1
Innlent

Lögfræðinemi segir frá niðurlægingu á árshátíð Lögréttu

2
Fólk

Hafði ekki efni á Kristmundi Axel

3
Peningar

Kári Stefánsson og Hannes Smárason stofna saman fyrirtæki

4
Innlent

Matvælastofnun varar við reyktum laxi og silungi

5
Innlent

Alexander tekinn með hníf, sveppi og glás af peningum

6
Fólk

Tilkomumikið einbýli í Mosfellsbæ á sölu

7
Heimur

Vangaveltur um heilsubrest Pútíns kvikna aftur

8
Heimur

Tugir ferðamanna féllu í sjóinn þegar tvíbytna sökk í Karíbahafi

9
Innlent

Líkamsárás í Laugardal

10
Fólk

Jón Gnarr leitar að surströmming á Íslandi

Til baka

„Þeim fannst prófið leiðinlegt og settu bara krossinn einhvers staðar”

Hulda Dögg Proppé segir að undanfarin misseri hafi átt sér stað miklar umræður um skólamál og skólakerfið í heild sinni

Hulda Dögg Proppé
Hulda Dögg ProppéRæðir um PISA könnunina

Hulda Dögg Proppé er deildarstjóri í Sæmundarskóla og aðjúnkt við Háskóla Íslands og segir hún að undanfarin misseri hafi átt sér stað miklar umræður um skólamál og skólakerfið í heild sinni.

Hún segir að umhverfi grunnskólans hafi breyst mikið frá því sem áður var:

Pisa könnun

„Það er fagnaðarefni að fólk hafi áhuga á því gríðarlega mikilvæga starfi sem þar fer fram en um leið er mikilvægt að umræðan sé á uppbyggilegum nótum“ segir hún og færir í tal að á tímum breytinga megi „færa rök fyrir því að fagmennska sé mikilvægasta veganestið því hún er rauði þráðurinn í öllu starfi breytinga í skólum.“

austurbaejarskoli7

Hulda segir að það sé „mín reynsla að kennarar þessa lands vinni af heilindum, leggi sig fram um að mæta nemendum þar sem þeir eru“ og séu stöðugt að leita leiða til að „skapa þær aðstæður að nám geti átt sér stað“ en segir þó að „sitt sýnist hverjum og ýmsum forsendum er skellt á borðið.“

reykjavík 3

Hún segir námsmatskvarða oft bera á góma í umræðu um grunnskólann og segir að sumir nefni „að námsmatið sé óraunhæft og skili takmarkaðri vitneskju um stöðu nemenda“ og að „raunin“ sé sú að „námsmatskvarðinn A, B, C er mun meira lýsandi fyrir nemendur heldur en tölukvarði og nemendur fá mun betri „lýsingu á hæfni sinni, hvar þeir hafa bætt sig og að hverju er raunhæft að stefna.“

Samstöðufundur Ísland þvert á flokka laugardaginn 14. júní

Segir Hulda að námsmatskvarðinn gefi kennurum tækifæri til að kenna út frá markmiðum, nemendur átti sig betur á eigin stöðu og „námsmeðvitund þeirra eykst svo um munar“ og um leið „gefst foreldrum betra tækifæri til að fylgjast með námi barna sinna.“

Hún segir að aðalnámskrá grunnskóla hafi verið gefin var út árið 2011 og „boðaði þessar róttæku breytingar á námsmatskerfinu en undirbúningur hefði vissulega mátt vera mun betri“ en engu að síður er fjöldi „skóla sem nýtir kerfið sem námskráin boðar á markvissan og upplýsandi hátt og uppskeran er ríkuleg.“

Hulda segir að námsmat byggt á tölukvarða sé hins vegar einng huglægt og þar semur kennarinn próf - ákvarðar stig fyrir hverja spurningu og allt traust er sett á fagmennsku við að telja stig en „með bókstafakerfinu er hins vegar auðveldara að rýna í fyrir hvað nákvæmlega er gefið, hvað það er sem liggur til grundvallar matinu og þannig gefur það nemendum innsýn í uppskeru, tækifæri til markmiðasetningar og almenns samtals um námið.“

Sæbraut hús2

Og segir hún að „þar komum við að kjarna málsins, því sem helst hefur verið notað til að stjaksetja skólakerfið í heild sinni. PISA. Þegar fyrirlögn PISA prófsins nálgast fer af stað mikil vinna innan skólanna við að hvetja nemendur til að gera sitt besta. Það sé mikilvægt fyrir skólakerfið að vita hvar Ísland stendur og þau séu þar mikilvægur hlekkur. Prófið er hins vegar langt og ramminn er stífur. Nemendur fá einungis stutta pásu, og eflaust hefði verkalýðsforystan eitthvað út á skipulagið að setja.“

Hún segir að fyrirlögnin þurfi þó að vera eins í öllum löndum og því megi engu breyta:

Nám PISA

„Í takti við aukna námsmeðvitund er hins vegar ein fyrsta spurning nemenda þegar prófið er kynnt: ,,Fáum við einkunn fyrir þetta?” Jafnvel þó nemendur sé hvattir til að gera sitt besta, nýta prófið sem æfingu, þá er alltaf ákveðinn hluti nemenda sem gerir það ekki - sá hluti sem er hagnaðardrifinn og veit að hann fær ekki beina endurgjöf. Þeim nemendum finnst þetta ekki skipta neinu máli.“

Í vor spjallaði Hulda við nemendur er gengu út úr prófinu áðurnefnda og segir að þrátt fyrir allskonar samræður fyrir prófið og hvatningu um að öll gerðu sitt besta gekk nokkuð stór hluti út hlæjandi:

„Þeim fannst prófið leiðinlegt, sáu engan tilgang með því að leggja sig fram og ,,settu bara krossinn einhvers staðar. Þetta skiptir hvort eð er engu máli.” Sá hluti var að stærstum hluta drengir.“

Hún segir að „niðurstöðurnar eru hins vegar blóðmjólkaðar og hrópin enduróma - drengir þessa lands eru upp til hópa ólæsir.“

Nám

Og bætir því við að það er „eðlilegt að nemendur 10. bekkjar viti hvað gagnast þeim og hvað ekki. Það má teljast eðlilegt að stór hluti taki bara þátt að nafninu til. Það er hins vegar langt í frá eðlilegt að grunnskólar landsins séu stjaksettir vegna útkomunnar.“

Hulda fagnar allri umræðu um skólamál „sé hún málefnaleg og fagleg. Því miður eru PISA niðurstöður ekki innlegg í þess háttar umræðu. Það væri gott ef þeim væri tekið með töluverðum fyrirvara. Þá getum við farið að ræða saman af alvöru.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Þjófur gómaður í miðju innbroti
Innlent

Þjófur gómaður í miðju innbroti

Lögfræðinemi segir frá niðurlægingu á árshátíð Lögréttu
Myndband
Innlent

Lögfræðinemi segir frá niðurlægingu á árshátíð Lögréttu

Tyrknesk herflugvél með 20 um borð hrapaði í Georgíu
Myndband
Heimur

Tyrknesk herflugvél með 20 um borð hrapaði í Georgíu

Rúmlega 230 stöðumælasektir á hverjum degi í Reykjavík
Innlent

Rúmlega 230 stöðumælasektir á hverjum degi í Reykjavík

Vangaveltur um heilsubrest Pútíns kvikna aftur
Heimur

Vangaveltur um heilsubrest Pútíns kvikna aftur

Matvælastofnun varar við reyktum laxi og silungi
Innlent

Matvælastofnun varar við reyktum laxi og silungi

Jón Gnarr leitar að surströmming á Íslandi
Fólk

Jón Gnarr leitar að surströmming á Íslandi

Kári Stefánsson og Hannes Smárason stofna saman fyrirtæki
Peningar

Kári Stefánsson og Hannes Smárason stofna saman fyrirtæki

Hafði ekki efni á Kristmundi Axel
Fólk

Hafði ekki efni á Kristmundi Axel

Tugir ferðamanna féllu í sjóinn þegar tvíbytna sökk í Karíbahafi
Heimur

Tugir ferðamanna féllu í sjóinn þegar tvíbytna sökk í Karíbahafi

Tilkomumikið einbýli í Mosfellsbæ á sölu
Myndir
Fólk

Tilkomumikið einbýli í Mosfellsbæ á sölu

Íslenskur landi fær gull í Las Vegas
Landið

Íslenskur landi fær gull í Las Vegas

Alexander tekinn með hníf, sveppi og glás af peningum
Innlent

Alexander tekinn með hníf, sveppi og glás af peningum

Innlent

Þjófur gómaður í miðju innbroti
Innlent

Þjófur gómaður í miðju innbroti

Lögfræðinemi segir frá niðurlægingu á árshátíð Lögréttu
Myndband
Innlent

Lögfræðinemi segir frá niðurlægingu á árshátíð Lögréttu

Rúmlega 230 stöðumælasektir á hverjum degi í Reykjavík
Innlent

Rúmlega 230 stöðumælasektir á hverjum degi í Reykjavík

Matvælastofnun varar við reyktum laxi og silungi
Innlent

Matvælastofnun varar við reyktum laxi og silungi

Alexander tekinn með hníf, sveppi og glás af peningum
Innlent

Alexander tekinn með hníf, sveppi og glás af peningum

Loka auglýsingu