Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

KÖNNUN – Ekki á dagskrá Bónus að bjóða afslátt gegn sjálfsafgreiðslu – Aðrar búðir ekki svarað

KÖNNUN – Ekki á dagskrá Bónus að bjóða afslátt gegn sjálfsafgreiðslu – Aðrar búðir ekki svarað

Notkun sjálfs­af­greiðslu­kassa er orðin mjög algeng. Í versl­unum Haga er notk­un­ar­hlut­fallið orðið hátt í 80 pró­sent og hjá Krónunni um það bil 70 pró­sent. Versl­anir Samkaupa eru með eilítið lægra notk­un­ar­hlut­fall eða um 50 pró­sent. For­stjóri Haga segir að raðir heyri sög­unni til og versl­un­ar­ferðir séu orðnar miklu ein­fald­ari. Morg­un­blaðið greindi frá þessu í gær.

Afsláttur

Hvað þýðir þetta fyrir við­skipta­vini þess­arra versl­ana ? Það er orðið ein­fald­ara að versla, minna um biðraðir og þeir geta stokkið í hlut­verk starfs­manns og afgreitt sig sjálfir. Gott og blessað að það er minna um raðir og allt er orðið svo ein­falt. En hvað varð um það að launa við­skipta­vin­unum fyrir að afgreiða sig sjálfir með því að bjóða upp á afslátt, sé sú leið valin? Aldrei er heldur talað um hve margir hafa misst atvinnu sína við þessar breyt­ingar. Þó verður að taka fram að tölu­verður munur er á því hvort versl­anir bjóða bæði starfs­mann á kassa og sjálfs­af­greiðslu því þá vissu­lega hefur við­skipta­vin­ur­inn val. Nokkrar versl­anir Krón­unnar bjóða ein­göngu upp á sjálfs­af­greiðslu og þar ætti að vera sjálf­sagt að veita við­skipta­vinum afslátt, því þar er ekk­ert val í boði.

Búnaðurinn verið í notkun í 14 ár

Krónan hefur boðið upp á sjálfs­af­greiðslu­kassa í 14 ár eða síðan 2007, fyrsti Sjálfs­af­greiðslu­kass­inn var  í Krónunni Bílds­höfða. Nýjusta kerfið, eða það sem er í notkun í dag, var sett upp í verslun Krón­unnar í Nóatúni 2018 eða fyrir um þremur árum.  Fyrstu sjálfs­af­greiðslu­kassar Haga voru teknir í notkun 2018 í Bónus Smára­torgi.

Vöruverð hækkar en þjónustan minnkar

Það hafa verið uppi mjög háværar raddir um að fólk kjósi alls ekki að nota sjálfs­af­greiðsl­una og fari fremur á kassa til starfs­fólks til þess að sporna við því að fólk missi atvinnu sína. Enn hávær­ari raddir hafa sagt að það sé fásinna að við­skipta­vinir sem afgreiða sig sjálfir eigi auð­vitað að fá afslátt. Sann­leik­ur­inn er sá að vöru­verð hækkar og hækkar meðan og þjón­ustan minnkar og minnkar. Þetta er þegar öllu er á botn­inn hvolft enn ein gróða­leiðin fyrir versl­an­irnar, sett í dul­bún­ing sem eitt­hvað rosa­lega gott fyrir við­skipta­vin­ina. Breyt­ingar sem fela í sér minni raðir og ein­fald­anir eru auð­vitað af hinu góða, en það þarf að veita við­skipta­vin­inum umbun fyrir að taka þátt í þessum breyt­ingum með því að vinna fyrir versl­an­irnar á meðan afgreiðslu stendur.

Einn starfsmaður

Fjöldi fólks hefur eðli­lega misst vinn­una vegna þess­arra breyt­inga og því alltaf teflt fram að nú einn starfs­maður á svæð­inu til þess að aðstoða. Gott og vel, það er einn starfs­maður á svæð­inu en hve margir hafa misst störf sín ? Því er heldur ekki til að dreifa að stjórn­endur versl­an­ana hafi hugsað um það að bæta þjón­ust­una inni í versl­un­unum í ljósi þess að ekki er þörf fyrir eins marga kassa­starfs­menn og áður. Því fer fjærri. Þetta snýst um að spara í rekstri versl­an­anna sem færir þeim meiri gróða.

Tveggja prósenta afsláttur

Samkaup hefur nýverið tekið upp kerfi sem þeir sjálfir kalla bylt­ingu. Þar er hægt að fá tvö pró­sent afslátt sem við­skipta­vinur getur safnað upp og eytt svo í verslun þeirra. Auðvitað er gott að ein­hver sýni lit hvað varðar það að gefa afslátt en þessi afsláttur er hvorki fugl né fiskur og við­skipta­vin­ur­inn neyð­ist ofan í kaupið til þess að eyða því sem spar­ast hjá fyr­ir­tæk­inu sjálfu.

 Svar Haga/Bónus

Guð­mundur Mart­eins­son fram­kvæmd­ar­stjóri Haga svar­aði spurn­ingu Mannlífs varð­andi það hvort væri á stefnu­skránni að veita við­skipta­vinum Bónus afslátt á sjálfs­af­greiðsluköss­unum. Guð­mundur sagði að það væri ekk­ert slíkt á dag­skrá. Hann sagði að Bónus liti á þetta sem val­kost fyrir við­skipta­vini sína. Í 26 búðum eru bæði belta­kassar og sjálfs­af­greiðslu­kassar og í fimm versl­unum ein­göngu belta­kassar. Bónus er því ekki með neina verslun sem ein­göngu bíður upp á sjálfs­af­greiðslu. Hlut­föllin á notkun belta­kassa og sjálfs­af­greiðslu­kassa eru 40/60 en á heild­ina litið 50/50. Enn fremur sagði Guð­mundur að engin breyt­ing hefði orðið á fjölda stöðu­gilda og það hefði engum verið sagt upp í tengslum við þetta og yrði ekki. Að lokum sagði Guð­mundur að fá stöðu­gildi væru í Bónus og verk­efnin næg.

Mannlíf sendi fyr­ir­spurnir á allar versl­anir sem fjallað er um hér, varð­andi það hvort fyr­ir­hugað sé að veita við­skipta­vin­unum afslátt á sjálfs­af­greiðsluköss­unum. Enn er beðið svara frá Krónunni og Samkaup en mál­inu verður fylgt eftir þegar svör þeirra ber­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi