
Rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson kallar Samfylkingarfólk föðurlandssvikara í nýrri færslu á X.
Stefán Máni, sem oft hefur skrifað eldfimar færslur á samfélagsmiðlum, allt frá því að saka biskup Íslands um að hvetja Íslendinga til að styðja barnamorð og segja sjónvarpsþættina Adolecence vera and-hvíta, vekur nú enn og aftur athygli þar sem hann segir Samfylkinguna, sem hann kallar föðurlandssvikara, um að „gaslýsa þjóðina svo hún vilji drepa sig.“ Virðist rithöfundurinn vera að vísa í vilja ríkisstjórnarinnar til að ganga í Evrópusambandið. Hér má lesa færsluna í heild sinni:
„Plan Samfylkingar og annarra föðurlandssvikara: Eyðileggja íslenskt samfélag og efnahagslíf. Láta eins og það sé okkur öllum að kenna. Sækja um/daðra við ESB og glæpamenn í Brussel. Gaslýsa þjóðina svo að hún vilji drepa sig til að "bjarga sér". Staðreynd, því miður.“
Undir orð Stefáns Mána tekur meðal annars annar umdeildur maður, Eldur Smári Kristinsson en hann segir Samfylkingarfólk grafa undan sambandinu við Bandaríki með falsfréttum.
„Pretty much. Og byrjað að grafa undan sambandinu við Bandaríkin með bogus og fake news könnun að fleiri álita BNA sem andstæðing en samherja.“
Plan Samfylkingar og annarra föðurlandssvikara:
— Stefán Máni (@Stefan_Mani_) February 24, 2026
Eyðileggja íslenskt samfélag og efnahagslíf.
Láta eins og það sé okkur öllum að kenna.
Sækja um/daðra við ESB og glæpamenn í Brussel.
Gaslýsa þjóðina svo að hún vilji drepa sig til að "bjarga sér".
Staðreynd, því miður.

Komment