Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslendingar sem vöktu athygli á árinu 2018

Rit­stjórn Mannlífs tók saman lista yfir nokkra Íslend­inga sem hafa vakið athygli fyrir fram­göngu sína á árinu sem er að líða.

Íslendingar sem vöktu athygli á árinu 2018
|||||
Elísabet Mar­geirs­dóttir.

Elísabet Margeirsdóttir

Nær­ing­ar­fræð­ing­ur­inn og hlaupa­konan Elísabet Mar­geirs­dóttir vann hug og hjörtu þjóð­ar­innar þegar hún kláraði 409 kíló­metra hlaup í gegnum Góbí eyði­mörk­ina í Kína. Ekki nóg með að hún kláraði hlaupið heldur varð hún í 9. sæti af 60 og lang­fyrst kvenna. Hún hljóp kíló­metrana 409 á 96 klukku­stundum og 54 mín­útum og varð fyrsti Íslend­ing­ur­inn til að ljúka þess­ari þol­raun.

Sigurður Kjartan Hilmarsson

Sigurður Kjartan Hilm­ars­son seldi fyr­ir­tæki sitt, The Icelandic Milk and Skyr Corporation, til franska mat­væl­aris­ans Lactalis fyrir um 30 millj­arða króna í byrjun árs­ins. Það var 14 árum eftir að hann hóf að gera til­raunir með skyr­fram­leiðslu í eld­hús­inu heima hjá sér en á þeim tíma byggði hann upp vöru­merkið Siggi´s Skyr af mik­illi elju.

Helga Elín Her­leifs­dóttir.

Þær rufu þögnina

Helga Elín Her­leifs­dóttir, Kiana Sif Limehouse og Lovísa Sól Sveins­dóttir sýndu ein­stakt hug­rekki á árinu þegar þær stigu fram í fjöl­miðlum og lýstu meintu kyn­ferð­is­of­beldi sem þær urðu fyrir af hendi sama manns­ins, lög­reglu­manns sem þær höfðu báðar kært en mál­unum var vísað frá og mað­ur­inn hélt starfi sínu. Helga Elín og Kiana Sif, prýddu báðar for­síður Mannlífs sem greindi fyrst frá mál­inu, en með því að rjúfa þögn­ina vildu þær m.a. vekja athygli á brota­lömum á rann­sókn­inni og kerfi sem brást.

Sjá einnig: „Rík­is­lög­reglu­stjóri brást dóttur minni“

Sjá einnig: „Kvöldið áður en ég sagði frá mis­not­aði hann mig í sein­asta skiptið“

Benedikt Erlingsson

Benedikt Erlings­son hefur á und­an­förnum árum skipað sér í hóp athygl­is­verð­ustu leik­stjóra Evrópu og 2018 var honum einkar gjöf­ult. Kvikmynd hans Kona fer í stríð hefur farið mik­inn á kvik­mynda­há­tíðum víða um heim og hlaut meðal ann­ars Kvik­mynda­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs. Á dög­unum var svo greint frá því að stór­leik­konan Jodie Foster muni leik­stýra og leika aðal­hlut­verkið í enskri útgáfu mynd­ar­innar.

Bára Tóm­as­dóttir.

Bára Tómasdóttir

Einar Darri Ósk­ars­son lést í maí á þessu ári eftir neyslu róandi lyfja, 18 ára gam­all. Bára Tóm­as­dóttir, móðir Einars Darra, stofn­aði í kjöl­farið minn­ing­ar­sjóð um son sinn og setti for­varnar­átakið Ég á bara eitt líf á lagg­irnar með það að mark­miði að varpa ljósi á fíkni­efna­vand­ann á Íslandi.

Bára Halldórsdóttir

Bára Hall­dórs­dóttir setti íslenskt stjórn­mála­líf á annan end­ann þegar hún tók upp sam­ræður þing­manna Mið­flokks­ins og Fólks flokks­ins á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber. Málinu er þó ekki lokið fyrir Báru því þing­menn Mið­flokks­ins stefndu henni fyrir dóm til að gera frek­ari grein fyrir upp­tök­unum. Málið mun koma til kasta Lands­réttar auk þess sem Per­sónu­vernd skoðar málið.

Ísold Uggadóttir

Ísold Ugga­dóttir vakti heims­at­hygli þegar hún var fyrst Íslend­inga valin besti alþjóð­legi leik­stjór­inn í flokki alþjóð­legrar kvik­mynda­gerðar á Sundance-kvik­mynda­há­tíð­inni í Utah í Banda­ríkj­unum snemma á árinu. Mynd hennar „Andið eðli­lega“ hefur hlotið lof gagn­rýnenda um allan heim og sópað til sín verð­launum og svo virð­ist sem ekki sjái enn fyrir end­ann á þeirri sig­ur­göngu.

Arnór Sig­urðs­son.

Arnór Sigurðsson

Arnór Sig­urðs­son vakti athygli stór­liða í Evrópu fyrir góða frammi­stöðu með sænska lið­inu Norrköp­ing í byrjun árs­ins og það var rúss­neska stór­liðið CSKA Moskva sem bauð best og þangað fór hann í sumar. Þrátt fyrir það vissu ekki margir deili á þessum 19 ára Skaga­manni fyrr en hann sló í gegn í Meist­ara­deild Evrópu þar sem hann skor­aði meðal ann­ars lag­legt mark gegn Evr­ópu­meist­urum Real Madrid á Bernabeu.

Sanna Magdalena Mörtudóttir

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir hefur sann­ar­lega vakið athygli fyrir skel­egga fram­göngu sem odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík og þykir trú­verð­ugur málsvari hinna verst settu. Sós­í­alista­flokk­ur­inn fékk 6,4% atkvæða í Reykja­vík í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum eða meira en tvö­falt meira fylgi en allir nýju flokk­arnir til sam­ans og vilja sumir meina að þetta góða gengi flokks­ins sé að miklu leyti Sönnu að þakka.

Jón Þór Birgisson

Jón Þór Birg­is­son, betur þekktur sem Jónsi úr Sigur Rós, er til­nefndur til Golden Globe-verð­launa fyrir besta lag. Um er að ræða lagið Revelation sem er að finna í kvik­mynd­inni Boy Erased. Nicole Kidman og Russel Crowe eru meðal þeirra sem fara með hlut­verk í mynd­inni. Lagið samdi Jónsi ásamt Brett McLaughlin og Troye Sivan. Golden Globe hátíðin fer fram 7. jan­úar.

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Hjördís Svan Aðalheiðardóttir

Í vor fékk Hjördís Svan Aðal­heið­ar­dóttir fullt for­ræði yfir dætrum sínum þremur eftir átta ára bar­áttu. Dæturnar höfðu búið hér á landi utan kerfis og án vega­bréfa síðan Hjördís sótti þær ólög­lega til Dan­merkur árið 2013 en hún var í kjöl­farið hand­tekin og dæmd í 18 mán­aða fang­elsi fyrir brott­námið.

Sjá einnig: „Stolt af fanga­vist­inni“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi