
Vinsæl bandarísk íþróttafréttakona og eiginmaður hennar hafa fundist látin á heimili sínu og grunar lögreglu að um morð og sjálfsvíg hafi verið að ræða.
Íþróttafréttakonan Christina Chambers og eiginmaður hennar, Johnny Rimes, sem áttu saman þriggja ára son og gengu í hjónaband árið 2021, fundust með skotsár á heimili sínu af ættingja við afar átakanlegar aðstæður. Sonur þeirra slapp ómeiddur.
Lögregla var kölluð að heimili parsins í Alabama í Bandaríkjunum klukkan 9 að morgni þriðjudags eftir að ættinginn fann þau látin. Lögregluyfirvöld í Hoover staðfestu að bæði Christina og Johnny hefðu látist af völdum skotsára og sögðu í tilkynningu:
„Slökkvilið og sjúkraflutningamenn frá Hoover komu á vettvang og lýstu karl og konu látin vegna skotsára. Þrátt fyrir að rannsókn sé á frumstigi bendir allt til þess að dauðsföllin hafi orðið vegna morðs og sjálfsvígs og engin hætta sé talin steðja að almenningi í tengslum við málið.“
Samkvæmt LinkedIn-síðu Johnny Rimes starfaði hann sem fjármálasérfræðingur hjá American Cast Iron Pipe Company í tæp 14 ár. Fréttastofan WBRC, þar sem Christina starfaði í áratug, minntist hennar með hlýjum orðum.
Í yfirlýsingu til ABC 33/40 sagði stöðin:
„Við erum harmþrungin yfir að staðfesta andlát fyrrverandi WBRC-fréttamannsins Christinu Chambers. Christina var mikils metin innan fréttastofunnar og ástkær samstarfskona sem hafði djúpstæð áhrif á alla sem unnu með henni með hlýju sinni, húmor og ástríðu fyrir íþróttum.
Christina var afburða blaðamaður og íþróttakona sem færði störfum sínum orku, fagmennsku og einlæga umhyggju,“ segir ennfremur. „Hún var sérstaklega stolt af tengslum sínum við UAB-háskólann, framhaldsskólaíþróttir og samfélagið sitt. Við biðjum fyrir fjölskyldu, vinum og ástvinum Christinu á þessum gríðarlega erfiðu tímum.“
Samstarfsfólk hennar á WBRC minntist hennar einnig í fréttatíma síðdegis á þriðjudag. Einn fyrrverandi samstarfsmaður hennar sagði í tilfinningaþrunginni yfirlýsingu:
„Að þekkja Christinu var að þekkja gleði.“
Christina hóf störf hjá WBRC, sem er tengt Fox News, í nóvember 2015. Hún sinnti einkum umfjöllun um íþróttir, þar á meðal háskóla- og framhaldsskólafótbolta í Alabama og Georgíu.
Eftir að hún giftist Johnny hóf hún störf sem kennari við staðbundinn framhaldsskóla þar sem hún leiðbeindi nemendum í sjónvarps- og kvikmyndagerð. Samhliða því tók hún að sér einstök lausamennskuverkefni í fréttamennsku.
Rannsókn á andláti hjónanna stendur enn yfir.
Í þessari grein er fjallað um mögulegt sjálfsvíg
Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.

Komment