Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Spilaði fyrir 20 milljónir á tveimur árum

Spilaði fyrir 20 milljónir á tveimur árum
Mynd / epa|Mynd / epa|

„Við getum ekki unað við það lengur að það sé verið að níð­ast á spilafíklum í fjár­öfl­un­ar­skyni,“ segir Alma Haf­steins­dóttir, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi spilafík­ill. Hún birti í vik­unni slá­andi banka­yf­ir­lit manns sem var djúpt sokk­inn í spilafíkn og gagn­rýnir eig­endur spila­kassa harð­lega.

„Banka­yf­ir­lit sýna úttektir fyrir tæp­lega 20 millj­ónir á tveimur árum,“ segir Alma Haf­steins­dóttir, fíkni- og fjöl­skyldu­mark­þjálfi með sér­hæf­ingu í spilafíkn. Hún birti á Facebook brot úr banka­yf­ir­liti spilafíkils, sem tók út rúm­lega eina milljón króna á tveimur dögum.

Alma rekur stofu þar sem hún tekur á móti spilafíklum og fjöl­skyldum þeirra. Hún hefur sjálf glímt við spilafíkn en hefur und­an­farin ár verið ötul bar­áttu­kona gegn spila­kössum og þeim vanda sem þeim fylgir. Í haust voru stofnuð Samtök áhuga­fólks um spilafíkn. Alma segir að ein­stak­ling­ur­inn sem á reikn­ings­yf­ir­litið sem hér er birt, eigi þrjú börn. Sá er að hennar sögn vel mennt­aður, með háskóla­gráðu og var í góðri vinnu. „Þú myndir ekki undir neinum kring­um­stæðum átta þig á því að við­kom­andi glímdi við spilafíkn.“

Alma, sem er að sækja sér rétt­indi sem alþjóð­legur ráð­gjafi fyrir spilafíkla, segir að ein­stak­ling­ur­inn sé á betri stað í dag. Spilafíknin hafi haft gíf­ur­leg áhrif á líf hans. Hann standi uppi eigna­laus en fjöl­skyldan sé smám saman að koma til baka, eins og hún orðar það. „Þarna úti er fullt af svona sögum. Það eru fíkn sögur um skilnað, eigna­missi, þrot og sjálfs­víg. Þessi saga er bara ein af þeim,“ útskýrir hún.

Alma Haf­steins­dóttir.

Spila­kassar á Íslandi eru reknir af Íslands­spilum og Happ­drætti Háskóla Íslands. Rauði kross­inn er stærsti eig­andi Íslands­spila með 64 pró­senta eign­ar­hlut. Slysa­varn­ar­fé­lagið Lands­björg á 26,5 pró­sent og SÁÁ 9,5 pró­sent. Fram kemur á heima­síðu Íslands­spila að til­gang­ur­inn með rekstr­inum sé fjár­öflun til að koma í veg fyrir útgjöld sem ann­ars þyrftu að koma úr rík­is­sjóði.

Posakerfið misnotað

Eins og sjá má á með­fylgj­andi yfir­liti voru flestar úttekt­irnar á veit­inga­staðnum Catalinu. Alma segir að posa­kerfið sé mis­notað með þessum hætti og brýnt sé að setja hömlur á þessa úttekt­ar­leið. Gallinn sé að stað­irnir sem hýsi spila­kass­anna fái hlut­deild af þeirri upp­hæð sem fari í þá. Árið 2018 hafi Happ­drætti Háskóla Íslands og Íslands­spil greitt umboðs­að­ilum 845 millj­ónir króna í umboðs­laun. Hún bendir á að engar reglur séu til um hámark úttekta í gegnum posa, öfugt við hrað­banka. Eigendur spila­kass­anna tali um að það sé rekstr­ar­að­il­anna að setja sér reglur um hámarks­út­tektir en sjálf vill hún meina að ábyrgðin sé hjá eig­endum spila­kass­anna. Þeir séu leyf­is­haf­arnir.

„Það er ekk­ert eft­ir­lit með neinu sem snýr að þessum spila­kössum. Það þarf eng­inn að segja mér að fólkið á þessum stöðum sjái ekki hvað er í gangi – og að það haldi að þarna sé heil­brigt fólk að leggja frjáls fram­lög til styrktar Háskóla Íslands, Rauða kross­ins, Lands­bjargar og SÁÁ,“ segir Alma. Hún segir það algenga mön­tru að spilafíklar séu ómenntað fólk án vinnu. „Þetta eru oft mjög tekju­háir ein­stak­lingar, sem jafn­vel vinna í tveimur til þremur auka­störfum til að fjár­magna spilin,“ útskýrir hún. „Öll inn­koman fer í spila­kass­anna.“

Þeir veikustu noti spilakassa

Rann­sóknir benda til að á bil­inu sjö til tólf þús­und manns glími við alvar­lega spilafíkn. Alma segir að af þeim stundi um tveir þriðju hlutar spila­kassa. Það séu veik­ustu ein­stak­ling­arnir. Hún bendir á að spilafíkn sé við­ur­kenndur sjúk­dómur en þrátt fyrir það séu engin úrræði í boði, nema helg­ar­fyr­ir­lestrar hjá SÁÁ. „Þetta er hrylli­legur sjúk­dómur. Prófaðu að fara á þessa staði, það vill eng­inn tala við þig. Það skamm­ast sín allir fyrir að vera þarna. Þarna eru allir að spila fyrir grunn­fram­færsl­una sína.“

Hún gagn­rýnir harð­lega að neyð spilafíkla skuli af eig­endum Íslands­spila og Háskóla Íslands vera notuð með þessum hætti. „Við getum ekki unað við það lengur að það sé verið að níð­ast á spilafíklum í fjár­öfl­un­ar­skyni.“

Í hæsta áhættuflokki fyrir peningaþvætti

Rík­is­lög­reglu­stjóri segir mikla áhættu á að spila­kassar séu not­aðir til að þvætta fé.

Veruleg hætta er á því að spila­kassar geti verið not­aðir til að þvætta fé, að því er fram kemur í áhættu­mati Embættis rík­is­lög­reglu­stjóra vegna pen­inga­þvættis og fjár­mögn­unar hryðju­verka, sem gefið var út í fyrra. Þar segir meðal ann­ars að skortur á kröfu um gott orð­spor þeirra staða sem hýsa spila­kassa sé alvar­legur veiki­leiki vegna aðgengi þeirra til kaupa á vinn­ingsmiðum. Spila­kass­arnir eru í hæsta áhættu­flokki þegar kemur að pen­inga­þvætti.

Í áhættu­mat­inu segir að hægt sé að spila fyrir 100 þús­und krónur í senn, að hámarki, í spila­köss­unum, sem taki ein­ungis reiðufé. „En slíkt er hægt að end­ur­taka eins oft og vilji stendur til. Hægt er að prenta út vinn­ings­miða án þess að spilað hafi verið eða fáir leikir hafi verið spil­aðir.“

Fram kemur að hvorki Íslands­spil né Happ­drætti Háskóla Íslands geri sér­staka kröfu um orð­spor rekstr­ar­að­ila. Dæmi séu um að samn­ingum við rekstr­ar­að­ila hafi verið rift vegna van­skila eða brota á reglum, til dæmis að ung­menni hafi fengið að spila í köss­unum. Gagnrýnt er að engar reglur séu til staðar um útgreiðslu vinn­inga en algeng­ast sé að vinn­ingar séu greiddir út í reiðufé. Engin áreið­an­leika­könnun fari fram á vinn­ings­hafa þegar spila­staður greiðir út vinn­ing. Aðeins þurfi að gefa upp inn­lendan banka­reikn­ing og kenni­tölu þegar vinn­ingur sé greiddur út raf­rænt. „Ekki er neitt hámark varð­andi þá vinn­inga sem spila­stöðum er heim­ilt að greiða út en sé um mjög háa vinn­inga að ræða og spila­staður ekki með það mikla fjár­muni þarf vinn­ings­hafi að leysa út vinn­ing­inn hjá rekstr­ar­að­ila sem greiðir um 80-90% vinn­inga raf­rænt.“

Alls voru árið 2019, 493 „happ­drætt­is­vélar“ í notkun á 28 stöðum. Þá séu spila­staðir „söfn­un­ar­kassa“ Íslands­spila 76 tals­ins og kass­arnir þeirra séu 379. Samtals eru því 872 spila­kassar í notkun. Heild­ar­veltan var árið 2017 um 11,74 millj­arðar króna og greiddir vinn­ingar 8,1 millj­arður.

Í nið­ur­lagi áhættu­mats­ins, þegar kemur að spila­kössum, segir að veru­leg hætta sé á því að spila­kassar geti verið not­aðir til að þvætta fé. Pen­inga­þvætti í gegnum spila­kassa þarfn­ist ekki sér­fræði­þekk­ingar, sér­staks und­ir­bún­ings eða til­kostn­aðar. „Til­kynn­ingum til skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu hefur fjölgað síð­ast­liðin tvö ár og er grunur um að þessi leið hafi ítrekað verið notuð við þvætti. Samkvæmt fram­an­greindu er hætta í tengslum við spila­kassa mikil.“

Háskól­inn segir að starf­semi HHÍ byggi á lögum og reglu­gerðum settum á grund­velli þeirra.

HHÍ skapi ekki eymd í samfélaginu

Nýstofnuð Samtök áhuga­fólks um fjár­hættu­spila­vand­ann (SÁF) sendi fyr­ir­spurn til Háskóla Íslands í des­em­ber, þar sem spurt var um þá starf­semi Happ­drættis Háskóla Íslands sem snýr að spila­kössum. Hér fyrir neðan eru birtar tvær af þeim spurn­ingum SÁF og kaflar úr svörum háskól­ans.

SÁF: Telja stjórn­endur Háskóla Íslands það sam­fé­lags­lega ábyrgt að fjár­magna starf­semi sína með rekstri spila­kassa sem stuðla að spilafíkn og skapa eymd í sam­fé­lag­inu?

HÍ: Þrátt fyrir að sú vá sem spilafíkn felur í sér sé óum­deild og að þátt­taka í pen­inga­leikjum í happ­drætt­is­vélum geti leitt til ánetj­unar þá verður af hálfu Háskóla Íslands ekki tekið undir þær full­yrð­ingar að starf­semi happ­drætt­is­véla HHÍ skapi eymd í sam­fé­lag­inu. [Starf­semi stofn­un­ar­innar bygg­ist] á lögum og reglu­gerðum settum á grund­velli þeirra. Það er því á for­ræði Alþingis og stjórn­valda að ákveða hvort mæta skuli hús­næð­is­þörf háskól­ans með afrakstri af starf­semi HHÍ eða með öðru fé. Þegar litið er til frum­kvæðis HHÍ á sviði ábyrgrar spil­unar og aðgerða til að stemma stigu við spilafíkn […] verður að telja að gætt sé að þeirri sam­fé­lags­legu ábyrgð sem hvílir á stofn­unum þegar kemur að því að starf­rækja umrædda lög­bundna starf­semi.

SÁF: Í við­tal­inu [í Morg­un­blað­inu 27. nóv­em­ber sl.] upp­lýsir for­stjóri HHÍ að félagið óski eftir leyfi til að hefja fjár­hættu­spila­starf­semi á Inter­net­inu. Teljið þið sem stjórn­endur Háskóla Íslands þessi ummæli rétt­læt­an­leg […] sér­stak­lega í ljósi þess skaða sem slík starf­semi HHÍ veldur í sam­fé­lag­inu nú þegar?

HÍ: Tekið er undir þá afstöðu sem for­stjóri HHÍ hefur lýst […] að með því að veita leyf­is­höfum rekst­urs happ­drætt­is­véla og söfn­un­ar­kassa heim­ild til að starf­rækja á Netinu sömu pen­inga­leiki og þeir hafa leyfi til að bjóða upp á í happ­drætt­is­vélum sínum mætti veita lands­mönnum lög­mætan val­kost við þá ólög­mætu net­spilun sem við­gengst hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

„Eftir fyrstu kjarnorkuárásina er þriðja heimsstyrjöldin óhjákvæmileg“
Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Innlent

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu