Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sölvi Tryggvason sver af sér ofbeldisverk: „Ég óska eng­um að lenda í þeirri hakka­vél“

Sölvi Tryggvason sver af sér ofbeldisverk: „Ég óska eng­um að lenda í þeirri hakka­vél“
Mynd / Skjáskot RÚV.

Fjöl­miðla­maður­inn Sölvi Trygga­a­son hefur stigið fram og full­yrt að hann sé ekki sá þjóð­þekkti maður sem hafi gengið í skrokk á vænd­is­konu nýverið. Um það hafa gengið háværar sögur í sam­fé­lag­inu sem hafa sært Sölva mjög.

Sölvi ritar færslu á Instagram þar sem hann neitar því að hafa verið hinn ónafn­greindi þjóð­þekkti ein­stak­lingur og birti þess til stuðn­ings mynd úr mið­lægum gagna­grunni lög­regl­unnar sem sýni að hann hafi ekki verið hand­tek­inn vegna máls­ins.

Svona hljóðar færsla Sölva í heild sinni:

„Síðustu daga hafa gengið ótrú­lega rætn­ar slúður­sög­ur um mig í þjóðfé­lag­inu sem eiga sér enga stoð í raun­veru­leik­an­um. Þetta gekk meira að segja svo langt að einn fjöl­mið­ill birti frétt um slúður­sög­una án þess þó að nafn­greina mig. Í frétt fjöl­mið­ils­ins kom fram að fyr­ir um tveim­ur vik­um hefði þjóð­þekkt­ur ein­stak­ling­ur, sem sam­kvæmt sög­unni er ég, keypt sér kyn­lífs­þjón­ustu, gengið í skrokk á vænd­is­kon­unni, verið hand­tek­inn og flutt­ur í varð­hald. Um þetta er bara eitt að segja: málið er þvætt­ing­ur frá upp­hafi til enda.

Ég get ekki sagt ykk­ur hvað þess­ar sög­ur hafa haft mik­il áhrif á mig, fjöl­skyldu mína og vini. Ég hef verið sem lamaður síð­ustu daga og neit­aði lengi vel að trúa að fólk tæki þátt í að dreifa slúður­sög­um sem þess­um. Frá því um helg­ina hef­ur sím­inn minn ekki stoppað vegna fyr­ir­spurna frá fjöl­miðlum um hvort þess­ar sög­ur séu sann­ar. Þegar málið er komið á það stig verð ég að bregð­ast við. Niður­brot­inn og svefn­laus leit­aði ég í gær til Sögu Ýrar Jóns­dótt­ur hæsta­rétt­ar­lög­manns til að at­huga stöðu mína og hvernig ég ætti að bregð­ast við. Hún sagði mér að auð­velt væri að afsanna þetta með því að kalla inn mála­skrá mína hjá lög­reglu und­an­far­inn mánuð þar sem ljóst væri að ef lög­regl­an hefði haft ein­hver af­skipti af mér, bein eða óbein, þá kæmu þau fram í mála­skránni. Saga kall­aði því eft­ir mála­skránni og feng­um við hana af­henta fyr­ir stundu og birti ég hana hér með. Eins og þarna kem­ur skýrt fram hef­ur lög­regl­an ekki haft nein af­skipti af mér, bein eða óbein, á þeim tíma sem þessi at­vik eiga að hafa átt sér stað. Þetta verður ekki skýr­ara. Það er ekk­ert til í þess­um slúður­sög­um.

Ég óska eng­um að lenda í þeirri hakka­vél sem slúður­sög­ur eru. Þær eru mann­skemm­andi, niður­brjót­andi og hafa valdið mér og mín­um meira hug­ar­angri en ég hefði getað ímyndað mér. Ég verð alltaf jafn undr­andi á að fólk sé til í að tala illa um ná­ung­ann; fólk af holdi og blóði með til­finn­ing­ar og fjöl­skyldu. Hætt­um þessu!

Raun­ar líður mér svo illa að ég treysti mér ekki til að tjá mig frek­ar um málið og bið ég fjöl­miðla um að virða þá ósk mína.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ