Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ferða­mála­stofa fund­aði um öryggi Stuðla­gils

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Stuðla­gil Til stendur að bæta öryggi gesta við Stuðla­gil Mynd: Misha Martin/Unsplash

Skoða á mögu­leika á að koma upp ein­földum björg­un­ar­bún­aði við Stuðla­gil í kjöl­far banaslyss þar í lok ágúst. Einnig þarf að bæta fjar­skipti, efla við­bragðs­getu og tryggja að ferða­menn haldi sig frá hættu­leg­ustu svæð­unum.

Þetta kemur fram eftir fund Ferða­mála­stofu með hag­að­ilum í kjöl­far þess að erlendur ferða­maður féll í ána og drukkn­aði en Aust­ur­frétt sagði frá nið­ur­stöðum fund­ar­ins.

Meðal þess sem til stendur að skoða er upp­setn­ing kast­lína og björg­un­ar­hringja sem gestir eða starfs­fólk í nágrenn­inu gætu nýtt sér þegar slys verða. Slíkur bún­aður hentar ekki við allar aðstæður en gæti komið að gagni í ákveðnum til­vikum.

Fjarskipti og viðbrögð í brennidepli

Stuðla­gil er fjarri þétt­býli og því getur tekið tíma fyrir björg­un­ar­að­ila að kom­ast á vett­vang. Því er mik­il­vægt að efla við­bragðs­getu á svæð­inu, skýra verka­skipt­ingu og tryggja að land­eig­endur og rekstr­ar­að­ilar fái upp­lýs­ingar þegar slys verða.

Einnig þarf að bregð­ast við vanda­málum með Tetra-fjar­skipta­kerfið, en trufl­anir komu upp í aðgerðum í ágúst þrátt fyrir að fjar­skipti hefðu verið bætt eftir banaslys árið 2024.

Eft­ir­lits­mynda­vélar eru einnig til skoð­unar. Þær gætu auð­veldað rann­sókn slysa og hjálpað við að stað­setja fólk sem fellur í ána, en slíkur bún­aður krefst áreið­an­legs raf­magns og fjar­skipta.

Ferðamönnum beint frá hættusvæðum

Ekki er talið raun­hæft að loka Stuðla­gili alveg. Þess í stað verður horft til þess að stýra umferð gesta með girð­ingum, böndum, hliðum og örugg­ari göngu­leiðum.

Einnig á að end­ur­skoða örygg­is­merk­ingar og gera þær ein­fald­ari og mynd­rænni svo gestir átti sig betur á hætt­unum.

Nið­ur­staðan er sú að tryggja þurfi öryggi við Stuðla­gil með sam­stilltum aðgerðum, meðal ann­ars með bættum innviðum, skýr­ari upp­lýs­inga­gjöf og öfl­ugri við­bragðs­getu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Furðu­verur fæð­ast í fjár­hús­inu

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi