1
Minning

Gunnar Smári segir frá andláti herbergisfélaga síns á spítalanum

2
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

3
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

4
Minning

Haukur Guðmundsson er fallinn frá

5
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

6
Fólk

Sérlega smekklegt hús á Seltjarnarnesi til sölu

7
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

8
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

9
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

10
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

Til baka

Sex Bretar látnir eftir lúxusferðir til Grænhöfðaeyja

Fjölskyldur saka fimm stjörnu hótel um alvarleg hreinlætisbrot

hotel-riu-palace-santa
Riu Palace Santa Maria-hótelið á GrænhöfðaeyjumMark Ashley var einungis 55 ára þegar hann veiktist á hótelinu og lést skömmu síðar
Mynd: tripadvicer

Fjölskyldur sex einstaklinga sem létust eftir ferðir til Grænhöfðaeyjar hafa sett fram alvarlegar ásakanir um hreinlætisaðstæður á þeim dvalarstöðum þar sem þau dvöldu. Að þeirra mati leiddu aðstæðurnar til þessara hörmulegu dauðsfalla.

Sex Bretar hafa látist í fríum á Grænhöfðaeyjum eftir að hafa smitast af alvarlegri magapest, þar af fjórir á síðustu fjórum mánuðum einum saman.

Elena Walsh, 64 ára, frá Birmingham, Mark Ashley, 55 ára, frá Bedfordskíri, Karen Pooley, 64 ára, frá Gloucesterskíri, og ónefndur 56 ára karlmaður létust öll á árinu 2025, á tímabilinu ágúst til nóvember, eftir að hafa veikst alvarlega af meltingarfærasjúkdómum. Á sama tíma er lögmannsstofan Irwin Mitchell nú að gæta hagsmuna yfir 1.500 annarra ferðamanna sem segjast hafa veikst alvarlega eftir heimsóknir til eyjanna undan vesturströnd Afríku.

Talið er að margir hinna veiku hafi dvalið á vinsælum „allt innifalið“-hótelum á eyjunni Sal, einkum á hótelum í eigu RIU Hotels & Resorts, og að ferðirnar hafi verið bókaðar í gegnum ferðarisann TUI. Fjölskyldur hafa lýst miklum áhyggjum af hreinlæti á hótelunum, meðal annars vegna illa eldaðs matar, lélegrar hreinlætisaðstöðu og vatns sem geymt var úti í sól. Einnig hefur verið greint frá því að eitt fórnarlamb hafi fótbrotnað eftir að hafa runnið á vatni sem lak úr ísskáp.

Eiginkona Mark, Emma, 55 ára, segir fjölskylduna vera í „algjöru losti“ yfir andláti hans.

Mark Ashley
Mark AshleyMark með fjölskyldu sinni

„Við fórum til Grænhöfðaeyja í þeirri trú að þetta yrði afslappandi frí, en Mark veiktist skyndilega og náði sér aldrei,“ segir hún. Hjónin, sem höfðu verið gift í 26 ár, dvöldu á fimm stjörnu Riu Palace Santa Maria-hótelinu á Sal og höfðu greitt yfir 3.000 pund fyrir októberferðina, sem var bókuð í gegnum TUI.

Þremur dögum eftir komu fór Mark, sem starfaði sjálfstætt við akstur lyftara, að finna fyrir einkennum á borð við kviðverki, niðurgang, uppköst, hita og mikla þreytu. Emma, sem starfar sem aðstoðarstjóri í leikskóla og hefur gagnrýnt hreinlæti á hótelinu, tilkynnti veikindi hans í gegnum app hótelsins 9. október 2025.

Eftir heimkomu til Bretlands héldu einkennin áfram. Mark, sem var faðir tveggja barna og með sykursýki sem var meðhöndluð með lyfjum, féll í gólfið á heimili sínu í Houghton Regis 12. nóvember. Hann var fluttur á sjúkrahús en úrskurðaður látinn örfáum mínútum síðar. Samkvæmt Irwin Mitchell hefur andlátið verið vísað til réttarmeinafræðings og rannsókn stendur yfir.

Fjölskylda Marks er langt frá því að vera sú eina sem syrgir eftir frí á eyjaklasanum. Elena, sem starfaði sem hlutastarfandi hjúkrunarfræðingur og var móðir eins barns, lést í ágúst 2025 eftir að hafa veikst á sömu eyju. Hún dvaldi á fimm stjörnu Riu Cabo Verde-hótelinu. Ferðin átti að vera tvöföld gleðihátíð, sextugsafmæli eiginmanns hennar og trúlofun sonar þeirra, en aðeins viku inn í 5.000 punda ferðina veiktist hún með uppköst, niðurgang og miklar svitamyndanir. Hún lést tveimur dögum síðar.

Elena Walsh
Elena WalshElena á góðri stund

Eiginmaður hennar, Patrick, hefur lýst miklum áhyggjum af hreinlæti á hótelinu og segir mat oft hafa verið volgur og illa eldaður. Hann gagnrýnir einnig umönnunina sem Elena fékk í veikindunum og lýsir henni sem „ringulreið“. Að hans sögn stóð fólk í sundlaugarbarnum allan daginn án þess að fara á salerni og hann tók eftir því að vatnið „skipti um lit“.

Patrick, sem var giftur Elenu í tæp 40 ár, segir:

„Elena var hjartað í fjölskyldunni okkar, umhyggjusöm, góð og alltaf tilbúin að hjálpa öðrum. Ég hef aldrei séð hana jafn illa haldna. Að lokum var hún svo veik að hún þurfti aðstoð í hjólastól til að komast á heilsugæslustöð.“

Hann segir fjölskylduna vera gjörsamlega niðurbrotna og krefjast svara, ekki aðeins fyrir sitt leyti heldur til að koma í veg fyrir að aðrar fjölskyldur upplifi sambærilega martröð.

Karen Pooley, frá Lydney, ferðaðist með vinkonu sinni á Riu Funana-hótelið á Sal 7. október 2025 í tveggja vikna frí sem kostaði 3.000 pund. Hún veiktist af meltingarfæraeinkennum 11. október og rann síðar um nóttina á vatni sem lak úr ísskáp á leið sinni á salernið, með þeim afleiðingum að hún braut lærlegg.

Karen Pooley
Karen Pooley og eiginmaður hennar AndyKaren fótbrotnaði ofan á hrottaleg veikindi sín

Karen var flutt á heilsugæslustöð og síðar flutt með sjúkraflugi til Tenerife þar sem hún lést snemma morguns 17. október. Dánarvottorð gaf til kynna fjöllíffærabilun, blóðsýkingu, hjarta- og öndunarstopp auk brots á vinstri fæti.

Andy, 62 eiginmaður Karenar lýsir miklum harmi vegna andlátsins.

„Við erum algjörlega miður okkar. Karen var góðhjartaðasta og yndislegasta manneskjan. Hún var góð eiginkona og móðir sem elskaði að synda, ganga með hundinn í Forest of Dean og starfaði sem sjálfboðaliði í góðgerðarverslun á staðnum. Hún var líka frábær vinkona sem lýsti upp hvert herbergi sem hún gekk inn í.“

Allar sex fjölskyldurnar hafa nú höfðað skaðabótamál gegn TUI. Lögmaðurinn Jatinder Paul hjá Irwin Mitchell segir fjölda veikinda meðal ferðamanna til Grænhöfðaeyja „hreint ótrúlegan“ og kallar eftir afgerandi aðgerðum til að tryggja hreinlæti og öryggi ferðamanna.

Talsmaður RIU Hotels & Resorts segir hins vegar að heilsa og öryggi gesta sé alltaf í forgangi, að hótelin fylgi ströngustu alþjóðlegum stöðlum og að fyrirtækið taki ásakanirnar alvarlega.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Dæmd fyrir að stela lýsi og vítamíntöflum úr Bónus
Innlent

Dæmd fyrir að stela lýsi og vítamíntöflum úr Bónus

Bjartmar heiðraður fyrir austan
Menning

Bjartmar heiðraður fyrir austan

Eitt mest sjarmerandi hús Garðabæjar á sölulista
Myndir
Fólk

Eitt mest sjarmerandi hús Garðabæjar á sölulista

Ásatrúarfélagið fordæmir kaþólsku kirkjuna á Íslandi
Innlent

Ásatrúarfélagið fordæmir kaþólsku kirkjuna á Íslandi

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum
Heimur

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

Heimur

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum
Heimur

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum

Hryðjuverkahóparnir hafa verið sérstaklega virkir í Búrkína Fasó, Malí og Níger, sem eru fyrrverandi franskar nýlendur.
Limminnsti maður heims biðst afsökunar
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“
Heimur

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

Loka auglýsingu