Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kári flissar að Guðrúnu Bergmann – Tengdi bólusetningar við Nasista: „Hef engin tengsl við Pfizer“

Kári flissar að Guðrúnu Bergmann – Tengdi bólusetningar við Nasista: „Hef engin tengsl við Pfizer“

Guðrúnu Bergmann, heilsu- og lífs­stíls­ráð­gjafa, líst illa á bólu­efni Pfizer, hvað þá heldur á þá hug­mynd að nota Íslend­inga sem til­rauna­dýr í rann­sóknum fyr­ir­tæk­is­ins. Hún spyr hvort Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir og aðrir sem að bólu­setn­ingum koma hafi alveg gleymt hrotta­legum til­raunum Nasista á fólki í síð­ari heim­styrj­öld­inni. Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, gerir hins vegar lítið úr mál­flutn­ingi Guðrúnar og flissar að vanga­veltum hennar. Þá kveðst Kári ekki tengj­ast Pfizer og segir að Bill Gates hafi komið honum fyrir sjónir sem pirr­andi nörd, í þau tvö skipt sem þeir hitt­ust.

Þetta kemur fram í pistli Guðrúnar sem hefur síð­ast­liðna þrjá ára­tugi verið ötull tals­maður þess að velja nátt­úru­legar leiðir til betri heilsu og bættra lífs­gæða. Hún hefur gefið út tugi bóka, haldið fyr­ir­lestra og nám­skeið og verið virt í sínu fagi. Guðrún bendir á að bólu­efni Pfizer hafi ekki verið full­prófað á dýrum áður en próf­anir voru færðar yfir á fólk. Þá segir hún að til­raunum lyfj­aris­ans á bólu­efn­inu í fólki ljúki í raun ekki fyrr en árið 2023 og lyfið sé því enn á til­rauna­stigi. „Hafa sótt­varna­læknir og aðrir sem að mál­inu koma alveg gleymt Nurnberg siða­regl­unum sem sam­þykktar voru árið 1947, eftir að upp komst um hrotta­legar til­raunir á fólki í fanga­búðum Nasista?,“ spyr Guðrún.

„Kári og félagar hans í AMGEN eða BioNTech eru því lit­aðir af hags­muna­tengslum þegar kemur að far­sótt­ar­vörnum og bólu­setn­ingum vegna Covid-19.“

Þá bendir Guðrún á að bólu­efni Pfizer sé ekki bólu­efni í eig­in­legum skiln­ingi því það eigi frekar að flokka sem gena­breyt­andi efni, það er efni sem breytir erfða­efni lík­am­ans. Hún veltir því fyrir sér hvort efnið sé mögu­lega úlfur í sauða­gæru. „Það er eðli­legt að spyrja svo, vegna þess að afar tak­mark­aðar upp­lýs­ingar hafa í raun feng­ist um það hvaða inni­halds­efni eru í því og hvernig þau muni virka. Það liggur fyrir að bólu­efnið frá Pfizer hefur að geyma ýmis efni sem valdið geta ófyr­ir­sjá­an­legu tjóni á lík­ama manna,“ segir Guðrún.

Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá hafa þrír Íslend­ingar sem nýlega voru bólu­settir vegna Covid-19 lát­ist og hafa til­vikin verið til­kynnt til Lyfja­stofn­unar sem alvar­legar auka­verk­anir bólu­efnis Pfizer. Bæði Rúna Hauks­dóttir Hvann­berg for­stjóri og Alma Möller land­læknir og segja þó alls­endis óvíst að við­kom­andi hafi lát­ist vegna bólu­efn­is­ins því um sé að ræða aldr­aða ein­stak­linga með ýmsa und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.

Kári segir illa skilja hvernig Lyfja­stofnun og sótt­varn­ar­yf­ir­völd hafa tekið á þessum and­látum eftir bólu­setn­ing­arnar því þau hafi ekk­ert að gera með bólu­efnið. Það verji fólk gegn Covid-19 en engum öðrum sjúk­dómum. „Ég er rosa­lega hissa. Að með­al­tali deyja í viku hverri svona 15-20 ein­stak­lingar af dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­ilum. Það er fólkið í þessum hópi sem dó eftir að það var bólu­sett. Það var algjör­lega fyr­ir­sjá­an­legt og engin leið að kom­ast hjá því að nokkrir úr þeim hópi myndi deyja fyrstu vik­una, töl­fræðin er þannig. Mér finnst þetta hafa verið höndlað illa og verið að gefa því byr undir báða vængi að þetta sé að ein­hverju leyti tengt,“ segir Kári.

Guðrún gagn­rýnir hins vegar aðkomu Kára að far­sótta­vörnum hér­lendis og bólu­setn­ingum. Það er vegna þess hversu lit­aður hann sé af hags­muna­tengslum. „Munið þið þegar DeCode fór í gjald­þrot? Þá kom banda­rískur fjár­festir og keypti bruna­rúst­irnar. Árið 2015 var það svo vinur Kára, sjálfur Bill Gates sem keypti DeCode, sem er nú dótt­ur­fyr­ir­tæki AMGEN, sem Bill Gates á líka. Um tíma var AMGEN í sam­starfi við Pfizer um fram­leiðslu á bólu­efni, en svo virt­ist BioNTech hafa stokkið fram­fyrir AMGEN. Reyndar hafa sjóðir Bill & Melinda Gates verið stórir styrkt­ar­að­ilar BioNTech, svo og styrkt­ar­sjóður AMGEN,“ segir Guðrún og bætir við:

„Upp­lýs­ingar um okkur Íslend­inga sem safnað hefur verið af DeCode í gegnum tíð­ina, svo og nið­ur­stöður úr skimunum hér á landi hafa því að öllum lík­indum farið beint til móð­ur­fyr­ir­tæk­is­ins í Banda­ríkj­unum, þar sem menn telja sig geta læknað sjúk­dóma með gena­breyt­ingum eða náð stjórn á lík­ama fólks með því að bólu­setja það með bólu­efni með öreindum (nanoparticles). Kári og félagar hans í AMGEN eða BioNTech eru því lit­aðir af hags­muna­tengslum þegar kemur að far­sótt­ar­vörnum og bólu­setn­ingum vegna Covid-19.“

Kári flissar að vanga­veltum Guðrúnar um hag­muna­tengsl sín við Bill Gates og vísar tengslum sínum við Pfizer jafn­framt alfarið á bug. Á sama tíma við­ur­kennir hann ákveðna þröng­sýni sína því hann geti ein­fald­lega ekki hlustað á þann þjóð­fé­lags­hóp sem mælir gegn bólu­setn­ingum. „Þegar ég rekst á pistla eftir Guðrúnu Bergmann þá hef ég forð­ast þá. Samkvæmt henni er þetta bólu­efni vænt­an­lega upp­spretta alls ills. Ég hef bara ekki áhuga á því sem hún og það fólk sem er á móti bólu­setn­ingum segir. Ég verð að við­ur­kenna að í því felst ákveðin þröng­sýni en ég er alveg sáttur við hana,“ segir Kári.

Aðspurður um meint hags­muna­tengsl sín við lyfj­aris­ann Pfizer í gegnum Bill Gates hafði Kári þetta að segja: „Ég hef akkúrat engin tengsl við Pfizer og á þar engra hags­muna að gæta. Þar hefur hins vegar verið búið til besta bólu­efni sög­unnar og Guðrún lítur sjálf­sagt á það sem ógn. Svona getur lífið stundum verið skringi­legt. Fyr­ir­tækið sem ég vinn fyrir er keppi­nautur og það er svaka­leg sam­keppni þarna á milli. Þar er einmitt ástæðan fyrir því hversu litlar líkur eru á því að ég nái að sann­færa menn þar um að gera til­raunir á Íslandi. Af því ég vinn fyrir annað fyr­ir­tæki hugsa þeir jafn­vel frekar að hags­munir liggi frekar í því að hundsa það sem ég segi,“ segir Kári og bætir við.

„Þessar vanga­veltur eru með ólík­indum. Ég hef aftur á móti tvisvar setið í pall­borðsum­ræðum með Bill Gates en ég hef engin tengsl við hann og þekki mann­inn ekki neit. Ég ber mikla virð­ingu fyrir því hvernig hann notar fé sitt að berj­ast fyrir bólu­setn­ingum í þriðja heim­inum gegn alls­konar sjúk­dómum. Í þau tvö skipti sem ég hitti hann fannst mér hann samt vera frekar pirr­andi nörd.“

Pistil Guðrúnar má finna í heilu lagi hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi