Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Seyðfirðingar drógu línu í sjóinn – Friðlýstu fjörðinn með neyðarblysum

Seyðfirðingar drógu línu í sjóinn – Friðlýstu fjörðinn með neyðarblysum
Katrín Odds­dóttir hélt ræðu á fund­inum. Mynd: Juanjo Ivaldi

Þann 12. októ­ber síð­ast­lið­inn var hald­inn sam­stöðu­fundur gegn sjó­kvía­eldi í Seyð­is­firði undir heit­inu „Við drögum línu í sjó­inn – Verndum Seyð­is­fjörð“. Á fund­inum var sýnt nýtt mynd­band sem sýnir sam­stöðu­gjörn­ing þar sem kajakræð­arar draga línu í sjó­inn með því að raða sér upp í röð, kveikja á neyð­ar­blysum og loka þannig firð­inum með tákn­rænum hætti. Lagið Oral sem Björk Guð­munds­dóttir samdi og flytur ásamt stór­stjörn­unni Rosalíu ómar undir mynd­skeið­inu, en lagið gaf Björk til bar­átt­unnar gegn sjó­kvía­eldi við Ísland.

Frá sam­stöðu­fund­inum.

Samkvæmt skoð­ana­könnun Gallup sem gerð var fyrir sveit­ar­fé­lagið Múlaþing eru 75 pró­sent Seyð­firð­inga and­vígir sjó­kvía­eldi í firð­inum. Ekki er til for­dæmi fyrir við­líka and­stöðu heima­manna en svo virð­ist sem nei­kvæð afstaða yfir­gæf­andi meiri­hluta bæj­ar­búa nægi ekki til þess að stöðva áform um meng­andi stór­iðju í þeirra nærum­hverfi, eins og fram kemur í frétta­til­kynn­ingu frá AEGIS-hópnum (VÁ félag um vernd fjarðar, Land­vernd, Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands, Ungir umhverf­is­sinnar, SUNN – Samtök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi, NASF – Vernd­ar­sjóður villtra laxa og Íslenski nátt­úru­vernd­ar­sjóð­ur­inn, auk fjölda þjóð­þekktra ein­stak­linga).

Herðu­breið skreytt með ljósa­list.

Fullt var út úr húsi í félags­heim­il­inu Herðu­breið þar sem boðið var upp á plokk­fisk, tón­list og talað mál. Á meðal ræðu­manna voru Ómar Ragn­ars­son sem minnti á að bar­átta á borð við þá sem Seyð­firð­ingar sé bar­átta fyrir jörð­inni allri sem á undir högg að sækja gegn gróðra­öflum. Þá fluttu ræður Chris Burkard ljós­mynd­ari og nátt­úru­unn­andi sem og Árni Pétur Hilm­ars­son bóndi úr Laxárdal sem rifj­aði meðal ann­ars upp ein­stakan við­burð úr heima­sveit hans þegar bændur úr Suður-Þing­eyj­ar­sýslu tóku sig saman árið 1970 og sprengdu í loft upp stíflu í Laxá og tókst þannig að koma í veg fyrir eyði­legg­ingu Laxár og Mývatns. Aðgerðin er af ýmsum talin hafa markað upp­haf nátt­úru­vernd­ar­bar­áttu á Íslandi.

Fullt var í Herðu­breið.

Í frétt sem birt­ist á dag­inn eftir sam­stöðu­fund Seyð­firð­inga á RÚV undir fyr­ir­sögn­inni var full­yrt að Mat­væla­stofnun segði ekk­ert benda til ann­ars en að leyfi verði gefið út til lax­eldis í Seyð­is­firði fyrir næsta vor. Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu að um er að ræða alvar­lega full­yrð­ingu að ræða að mati and­stæð­inga sjó­kvía­eldis, þar sem bæði skipu­lag og fram­kvæmd sé haldin veru­legum ágöllum sem skera þurfi úr um hvort stand­ist kröfur laga áður en hægt er að full­yrða nokkuð um mögu­legar leyf­is­veit­ingar, enda hafa þær ekki verið aug­lýstar og því form­leg and­mæli ekki komið fram.

Frá sam­stöðu­fund­inum.

Enn­fremur segir í frétta­til­kynn­ing­unni: „Þá er vakin athygli á því að enn hefur ekki verið skorið úr um fjöl­mörg álita­mál er tengj­ast nýlegum leyf­is­veit­ingum MAST til sjó­kvía­eldis á Vest­fjörðum en eru nú til máls­með­ferðar hjá Úrskurða­nefnd umhverfis og auð­linda­mála.“

Frá sam­stöðu­fund­inum. Ljósmynd; Juanjo Ivaldi

Að lokum segir:

„Eru alvar­legir ágallar meðal ann­ars fólgnir í því að ekki er búið að taka til­lit til þeirrar ógnar við fjar­skipta­ör­yggi sem fyr­ir­hug­uðu sjó­kvía­eldi fylgir vegna svo­kall­aðs Faricestrengs sem liggur um Seyð­is­fjörð og er grund­völlur þriðj­ungs fjar­skipta­ör­yggis Íslands við umheim­inn og enn stærri hluti af fjar­skipta­neti Færeyja. Hafa umsagnir félags­ins Farice ehf. sem er í rík­i­s­eigu þannig verið huns­aðar af yfir­völdum en þar kemur fram að nauð­syn­legt sé að breyta fjar­skipta­lögum til að tryggja öryggi strengs­ins ef af fyr­ir­hug­uðu eldi í Seyð­is­firði verður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil