Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Maðurinn sem myrtur var í Rauðagerði borinn til grafar á morgun: „Ástkær eiginmaður og faðir“

Maðurinn sem myrtur var í Rauðagerði borinn til grafar á morgun: „Ástkær eiginmaður og faðir“

Armando Beqiri, sem myrtur var á hrotta­legan hátt fyrir utan heim­ili sitt við Rauða­gerði um miðjan febr­úar, verður jarð­sung­inn á morgun. Eig­in­kona hans, Þóranna Helga Gunn­ars­dóttir, til­kynnir útför­ina í dag með eft­ir­far­andi kveðju:

„Ástkær eig­in­maður og faðir, Armando Beqirai, lést sunnu­dag­inn 14. febr­úar. Útförin fer fram í Graf­ar­vogs­kirkju föstu­dag­inn 5. mars klukkan 15.“

Undir til­kynn­ing­una ritar Þóranna og ungur sonur þeirra sem er aðeins 16 mán­aða gam­all og mun alast upp án föður síns. Þá er Þóranna er gengin 26 vikur með annað barn þeirra og hefur hún vit­an­lega verið yfir­buguð af sörg eftir að Armando var skot­inn fyrir bana fyrir framan heim­ili þeirra.

Aftaka var framin við Rauða­gerði um mið­nætti sunnu­dag­inn 14. febr­úar. Ungur maður á fer­tugs­aldri var tek­inn af lífi á hrotta­legan og kald­rifj­aðan hátt. Hinn myrti var Íslend­ingur, Armando Beqiri, sem á ættir að rekja til Albaníu. Hann sett­ist hér að annan jóla­dag árið 2014, lærði tungu­málið, kynnt­ist konu og gift­ist, eign­að­ist barn og átti von á öðru kríli í fangið örfáum mán­uðum síðar, eig­in­maður, faðir og fyr­ir­tækja­eig­andi í Gerðunum.

Margir heim­ild­ar­menn Mannlífs bera Armando vel sög­una. Hann hafi verið reglu­samur fjöl­skyldu­maður sem rak lengi fyr­ir­tæki við góðan orðstír. Ljóst er að hans verður sárt saknað af fjölda manns. Armando Beqiri var Íslend­ingur og stoltur af því.

Heim­ild­ar­menn Mannlífs segja hann hafa verið vel lið­inn í starfi sem krefst lagni í sam­skiptum og þekktur fyrir að stofna til friðar ef deilur komu upp. Þeir sem Mannlíf hefur rætt við eru bæði albanskir og svo Íslend­ingar.

Líkt og kemur fram að ofan var Armando vin­sæll. Hann var reglu­samur og rak rak um tíma líf­varða­þjón­ustu en stofn­aði svo fyr­ir­tækið Top Guard og sá um dyra­varða­þjón­ustu fyrir fjöl­marga skemmti­staði í mið­borg­inni.

Athafna­mann­inum Antoni Kristni Þór­ar­ins­syni hefur verið sleppt úr haldi lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en hann úrskurð­aður í fjög­urra vikna far­bann. Hann hafði áður setið í tveggja vikna gærslu­varð­haldi vegna rann­sókn­ar­innar á hinu hrotta­lega morði á Armando í Rauða­gerði.

Armando virt­ist hafa komið ár sinni vel fyrir borð og hann kunni íslensku. Stoltur kaus hann svo í fyrsta sinn á lífs­leið­inni er hann stakk kjör­seðli í kass­ann í þing­kosn­ingum hér á landi. Armando var líka harður stuðn­ings­maður íslenska lands­liðs­ins.

Morðið við Rauðagerði

Skömmu fyrir mið­nætti lagði Armando bíl sínum inn í bíl­skúr og á sömu stundu og hann var að ganga að úti­dyr­unum er talið að bíl hafi verið ekið fram­hjá hús­inu og þaðan hafi hverju byssu­skot­inu á fætur öðru verið hleypt af. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hæfðu kúl­urnar Armando í bak, háls og höfuð en aðrar misstu marks. Á vett­vangi fannst Armando liggj­andi í blóði sínu og var reynt end­ur­lífgun og hann fluttur á spít­ala.

Armando komst aldrei til með­vit­undar og var hann úrskurð­aður lát­inn á Land­spít­al­anum stuttu eftir komu þangað.

Armando við Barna­fossa

Til Íslands á jólunum

Málið er allt hið sorg­leg­asta, Armando átti 16 mán­aða dreng. Þóranna ber barn undir belti og á von á sér eftir nokkra mán­uði.

Armando var albanskur að upp­runa og var fyrst talað um að einn útlend­ingur hefði skotið annan. Það er ekki svo ein­falt. Armando kom til Grikk­lands haustið 2012. Rétt rúmum tveimur árum síðar, á annan í jólum, lendir hann á Íslandi. Tók hann strax ást­fóstri við land og þjóð. Á sam­fé­lags­miðlum seg­ist Armando tala þrjú tungu­mál, albönsku, grísku og ensku. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs var hann fljótur að ná tökum á einu erf­ið­asta máli ver­aldar, íslensku. Þá segja heim­ild­ar­menn Mannlífs að hann hafi verið vel lið­inn af mörgum.

Kynnist konu og tekur ástfóstri við landið

Árið 2015 kynnt­ist Armando og Þóranna. Einn stærsti dag­ur­inn í hans lífi var þegar Armando var veittur rík­is­borg­ara­réttur. Þá var hann mont­inn með sig, sem von er. Armando fyllt­ist stolti að kjósa í fyrsta sinn á ævinni og hafði áhrif á þing­kosn­ing­arnar ásamt öðrum Íslend­ingum.

Einn stærsti dag­ur­inn í hans lífi var þegar Armando var veittur rík­is­borg­ara­réttur.

Til merkis um ást hans á Íslandi, þá var Armando gall­harður stuðn­ings­maður Íslenska lands­liðs­ins í knatt­spyrnu. Fylgdi hann lið­inu til Rúss­lands á heims­meist­ara­mótið og stoltið leynir sér ekki á einni mynd­inni þar sem Armando er í íslensku lands­lið­s­treyj­unni.

Vinamargur fyrirtækjaeigandi

Tekið skal fram að ekki er ætlun Mannlífs að setja geisla­baug á nokkurn er teng­ist þessum sorg­lega og ömur­lega harm­leik við Rauða­gerði eða draga upp myrk­ari hlið af þeim sem eru til umfjöll­unar. Það er hins vegar stað­reynd að ungur faðir sem var í metum hjá mörgum var myrtur á hrotta­feng­inn hátt og eftir situr fjöl­skylda í sárum

Nokkrir heim­ild­ar­manna Mannlífs bera Armando vel sög­una. Hann hafi verið reglu­samur og vart sést á honum vín. Þá er Armando sagður vina­margur og í fjöl­mennum vina­hópi er nú stórt skarð sem aldrei verði fylgt.

Armando var einn eig­anda fyr­ir­tækis sem sér­hæfði sig í örygg­is­gæslu og dyra­vörslu. Ekki verður full­yrt um það í þess­ari umfjöllun en fyr­ir­tækið hefur að sögn heim­ild­ar­manna, vaxið hratt og gengið vel.

Blessuð sé minn­ing Armando.

Armando sem lést við Rauða­gerði fyrir utan hús sitt var ungur. Þóranna hefur misst ást­ina sína. Tvo ung börn, annað ófætt, fá aldrei að kynn­ast föður sínum. Þjóðin upp­lifir örygg­is­leysi sem er hjóm eitt miðað við það sem aðstand­endur unga fjöl­skyldu­föð­ur­ins hafa gengið í gegnum síð­ustu vikur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi