Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Stefnt er að því að kerfið taki gildi í maí 2027

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Gullfoss Mynd: Nickspix/Wikipedia

Virti banda­ríski fjöl­mið­ill­inn Forbes fjallar um fyr­ir­hugað nátt­úru- og inn­viða­gjald íslenskra stjórn­valda sem myndi leggj­ast á erlenda ferða­menn sem heim­sækja Þing­velli, Geysi og Gullfoss.

Forbes bendir á að Gullni hring­ur­inn sé meðal vin­sæl­ustu ferða­manna­leiða Íslands og nán­ast ómissandi við­komu­staður margra sem heim­sækja landið í fyrsta sinn.

Samkvæmt frum­varps­drögum stjórn­valda myndu ein­stak­lingar 18 ára og eldri, sem ekki eru frá Íslandi, greiða 4.500 krónur fyrir aðgang að stöð­unum frá júní til októ­ber. Frá nóv­em­ber til maí yrði gjaldið 3.000 krónur.

Forbes tekur fram að raf­rænn aðgangspassi myndi gilda á alla þrjá stað­ina í eitt ár. Stefnt er að því að kerfið taki gildi í maí 2027 en til­lög­urnar eru enn í sam­ráðs­ferli.

Í umfjöllun Forbes kemur fram að kostn­aður ferða­manna gæti þó orðið meiri. Hætt yrði að inn­heimta bíla­stæða­gjald á Þing­völlum en áfram yrði rukkað fyrir bíla­stæði við Geysi og Gullfoss, þar sem þau eru í einka­eigu. Bíla­stæða­gjaldið er nú um 1.200 krónur á hvorum stað. Ferða­maður á eigin bíl gæti því greitt sam­tals um 6.900 krónur fyrir Gullna hring­inn að sumri.

Forbes greinir einnig frá gagn­rýni íslenskrar ferða­þjón­ustu á hug­mynd­ina. Björn Ragn­ars­son, for­stjóri Icelandia, hefur bent á að 4.500 króna gjaldið sam­svari um 40 pró­sentum af verði Gullna hrings ferðar.

Hanna Katrín Frið­riks­son atvinnu­vega­ráð­herra hefur varið til­lög­urnar og bent á að íslenskir skatt­greið­endur standi nú þegar undir kostn­aði við inn­viði og nátt­úru­vernd.

Forbes setur málið jafn­framt í nor­rænt sam­hengi og bendir á að sam­bæri­leg þróun eigi sér stað í Noregi, þar sem unnið er að nýjum gjöldum á ferða­menn. Þar á meðal eru fyr­ir­huguð gistin­átta­gjöld og sér­stök gjöld á far­þega skemmti­ferða­skipa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Furðu­verur fæð­ast í fjár­hús­inu

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil