Stórleikarinn Aaron Morton og Lilja Rúríksdóttir, eiginkona hans, skelltu sér í veislu hjá Vanity Fair í vikunni.
Viðburðurinn fór fram á hinum glæsilega stað Bar Marmont á Sunset Boulevard í Los Angeles og safnaði saman nýrri kynslóð stjarna úr kvikmynda-, tónlistar- og tískuheiminum.
Gestgjafar kvöldsins voru leikkonan Odessa A’Zion, fyrirsætan Kaia Gerber og leikarinn Tyriq Withers.
Veislan, sem er orðin fastur liður í Óskarsvikunni í Hollywood, er þekkt fyrir að setja sviðsljósið á unga og upprennandi hæfileika í skemmtanaiðnaðinum. Með „Hollywood-chic“ klæðaburði, klassískum kokteilum og andrúmslofti sem minnir á gullöld kvikmyndanna, var kvöldið haldið í anda hins gamla Hollywood-stíls sem staðurinn er þekktur fyrir.
Veislunni er jafnan ætlað að fagna nýrri kynslóð listamanna og skapandi einstaklinga í Hollywood, og enn á ný markaði hún upphafið að spennandi Óskarshelgi þar sem ungt og efnilegt fólk í bransanum fær að njóta sviðsljóssins.
Aaron er einn af þeim ungu leikurum en hann hefur slegið í gegn í Fallout-þáttunum sem hafa notiði gífurlegra vinsælda.


Komment