1
Stjórnandinn

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla

2
Innlent

Segir frá ofbeldi fyrrverandi tengdadóttur

3
Fólk

Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista

4
Pólitík

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu

5
Pólitík

Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump

Til baka

Víkingar taka til og láta tvo þjálfara fjúka

Knattspyrnudeild Víkings er ekki ánægð með frammistöðu kvennaliðsins í knattspyrnu og hefur nú gert breytingar

Bjössi og John
John Henry Andrews og Björn Sigurbjörnsson voru þjálfarar kvennaliðs VíkingsVoru látnir fara í dag
Mynd: Knattspyrnudeild Víkings.

Breytingar voru gerðar í dag á þjálfarateymi meistaraflokks kvenna hjá Víkingum.

Í tilkynningu sem knattspyrnudeild Víkings sendi frá sér segir að John Henry Andrews þjálfari meistaraflokks kvenna og Björn Sigurbjörnsson aðstoðarþjálfari liðsins hafi látið af störfum sem þjálfarar meistaraflokks kvenna.

Þar segir að John hafi tekið við þjálfun liðsins í nóvember 2019 og náð frábærum og eftirtektarverðum árangri í sínu starfi.

John fékk það mikilvæga verkefni í hendurnar að byggja upp nýjan meistaraflokk kvenna hjá félaginu og á þessum tíma sigraði liðið Lengjudeildina 2023, varð Mjólkurbikarmeistari árið 2023 og lenti í þriðja sæti Bestu deildar kvenna í fyrra.

Aðstoðarþjálfarinn Björn kom inn í þjálfarateymi Víkings haustið 2024. Hann þjálfaði áður um árabil hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Kristianstads DFF og síðan Selfoss, áður en hann sneri heim í Víking.

Segir í tilkynningunni að það sé ákvörðun stjórnar knattspyrnudeildar Víkings að tímabært sé nú að gera breytingar með hagsmuni liðsins og framtíðaruppbyggingu að leiðarljósi.

Stjórn knattspyrnudeildar Víkings þakkar John og Birni fyrir samstarfið og óskar þeim velfarnaðar og hamingju í næstu verkefnum, en stjórnin hefur hafið undirbúning að ráðningu nýs þjálfara og verður tilkynnt um framhaldið þegar það liggur fyrir.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Segir frá ofbeldi fyrrverandi tengdadóttur
Innlent

Segir frá ofbeldi fyrrverandi tengdadóttur

Stúlkan hafi hótað öllu illu og lagt piltinn í lífshættu.
Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump
Pólitík

Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu
Pólitík

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu

Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista
Myndir
Fólk

Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla
Viðtal
Stjórnandinn

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði
Myndir
Fólk

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði

Hver er Lúkas Geir?
Nærmynd
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair
Fólk

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair

Sport

Skráði sig í sögubækurnar með hvelli
Myndband
Sport

Skráði sig í sögubækurnar með hvelli

Ótrúlegur leikur Bam Adebayo mun seint gleymast
Guðmundur fær tólf mánaða styrk
Sport

Guðmundur fær tólf mánaða styrk

Sigmundur Davíð hrósar innflytjendum
Sport

Sigmundur Davíð hrósar innflytjendum

Íþróttalýsir gagnrýndi ísraelskan keppanda í beinni á Vetrarólympíuleikunum
Sport

Íþróttalýsir gagnrýndi ísraelskan keppanda í beinni á Vetrarólympíuleikunum

Stelpurnar mæta heimsmeisturunum
Sport

Stelpurnar mæta heimsmeisturunum

Reykjavíkurborg leyfir bjórnum að flæða
Sport

Reykjavíkurborg leyfir bjórnum að flæða

Loka auglýsingu