
Storm orka ehf. hefur lagt fram skýrslu vegna umhverfismats fyrir 118,8 MW vindorkuver að Hróðnýjarstöðum í Dalabyggð. Öll geta kynnt sér skýrsluna og veitt umsögn í gegnum Skipulagsgáttina til 25. ágúst 2025.
Áætlað er að reisa 18 vindmyllur á landi við Hróðnýjarstaði í Dalabyggð, hver með 6,6 MW afl. Eins og er hefur Ísland ekkert vindorkuver af þessari stærð. Einungis tvær vindmyllur eru starfandi hjá Landsvirkjun sem eru norðan við Búrfell. Hvor vindmyllan um sig hefur 0,9 MW uppsett afl. Því er ljóst er að verkefni Stormorka ehf. yrði mun stærra en Íslendingar hafa séð hingað til
„Svæði fyrirhugaðs vindorkugarðs að Hróðnýjarstöðum í Dalabyggð einkennist af nokkuð flötu landi sem hallar með nokkuð jöfnum og aflíðandi halla niður að sjó í Hvammsfirði. Nokkuð mikil víðsýni er víða innan svæðisins en landslagið er nokkuð fjölbreytt og má sjá heiðar, strandlengjur, fjöll og dali. Vindmyllurnar eru há mannvirki og verða staðsettar Hvammsfjarðarmegin við Laxárdalsheiði og verða því sýnilegar á stóru svæði í Hvammsfirði. Vegna stærðar vindmyllanna og hreyfingar spaðanna mun vindorkugarðurinn verða nýtt og áberandi, jafnvel ríkjandi kennileiti í landslaginu á þessu svæði. Víðast hvar í nágrenni vindorkugarðsins er lítið um gróður eða byggingar sem skyggja á sýn áhorfandans,“ er skrifað í umhverfismatsskýrslunni. Helsta gagnrýnin við vindorkuver snýr að sjónmengun landsins en stærð vindmylla gerir það óhjákvæmilegt að þær hafi áhrif á ásýnd.
Eigendur Storm Orku eru Sigurður Eyberg Jóhannesson og Magnús B. Jóhannesson, en þeir eru bræður. Magnús komst í fréttirnar árið 2019 þegar hann vildi kaupa Hellisheiðarvirkjun af sveitarfélögunum Reykjavíkurborg, Akraneskaupstað og Borgarbyggð. Hann var áður framkvæmdastjóri bandarísks orkufyrirtækis, America Renewables.

Áhrif á fuglalíf er einnig meðal helstu gagnrýni á aukningu vindmylla en þær geta verið fuglum lífshættulegar. „Gögn frá GPS senditækjum sem sett hafa verið á unga haferni sýna þó að helstu flugleiðir þeirra liggja ekki um framkvæmdasvæðið heldur meðfram ströndum Breiðarfjarðar annars vegar og hinsvegar með Laxá í Dölum“ kemur fram í undirkafla skýrslunnar um fuglalíf á svæðinu.
Vakin er athygli á að Stormorka ehf. stendur fyrir kynningarfundi á umhverfismatsskýrslu þann 21. ágúst 2025 kl. 20:00 í Dalabúð. Öll sem vilja kynna sér fyrirhugaða framkvæmd eru velkomin.
Komment