
Allt ætlaði um koll að keyra í gærkvöldi þegar borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir tilkynntu um að þau hefðu yfirgefið Sjálfstæðisflokkinn og gengið til liðs við Miðflokkinn og er afstaða Sjálfstæðisflokksins til Borgarlínunnar helst ástæða þess.
Þá var þeim einnig bolað út af lista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, við lítinn fögnuð Kjartans og Mörtu, en aðeins rúmir tveir mánuðir eru í kosningarnar.
Einn af þeim er steinhissa er Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstri grænna.
„Jahér, þetta eru þó tíðindi,“ skrifar Stefán á samfélagsmiðla.
„Í fyrsta lagi hélt ég að flokksskírteini þeirra Kjartans og Mörtu væri samgróið við þau. En átyllan kemur mér líka á óvart: Borgarlínan. Fyrir tæpri viku hlustaði ég á Hildi Björnsdóttur á Sprengisandi taka harðari og neikvæðari afstöðu til samgöngusáttmálans og Borgarlínuverkefnisins en ég hef áður heyrt frá henni. Í borgarstjórn á þriðjudaginn fluttu Sjálfstæðismenn svo tillögu sem augljóslega hafði þann tilgang einan að reyna að drepa verkefninu á dreif með tafaleikjum: fara fram á endurskoðun, endurmat og hefja viðræður upp á nýtt,“ heldur sagnfræðingurinn áfram.
„En það er greinilega hörkukapphlaup á hægri vængnum um hver geti verið mesta kyrrstöðuaflið í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Á meðan nýr bíll bætist á götur höfuðborgarsvæðisins á 2 klst. fresti vill hægrið stofna nýja starfshópa í leit að töfralausnum sem eru ekki til.“

Komment