LandiðSeyðfirðingar drógu línu í sjóinn – Friðlýstu fjörðinn með neyðarblysum16. október 2024 Þann 12. október síðastliðinn var haldinn samstöðufundur gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði undir heitinu „Við drögum línu í sjóinn – Verndum Seyðisfjörð“. Á fundinum var sýnt nýtt myndband sem sýnir samstöðugjörning þar sem kajakræðarar draga línu í sjóinn með því að raða sér upp í röð, kveikja á neyðarblysum og loka þannig firðinum með táknrænum hætti. Lagið Oral sem Björk Guðmundsdóttir...