Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Flest ummæli Aldísar Schram um barnagirnd Jóns Baldvins dæmd í lagi

Flest ummæli Aldísar Schram um barnagirnd Jóns Baldvins dæmd í lagi

Dómur var að falla í máli fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herr­ans og sendi­herr­ans Jóns Baldvins gegn dóttur sinni Aldísi Schram og fjöl­miðla­mann­inum Sigmari Guð­munds­syni.

Úr dóms­sal. Mannlíf var á staðnum, en á mynd­inni má sjá Aldísi Schram ásamt verj­anda sínum, Gunnari Inga Jóhanns­syni

Tvenn af tíu ummælum Aldísar Schram um barna­girnd föður síns voru dæmd ómerk í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Annað hafði fallið í morg­un­út­varpi Rásar 2 og hitt á Facebook síðu Aldísar.
Sigmar var sýkn­aður í mál­inu.
Dómurinn verður birtur í heild sinni eftir helgi.
Jón Baldvin var hvergi að sjá, en bæði Aldís og Sigmar voru mætt í dóms­sal til að heyra upp­kvaðn­ingu dóms­ins.

Ummælin tíu voru eft­ir­far­andi:

1. … hann fær mig undir fölsku yfir­skini til að heim­sækja afa minn … mér var haldið inni þarna í mánuð sem sagt ólög­lega.“

2. … já Fimm sinnum á næstu 10 árum kast­ast í kekki milli mín og Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar og því lyktaði ávalt með því að (sic) sig­aði á mig lög­reglu sem hand­tók mig, hann var nátt­úr­lega utan­rík­is­ráð­herra …

3. Hann gat bara þaðan í frá, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra og síðar sendi­herra, virð­ist vera að hringja bara í lög­reglu og þá var ég þar með hand­tekin, umsvifa­laust í járnum, farið með mig upp á geð­deild …

4. … hann er þá líka að mis­nota lítil börn.

5. … ég neita að skilja þau eftir í umsjón karls sem káfar á litlum stúlku­börnum.

6. Og sem sagt 10 mín­útum eftir að ég kæri Jón Baldvin þá hringir dyra­bjallan. Þar rudd­ust þarna inn tveir lög­reglu­menn ef ekki þrír og ég, þegar ég sé það þá reyni ég að loka en auð­vitað tókst mér það ekki, þeir ryðj­ast þá þar með inn og þeir svara mér engu, ryðj­ast inn í stofu þar sem dóttir mín 5 ára gömul er að lesa og þegar barnið er tekið frá mér þá verð ég æf.

7. … það er faðir minn sem stendur fyrir því að hér eigi að loka mig inni.

8. Fíkn, auð­vitað er barna­girnd fíkn, þetta er fíkn.

9. … nauð­ung­ar­vistun án dóms og laga er þá ólög­mæt frels­is­svipt­ing… Facebook, 5. febr­úar 2019, höf­undur stefnda Aldís.

10. … og sigra hann og hans barn­a­níð­inga­banda­lag.

Ummæli númer átta og tíu voru felld niður, önnur ekki.

Sjá einnig: „Átök fyrir Hér­aðs­dómi: Jón Baldvin ótt­ast Metoo-vitni Aldísar“

Jón Baldvin sagð­ist hafa höfðað mál gegn fyrr­greindum aðilum til varnar æru sinni.
Málið varðar við­tal sem Aldís var í hjá Sigmari og Helga Seljan í Morg­un­út­varpi Rásar 2, þann 17. jan­úar 2019.
Í við­tal­inu létu Aldís og Sigmar ummæli falla sem Jón Baldvin var ósáttur með og vildi láta dæmd dauð og ómerk.

Í stefn­unni voru til­tekin á annan tug ummæla Aldísar og fern ummæli Sigmars. Þar sagði einnig að Aldís hefði sakað föður sinn með ummælum sínum „um margs konar hegn­ing­ar­laga­brot s.s. sifja­spell, kyn­ferð­is­brot gegn börnum, barn­a­níð, ólög­mæta nauð­ung­ar­vistun á geð­deild, frels­is­svipt­ingu og ýmsa aðra refsi­verða og sið­ferð­is­lega ámæl­is­verða hátt­semi.“

Sjá einnig: Þú verður næstur segir Jón Baldvin: „Ætlum við virki­lega að láta þetta yfir okkur ganga?“ 

Í við­tal­inu sagði Aldís meðal ann­ars að Jón Baldvin hefði mis­notað stöðu sína sem sendi­herra í Banda­ríkj­unum til per­sónu­legra erinda. Hann hafi fengið lög­reglu til að brjóta sér leið inn á heim­ili sitt án þess að nokkuð hafi bent til þess að þörf væri á slíkum aðgerðum.

Samkvæmt gögnum, sendi Jón Baldvin fjórum sinnum beiðnir um nauð­ung­ar­vistun með faxi frá sendi­ráð­inu. Í gögnum lög­regl­unnar kemur fram að í eitt skipti hafi beiðnin verið merkt sem „aðstoð við erlend sendi­ráð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina