Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sorgarsaga Freyju -„Erum í áfalli“-Stúlkan frá Selfossi elskaði flatkökur og íslenska náttúru

Sorgarsaga Freyju -„Erum í áfalli“-Stúlkan frá Selfossi elskaði flatkökur og íslenska náttúru

Freyja Egils­dóttir Mogensen var stúlka frá Selfossi sem elskaði flat­kökur og íslenska nátt­úru. Síðustu vikur hennar hér á jörðu sakn­aði hún heima­lands­ins og mátti skynja að hana lang­aði heim. Fjöl­skylda Freyju er yfir­buguð af sorg af þeim fregnum að hún hafi verið myrt.

Blessuð sé minn­ing Freyju.

Freyja ólst upp á Selfossi. Hún flutti til Árósa í Danmörku árið 1999 og bjó þar fram í and­látið. Flestir ætt­ingjar hennar búa á Íslandi en systir hennar býr í Danmörku. Freyja tók upp sam­band með mann­inum sem hefur játað að hafa myrt hana með hrylli­legum hætti.

Freyja var þýsk í móð­ur­ætt­ina en átti íslenskan föður, Egil Egilsson, frá Króki í Bisk­ups­tungum, sem lést árið 2019. Hún tal­aði því reiprenn­andi þýsku. Áður en hún flutti til Dan­merkur bjó Freyja í Frakk­landi og Aust­ur­ríki.

Yfir­maður Freyju, Anni Andersen, fer fögrum orðum um hana í við­tali við danska fjöl­miðla. Segir hana hafa verið harð­dug­lega og afskap­lega við­kunn­an­lega og lífs­glaða konu. Anni var ekki kunn­ugt um neina heim­il­is­erf­ið­leika hjá Freyju, hann vissi það eitt um þau mál að hún væri frá­skilin. Hvorki hann né aðra vinnu­fé­laga Freyju hafi grunað að henni gæti verið hætta búin.

Ríflega fimm­tugur sam­býl­is­maður hennar hefur játað fyrir dönskum dóm­stólum að hafa orðið Freyju að bana. Það gerði hann snemma í morgun. Freyja var aðeins 43 ára að aldri er hún lést á Austur-Jótlandi. Maðurinn var leiddur fyrir dóm­ara klukkan 9.30 í morgun að dönskum tíma í Árósum í Danmörku. Þar ját­aði hann að hafa myrt Freyju. Samkvæmt dönsku fjöl­miðlum var hún kyrkt og lík hennar hlutað í sundur. Maðurinn hefur verið úrskurð­aður í fjög­urra vikna gæslu­varð­hald.

Lýst var eftir Freyju í gær eftir að ekk­ert hafði spurst til hennar frá því síð­ast­liðið fimmtu­dags­kvöld.

Frænka morð­ingj­ans, sam­býl­is­manns­ins sem játað hefur á sig morð Freyju, Camilla Diana Mogensen, segir fjöl­skyld­una í gíf­ur­legu áfalli eftir hinn sorg­lega atburð. „Við erum, öll fjöl­skyldan, í mjög miklu áfalli,“ segir Camilla í sam­tali við Mannlíf.

Freyja birti nýlega mjög fal­legar myndir af Íslandi þar sem hún sagð­ist sakna lands­ins og að hana lang­aði heim. Aðeins eru þrjár vikur síðan. Í færslu á Instragram birti hún fal­legar Íslands­myndir með eft­ir­far­andi skila­boðum.

„Ég elska líf mitt í Danmörku en ég sakna virki­lega heima­lands­ins míns, fjöl­skyldu og vina. Dönsk nátt­úra er róandi en sú íslenska svo kraft­mikil,“ sagði Freyja sem hafði sterka teng­ingu við Ísland og heimabæ sinn á Selfossi.

Þessar fal­legu myndir frá Íslandi birti Freyja nýlega með skila­boð­unum að hún sakn­aði heima­lands­ins.

Freyja starf­aði á dval­ar­heim­ili aldr­aðra í Odder, á aust­an­verðu Jótlandi. Hún lætur eftir sig tvö börn. Fyrir nokkrum árum gekk hún í gegnum mikla sorg þegar hún fæddi tví­bura en annar þeirra dó.

Það eru aðeins tvær vikur síðan að Freyja birti af sér mynd og síð­astu mynd­ina af henni má finna hér að neðan. Þá skrif­aði hún:

„Í fyrra ákvað ég að fylgja hjarta mínu, eðl­is­hvöt og þrám. Að lifa í núinu. Í þeim anda fór ég að skokka í litlum skógi. Upp og niður for­ugar brekkur. Frábært! Síðan er það ískaldur kaffi­drykkur, heit sturta og hvað sem dag­ur­inn býður upp á.“

Þetta er síð­asta myndin sem Freyja birti og hér fór hún sína síð­ustu skokk­ferð.

Danska lög­reglan lýsti eftir Freyju í gær. Ekkert hafði þá spurst til hennar frá því á fimmtu­dags­kvöld í síð­ustu viku. Þá hvarf hún eftir vinnu. Danska lög­reglan sendi svo frá sér til­kynn­ingu í morgun og þar kom fram að lík Freyju væri fundið.

Það er aug­ljóst að Freyja bar sterkar taugar til Íslands, það má bæði sjá af myndum hennar og skrifum. Hún birti til að mynda færslu í til­efni þess að Hildur Guðna­dóttir tón­skáld vann til Golden Globe verð­laun­anna. Þá sagði Freyja:

„Ég upp­lifi stund heim­þrár. Ég sá end­ur­sýn­ingu af Golden Globe verð­laun­unum. Þegar ég heyrði skyndi­lega mína æsku­tungu (íslensku) tal­aða brast ég í grát. Hildur Guðna­dóttir vann. Ég hef ekki hug­mynd hver hún er en ég er svo stolt af henni.“

Síðasta sumar birti Freyja færslu í ljósi fal­legs sumar og rit­aði þá kveðjur til elsk­unnar sinnar, sem gera má ráð fyrir að sé sam­býl­is­mað­ur­inn sem síðar varð henni að bana. Þar sagði Freyja við mynd sem hún birti af garð­borði á fal­legum degi þar sem létt­víns­glasi og flösku hafði verið stillt upp:

„Splunku­nýtt sumar. Ég tók frá fyrir þig sæti, ástin mín.“

Freyja starf­aði á dval­ar­heim­ili aldr­aðra í Odder, á aust­an­verðu Jótlandi. Talið var að hún hefði mögu­lega farið með lest á föstu­dags­morgn­inum. Vinnu­veit­enda hennar barst SMS-skeyti á laug­ar­deg­inum úr síma Freyju þar sem hún boð­aði veik­indi frá vinnu.
Síðan heyrði eng­inn frá henni.

Eins og gefur að skilja er fjöl­skylda Freyju hér á landi yfir­buguð af sorg vegna tíð­ind­anna af frá­falli Freyju. Hún á þrjár systur: Dísu Maríu, Ásthildi og Sólrúnu. Móðir þeirra er Bót­hildur Hauks­dóttir en faðir þeirra, Egill Egilsson, lést 21. ágúst 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina