
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, gagnrýnir harðlega aðgerðir Ísraels og Bandaríkjanna í nýrri Facebook-færslu þar sem hann lýsir átökunum sem trúarlega knúnu stríði.
Í færslunni sakar Kristinn yfirvöld í Ísrael og Bandaríkjunum um að standa að „stjórnlausum slátrunum“ og „þjóðarmorði“, auk þess sem hann gagnrýnir árásir á Íran. Hann telur að aðgerðirnar þjóni pólitískum markmiðum sem tengjast hugmyndum um stækkun Ísraels.
„Þessi blóðþorsti Ísraelista og skósveina þeirra, rugludallana sem ráða bandarísku stríðsvélinni, þjónar aðeins þeim pólitíska tilgangi að uppfylla draumsýn ísraelista um stóraukið ‘lebensraum’ með áætluninni um Stór-Ísrael,“ skrifar Kristinn.
Hann segir jafnframt að réttlæting aðgerðanna sé sótt í trúarrit og túlkanir þeirra og kallar átökin „skýrt og klárt heilagt stríð“. Máli sínu til stuðnings birtir Kristinn skjáskot úr grein Matthieu Buge í RT um stríðið í Íran.
„Þetta er svo drifið áfram með réttlætingu úr fornum brengluðum biblíutextum og vísanir í trúarrit gyðinga,“ skrifar hann og gagnrýnir jafnframt að þeir sem verði fyrir árásunum séu sakaðir um að bera ábyrgð.
Í lok færslunnar veltir Kristinn upp spurningu um afstöðu kristinna manna, sérstaklega í ljósi páskahátíðarinnar.
„Það er til umhugsunar nú um Páska hvort þeir sem kalla sig kristna fallast á þennan viðbjóð og þessa túlkun trúarrita,“ segir hann.

Komment