri kvikmynd
Heimur

Val Kilmer „leikur“ í nýrri kvikmynd

Gary Glitter sagður „á síðasta snúningi“ í fangelsinu
Heimur

Gary Glitter sagður „á síðasta snúningi“ í fangelsinu

Kalla eftir banni við loðdýraeldi á Íslandi
Innlent

Kalla eftir banni við loðdýraeldi á Íslandi

Innlent

Segist „ekkert hafa að fyrirgefa“ eiginmanni sem hlaut dóm fyrir nauðgun á 14 ára stúlku
Innlent

Segist „ekkert hafa að fyrirgefa“ eiginmanni sem hlaut dóm fyrir nauðgun á 14 ára stúlku

Eiginkona póstberans, sem var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni, kemur honum til varnar á samfélagsmiðlum.
Grunsamlegir aðilar kíktu inn í bíla
Innlent

Grunsamlegir aðilar kíktu inn í bíla

Móðir Elínar yfirgaf heimilið eftir slagsmál við föðurinn
Innlent

Móðir Elínar yfirgaf heimilið eftir slagsmál við föðurinn

Svikapóstar sendir í nafni þekktra fyrirtækja
Innlent

Svikapóstar sendir í nafni þekktra fyrirtækja

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars
Innlent

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars

Kalla eftir banni við loðdýraeldi á Íslandi
Innlent

Kalla eftir banni við loðdýraeldi á Íslandi

Loka auglýsingu