1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

6
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

7
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

8
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

9
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

10
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

Til baka

Hildur sakar ríkisstjórnina um að níða feitt fólk

„Hefur ekkert höfundanna verið unglingar?“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir
Hildur Lilliendahl ViggósdóttirHildur er afar ósátt við hugmyndir ríkisins
Mynd: Instagram

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, gagnrýnir harðlega drög að aðgerðaáætlun stjórnvalda í „málefni offitu“ og segir hugmyndirnar ganga langt yfir mörk þess sem sé ásættanlegt. Hún birti færslu á Facebook þar sem hún segir að hún hafi aldrei áður sent umsögn persónulega á samráðsgátt, en nú hafi hún ekki getað setið á strák sínum.

„Ég held að ég hafi aldrei sent umsögn persónulega á samráðsgátt áður en ég gat ekki orða bundist um þessi plön um aðgerðaáætlun um „málefni offitu“. Þessar hugmyndir eru í meira lagi galnar og það er svo furðulegt hvernig við höfum komið okkur saman um að það sé í lagi að níða feitt fólk og niðurlægja það við hvert tækifæri,“ skrifar Hildur.

Sérstaklega segir hún eina tillögu í áætluninni hafa farið fram úr sér. Hún vitnar orðrétt í drögin þar sem segir:

„Vinnuhópur hanni verklag fyrir sérstaka rafræna heilbrigðisskimun ungmenna þar sem einstaklingar á aldrinum 16 19 ára verði skimaðir fyrir áhættuþáttum offitu og kallaðir inn í sérstakt heilbrigðisviðtal í gegnum framhaldsskólaheilsugæslu gefi niðurstaða skimunar til kynna að þörf sé á inngripi vegna offitu.“

Hildur setur hugmyndina í samhengi við reynslu unglingsstúlkna og samfélagslegan þrýsting:

„Afsakið en... Hvaða kona bara hér sem les þessa færslu mína man eftir að hafa verið á aldrinum 16-19 ára og liðið eins og hún væri alltof feit vegna allskonar skilaboða úr öllum áttum? Framhaldsspurning: Hversu peppaðar hefðuð þið verið fyrir því að RÍKISSTJÓRNIN hefði kallað ykkur á fund til að pota í ykkur og segja ykkur að þið þyrftuð að hætta að vera svona feitar?“

Í færslunni þakkar hún einnig fagfólki sem hafi sent inn umsagnir um málið og hvetur fólk til að kynna sér þær. Hún nefnir sérstaklega umsögn Töru Margrétar Vilhjálmsdóttur, umsögn Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum við HÍ og viðvaranir frá Félag fagfólks um átraskanir. Hún bendir jafnframt á að umsagnarfrestur sé að renna út og hvetur fólk til að láta í sér heyra.

Í viðbót við færsluna skýrir Hildur orðalag sitt þegar hún talar um þungað fólk og vísar þar til sérstakrar aðgerðar í áætluninni:

„(Edit vegna athugasemda: Þegar ég segi „þungaðs fólks“ á ég við þungað fólk. Aðgerð fjögur gengur beinlínis út á að sporna gegn nýgengi offitu á meðgöngu og skilgreina meðferð við offitu á barnshafandi fólki. Af því það er inngripið og afskiptasemin sem þig vantar meðan líkaminn þinn er að búa til heila aðra manneskju.)“

Að lokum birtir hún orðrétta umsögn sína sem hún sendi inn á samráðsgátt stjórnvalda:

„Ég tek undir þær gagnrýnisraddir sem hér hafa heyrst, ekki síst umsögn Töru Margrétar Vilhjálmsdóttur sérfræðings í málaflokknum. Óumbeðið inngrip yfirvaldsins í líf þungaðs fólks í þessu samhengi er ekki líklegt til að valda öðru en tjóni, skorti á trausti og tilheyrandi sársauka. Hugmyndin um að hið opinbera kalli unglinga á sinn fund ef þau eru eða gætu orðið feitari en æskilegt þykir er fráleit í heimi þar sem tíðni átröskunarsjúkdóma er á hraðri uppleið. Hvaða unglingur gæti mögulega gengið út af slíkum fundi líðandi betur með sig og lífið sitt? Ég skil ekki hvernig þessi hugmynd komst áfram. Hefur ekkert höfundanna verið unglingar?“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé
Menning

Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé

„Við erum sennilega eitt af þessum böndum sem trúa því að þau eigi eitthvað eftir ósagt.“
Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd
Heimur

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna
Heimur

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Vísar á bug sölu á Landsvirkjun
Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Loka auglýsingu